Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón hrökk í kút í viðskiptum við póstinn: „Ég er löngu búinn að gefast upp“

Jón hrökk í kút í viðskiptum við póstinn: „Ég er löngu búinn að gefast upp“

Jón Ólafur Björg­vins­son hefur fengið nóg af okri póst­þjón­usta, bæði hér­lendis og erlendis. Sjálfur býr hann í útlöndum og telur sig ein­fald­lega hafa verið rændan við að senda jóla­gjafir ætt­ingja sinna til Íslands.

Jón segir frá reynslu sinni í fjöl­mennum hópi Íslend­inga á Facebook sem búsettir eru erlendis. Þar segir hann:

„Kæru landar! Gleðileg tolla og póst­burðar-okur jól. Það er óþol­andi órétt­læti að mót­tak­andi jóla­gjafa þurfi gegnum rík­is­rekna fjár­kúgun að greiða toll af jóla­gjöfum og ofan á allt verða rændur hjá bæði PostNord og Íslands­pósti með him­in­háum ein­ok­unar póst­burð­ar­gjöldum. Það kostar oftar en ekki meira undir pakk­ana en það sem þeir inni­halda,“ segir Jón og heldur áfram:

„Að fá kröfu um að borga toll fyrir að fá að taka á móti jóla­gjöfum er ekk­ert annað en fjár­kúgun og rík­is­rek­inn dóna­skapur, en þetta órétt­læti virð­ist ganga yfir alla Íslend­inga heima á klak­anum góða, sem og yfir þá sem búa á hinum Norð­ur­löndum. Og gildir þetta jafnt um jóla- afmælis- og ferm­ing­ar­gjafir og fleira. Ofan á allt bæt­ast síðan við him­inhá ein­ok­unar póst­burð­ar­gjöld sem oft yfir­stíga verðið á gjöf­unum í pakk­anum.“

Fjöl­margir Íslend­ingar taka undir orð Jón og furða sig á hárri verð­lagn­ingu pósts­ins. Sig­ur­björg er ein þeirra. „Mér finnst ynd­is­legt að gefa gjafir en nú er búið að taka það frá mér með OFURTOLLUM,“ segir Sig­ur­björg. Ester er á sama máli. „Já, það er ótrú­legt okur bæði hjá toll­inum og póst­inum og hrika­lega léleg póst­þjón­usta!!!! Vildi óska að þetta breyt­ist til batn­aðar,“ segir hún.

Rut tekur undir með þeim. „Þetta er enda­laus bar­átta sem hefur fyrir löngu tekið alla ánægj­una af því að fa gjafir í póst­inum,“ segir Rut.  Það gerir Þórunn líka. „Ég er löngu hætt að taka þátt í þessu bulli…við sendum pen­inga á milli og fáum aðra til að kaupa gjafir í heima­land­inu í stað þess að láta póst­inn taka sig í þurrt@#%%,“ segir Þórunn ákveðin.

Jar­þrúður getur þetta ekki lengur. „Ég er löngu búinn að gef­ast upp. Hætt að senda.“ Á sama tíma er Eygló búin að finna svarið við þessu. „Ég skrepp til Íslands í “jóla­ferð” í nóv­em­ber og flyt pakka fram og til baka. Held ég hafi oft­ast komið út í gróða miðað við að senda,“ segir Eygló.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi