Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kennarar ráðalausir vegna agaleysis: „Ber á virðingarleysi og dónaskap hjá stórum hluta nemenda“

Kennarar ráðalausir vegna agaleysis: „Ber á virðingarleysi og dónaskap hjá stórum hluta nemenda“

Borið hefur á því í auknum mæli að yngri börn sýni kenn­urum óvirð­ingu og kenn­arar séu ráða­lausir um hvernig skuli bregð­ast við.

Þor­gerður Laufey Dið­riks­dóttir, for­maður Félags grunn­skóla­kenn­ara, segir að íslenskt sam­fé­lag þurfi að setj­ast niður og íhuga hvað sé ásætt­an­leg hegðun í sam­fé­lagi.

„Við höfum heil­mikið rætt þetta í okkar hópi raun­veru­lega hver ástæðan er fyrir því bæði sé það orðið þannig að yngri nem­endur sýni óvið­eig­andi hegðun og það sé kannski stærri hópur en áður.

Þetta er auð­vitað alls ekki vís­inda­lega sannað, en þetta er til­finn­ing sem margir félags­menn hjá mér hafa komið á fram­færi,“ sagði Þor­gerður Laufey Dið­riks­dóttir for­maður Félags grunn­skóla­kenn­ara í útvarps­þætt­inum Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í gær.

Agi í grunn­skólum og hegðun barna hefur verið til tölu­verðar umræðu und­an­farið og segir Þor­gerður umræð­una um hegðun barna ann­ars eðlis en þá um skóla án aðgrein­ingar.

Ekki megi rugla þessu tvennu saman.

Þegar kenn­arar lýsi yfir áhyggjum vegna hegð­unar barna sé ekki um að ræða þann hóp nem­enda sem þurfi á meiri aðstoð að halda en aðrir, heldur beri á virð­ing­ar­leysi og dóna­skap hjá stórum hluta nem­enda.

„Þetta er umræða um krakka sem áður áttu auð­velt með að vinna í skólum og voru kannski ekki krakkar sem bar mikið á. Það er kannski frekar sá hópur sem er til umræðu. Hvers vegna það er og hvað hefur breyst í sam­fé­lag­inu sem gerir það að verkum að börn og ung­menni koma þannig fram að full­orðnu fólki og jafn­vel öðrum börnum finn­ist það virð­ing­ar­leysi,“ segir Þor­gerður.

Oft gengið fram af fólki

Erfitt sé að henda reiður á þessa ómenn­ingu sem upp sé komin:

„Það má kannski segja að þetta sé ákveðin menn­ing sem virð­ist vera uppi, bæði orð­bragð og munn­söfn­uður og oft gengið fram af fólki.“

Þor­gerður telur þessa breyt­ingu vera rann­sókn­ar­efni; nú sé þetta ekki breyt­ing sem hafi verið sönnuð, heldur byggi hún á til­finn­ingu kenn­ara:

„Ég held að það þyrfti að gera rann­sókn á þessu; það þyrfti að gera vís­inda­lega úttekt, því þetta eru allt til­finn­ingar og það sem fólk talar um sín á milli.

Auðvitað eru það ákveðin rök og ákveðin vís­bend­ing um að það sé eitt­hvað sem er að breyt­ast.

Þá veltir maður fyrir sér hvaða ástæður liggja á bak við það. Það er kannski það sem fræði­menn þyrftu að fara að skoða núna í sam­hengi við þessa upp­lifun kenn­ara,“ segir Þor­gerður.

Agaleysi í íslenskum skólum

Enn annað sé hvort aga­leysi hafi ríkt í íslensku skóla­kerfi:

„Við höfum lengi haldið því fram og haft það í flimt­ingum að aga­leysi á Íslandi sé algert og það má kannski segja sem svo að það sé það og það kemur þá inn í skól­ana líka, skól­arnir eru auð­vitað sam­fé­lag,“ segir Þor­gerður.

Hún veltir því fyrir sér hvort rekja megi þennan vanda til þess hvernig sam­skipti heim­ili og skóla fari fram:

„Þegar for­eldrar eru komnir svona nálægt skóla­starf­inu, sem er auð­vitað kostur, og þeir eiga auð­vitað að vera þarna til að fylgj­ast með líðan barn­anna sinna og fylgja eftir námi barn­anna sinna, það er þeirra hlut­verk, þá er maður kannski kom­inn í það að skoð­anir for­eldra á hegðun sé kannski eitt­hvað sem við þurfum að fara að ræða um; hvað þyki ásætt­an­legt í skóla þar sem stórir hópar koma saman, og það þarf auð­vitað að vinna með hóp en ekki ein­stak­ling.“

Samfélagið þurfi að ákveða að breyta samskiptum

Það sé þó ekki þar með sagt að vand­ann megi alfarið rekja til for­eldra. Mun lík­legra sé að vanda­málið sé sam­fé­lags­legt:

„Það er að segja, að við ættum öll að setj­ast niður og velta því fyrir okkur hvað sé ásætt­an­leg hegðun í hóp; þá er það ekki bara gagn­vart börnum sem eru að læra að vera fólk og taka sín skref í skóla, heldur þurfum við kannski sem sam­fé­lag að taka á því hvað er ásætt­an­legt,“ segir Þor­gerður.

Bætir við:

„Þetta er mikið til umræðu, til dæmis um sam­fé­lags­miðla. Kannski er bara komin tími á það að íslenskt sam­fé­lag fari að setj­ast niður og velta vöngum hvað þykir ásætt­an­leg hegðun og hvað er kurt­eisi.

Það er kannski það sem við höfum ekki farið mjög djúpt í á und­an­förnum árum því við héldum kannski öll að við værum sam­mála um hvað væri kurt­eisi og ásætt­an­leg hegðun.

Kannski er það bara komið upp á yfir­borðið að það er mis­mun­andi hvað fólki finnst um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi