Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Langlífar Jólahefðir

Langlífar Jólahefðir

Skemmti­legar hefðir eru eitt af því besta við jólin og það er um að gera að skapa skemmti­legar jóla­hefðir til að kæta mann­skap­inn. Það veitir nú heldur ekk­ert af öllu sem hressir fólk við á þessum síð­ustu og verstu tímum.

Öll höfum við hug­myndir um það hvernig jólin eiga að vera og flestir eiga sér sínar jóla­hefðir sem oft getur verið erfitt að víkja frá. Jóla­hefðir Íslend­inga eru þó flestar til­tölu­lega nýjar af nál­inni þótt hér hafi verið jóla­hald allt frá upp­hafi byggðar.

Við ákváðum að fara á stúf­ana og for­vitn­ast um jóla­hefðir hjá Aldísi leikkonu, Sylvíu Briem, eig­anda og verk­efna­stjóra, Braga Páli rit­höf­undi og Bergþóri Pálssyni stór­söngv­ara.

Aldís Amah Hamilton – leikkona

„Ég er enn þá að skapa mínar eigin hefðir þar sem þær hafa ekki verið margar. Síðustu jól voru öðru­vísi. Fram að þeim hafði ég alltaf unnið alla hátíð­ina svo tím­inn ein­kennd­ist af miklu stressi. Ég hafði aldrei tök á því að baka, elda, hitta vini að neinu viti eða slíkt. Svo Covid bjarg­aði svo­lítið jól­unum mínum í fyrra.

Ég og besta vin­kona mín gerðum sörur frá veganistum en fram að því hafði ég aldrei haft orku í bakstur á þessum árs­tíma. Það er ótrú­lega gaman að baka eitt­hvað sem ein­kennir jólin og er hægt að njóta bara á þeim árs­tíma. Það lyftir deg­inum aðeins, þótt það séu bara smákökur. Ég held þess vegna að bakstur sé ný hefð hjá mér.

Ein fjöl­skyldu­hefð er á afmæli mömmu. Það er á Þor­láks­messu og þá hitt­ist nán­asta fjöl­skylda og vinir á veit­inga­stað/kaffi­húsi í mið­bænum. Svolítið eins og opið hús nema hún þarf ekki að standa í græja boð degi fyrir aðfanga­dag. Mjög þægi­legt.Annars held ég að það verði líka hefð héðan í frá að taka mér meira frí um jólin. Bara gera minna og njóta meira … Það er lítil gleði í því að vera komin með óbragð í munn­inn af jól­unum þökk sé „jólastress­inu“!“

Bragi Páll Sig­urðs­son – rit­höf­undur

„Ætli lang­lífasta jóla­hefðin í minni fjöl­skyldu sé ekki sú að við setjum saman pip­ar­köku­hús og skreytum í kringum mán­að­ar­mótin nóv-des. Þessi hefð hófst þegar ég var barn. Þá var nú ekki hægt að kaupa svona fínar og for­bak­aðar plötur eins og nú, heldur þurfti að skera út og síðar stimpla veggi og þak húss­ins, baka og vona það besta. Afleið­ing­arnar voru þær að húsin urðu oft mjög list­ræn í hlut­föllum. Gald­ur­inn við pip­ar­köku­hús er þó sá að flestar syndir er hægt að fela með slatta af nammi og glassúr. Þessari hefð hefur svo móðir mín, Jóna Dís Braga­dóttir, haldið við, nán­ast árlega.

Ég man þegar ég var yngri og fór til ömmu og afa í Borgó yfir jólin, þá þurfti stundum að drífa sig að berja húsið saman á meðan rútan nálg­að­ist Mos­fellsbæ, því hefðin varð að standa. Eitt sinn þegar ég 8 ára tók ég svo þátt í pip­ar­köku­húsa-sam­keppni Kötlu. Ég skar sam­visku­sam­lega út hliðar og þak og lít­inn sætan stromp. Límdi allt saman með bráðnum sykri, sem er stór­hættu­legt fyrir barn að vinna með, en eina alvöru efnið í svona verk.

Húsinu skil­aði ég inn skreyttu og fal­legu og fór svo á sýn­ingu sem var í Kringl­unni á inn­sendum húsum. Þar hvíldi litli, skakki og strang­heið­ar­legi kof­inn minn, eins og illa gerður hlutur, innan um tröll­vaxna turna, háhýsi og dóm­kirkjur, aug­ljós­lega skorna út, bak­aða og skreytta af miklum fag­mönnum. Gluggar úr bræddum sykri, blikk­andi jóla­ser­íur og mek­anískir sveinar sem hringdu pip­ar­köku­klukkum.

Þetta fannst mér svo mikið kjaftæði að ég sór þess að taka aldrei aftur þátt. Stuttu eftir þetta var fag­mönnum bannað að taka þátt, en þeir bara réðu ekki við sig og tóku þátt í gegnum ætt­ingja og vini. Þetta var því alltsaman lagt af vegna þess að aug­ljós­lega fær eng­inn ráðið við keppn­is­skap íslenskra bak­ara, hvað þá um sjálf jólin.“

Sylvía Briem – eigandi og verkefnastjóri

„Ég er svaka­lega hefð­ar­gjörn og held fast í hefðir. Mér finnst jólin ekki endi­lega bundin við aðfanga­dag. Mér finnst jólin byrja 1. des­em­ber. Mér finnst ynd­is­legt að fara í Garð­heima og kaupa ferskt greni og greinar til þess að skreyta heim­ilið.

Mér finnst gaman að raða hefð­unum á helg­arnar rétt fyrir jólin. Þetta eru yfir­leitt svo góðar fjöl­skyldu­stundir. Mér finnst ynd­is­legt að rölta Laug­ar­veg­inn, fá mér jóla­bolla frá Tei og Kaffi. Jafnvel fara og fá mér heitt kakó í ein­hverjum vagni. Fara með strák­ana mína á skauta á Ing­ólfs­torgi. Baka jóla­smákökur. Skreyta pip­ar­kökur. Gera jóla­hlað­borð heima fyrir vini. Gera litlu jól með vin­kvenna­hópum í ljótum jóla­peysum. Skrifa jóla­kort og mynd­skreyta með strák­unum mínum

Ég kaupi yfir­leitt alveg eins jól­anátt­föt á okkur öll, mér finnst ynd­is­legt að fara út á sleða, fara svo inn, í jól­anátt­fötin og horfa á ein­hverjar skemmti­legar myndir. Oft eru þetta dýra­lífs­myndir, við fjöl­skyldan elskum það.

Ég reyni yfir­leitt alltaf að hreyfa mig eitt­hvað á aðfanga­dag, finnst gott að fara í rækt­ina. Finnst ég fá ferskan blæ og orku inn í dag­inn! Ég var dug­leg að fara í jólazumba hjá Hjarta­stöð­inni.“

Bergþór Pálsson – stórsöngvari

„Í all­mörg ár höfum við Albert haft þann sið að fara með pabba á aðfanga­dags­morgni í stóran hring með pínu­lít­inn glaðn­ing til vina og kunn­ingja. Þetta hafa t.d. verið sultur, kaffi, súkkulaði eða eitt­hvað ámóta og pabbi hefur lýst inni­hald­inu í bundnu máli með jóla­kveðju. Vísan er þá fest á pakk­ann. Þetta er ynd­is­legur túr, enda skína sæl eft­ir­vænt­ing og nota­leg­heit út úr hverju and­liti.

Yfir­leitt syng ég í Dóm­kirkj­unni við hátíð­ar­messu Dana á Íslandi kl. 15 á aðfanga­dag, þannig að nú orðið tek ég smá for­skot á sæl­una. Þessa hefð þykir mér mjög vænt um og hlakka alltaf til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi