Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður á RÚV og fótboltaþjálfari yngri flokka Breiðabliks, birti sorglega en sanna örsögu á Twitter. Hann segir frá því þegar átta ára drengur kom grátandi til hans og lýsti því að hann gæti ekkert lengur í fótbolta.
„Á 6.flokks æfingu í dag kom til mín grátandi strákur, ofboðslega lítill í sér.“
„Ég kann ekkert í fótbolta lengur,“ sagði drengurinn.
„Svona svona það er nú ekki rétt,“ svaraði Gunnar.
„Jú, ég er búinn að vera í sóttkví í 4 vikur og get ekki neitt,“ sagði þá drengurinn.
Gunnar skrifar:
„Átta ára gamalt barn í stofufangelsi í fjórar vikur.“
Segir hann sóttvarnarmál vera komin allt of langt.
„Þetta er komið útfyrir öll þolmörk. Afleiðingar aðgerða á meinlausa flensu gagnvart þessum hópi er stórkostlegt áhyggjuefni. Þætti mjög fróðlegt að vita hvort þetta sé yfir höfuð tekið með í reikninginn þegar tilefnislausar aðgerðir eru settar á.“































Athugasemdir