Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gréta María er stjarna í viðskiptalífinu: „Pabbi kom í land einn dag í viku og þá mátti allt“

Gréta María er stjarna í viðskiptalífinu: „Pabbi kom í land einn dag í viku og þá mátti allt“
Gréta María Grét­ars­dóttir

Gréta María Grét­ars­dóttir, sem nýlega sagði upp starfi sínu sem fram­kvæmda­stjóri nýsköp­unar, sam­fé­lags­á­byrgðar og fjár­festa­tengsla hjá Brimi, er í við­tali við Reyni Trausta­son í Mann­líf­inu. Gréta nýtur mik­illar virð­ingar í við­skipta­líf­inu og er eft­ir­sótt til setu í stjórnum eða til að leiða fyr­ir­tæki. Hún ólst upp á Flateyri til 11 ára ald­urs og segir að það hafi verið frá­bært að alast þar upp.

„Ég hef oft hugsað um hvað móti mann þegar maður er spurður og maður hugsar af hverju maður er eins og maður er. Ég held að það að alast upp í svona þorpi eins og Flateyri skipti mjög miklu máli bara upp á sjálf­stæðið og annað sem maður fengi ekki í stærri sveit­ar­fé­lögum og bæj­ar­fé­lögum.“

Hún talar um nálægð­ina við nátt­úr­una á æsku­ár­unum. Hún lék sér í fjör­unni, niðri á bryggj­unni og inni í firði. „Maður fékk að ráða sér svo­lítið sjálfur.“ Hún seg­ist vera sjálf­stæð og að það hafi fylgt sér alla tíð og hún segir að sjálf­stæðið hafi mót­ast á árunum fyrir vestan.

Faðir Grétu Maríu, Grétar Krist­jáns­son, var skip­stjóri á tog­ar­anum Gylli. Móðir hennar sá að mestu um heim­ilið og börnin sex í landi.

„Það er ekk­ert eðli­leg ábyrgð að vera með sex börn og sjá um heim­ilið. Þetta er mikið álag og maður hefur hugsað varð­andi kven­rétt­indi; konur hafa barist fyrir jöfnum launum og annað en það er samt þannig að ennþá í dag, og sér­stak­lega hjá konum sem eru giftar sjó­mönnum og líka í öðrum sam­böndum, taka þær svo mikið af álagi heim­il­is­ins. Pabbi kom í land einn dag í viku og þá mátti gera allt. Fyrir mömmu að hafa allt í röð og reglu; það fór allt út um glugg­ann.“

Svo féll snjó­flóðið mann­skæða á Flateyri eftir að fjöl­skyldan flutti suður. Gréta María seg­ist hafa verið í skól­anum þegar hún frétti um snjó­flóðið. „Þetta er eins og með 11. sept­em­ber; maður man hvar maður var staddur.

Mér finnst vera erf­ið­ara að tala um það eftir því sem lengra líður; kannski af því að maður er eldri og þroskaðri. Bara hvað fólkið gekk í gegnum og upp­lifði. Árið 1995 var ég ennþá ung og ekki alveg að átta sig á þessu. Ég þekkti marga og þar á meðal Sólrúnu Ástu sem hafði verið mér í bekk. Hún lést.“

Gréta María talar um hvað lífið getur verið hverf­ult og getur breyst á stuttum tíma og að hvetji hana til að taka aldrei neinu sem gefnu. „Lífið er stutt.“

„Þetta er eins og með 11. sept­em­ber; maður man hvar maður var staddur

Gott að vera númer tvö

Gréta María stund­aði nám við Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð og lærði svo véla- og iðn­að­ar­verk­færði við Háskóla Íslands. „Raun­grein­arnar lágu vel fyrir mér þannig að verk­fræðin varð fyrir val­inu. Þetta var mjög fjöl­breytt og skemmti­legt nám og maður vissi að það væru svo miklir mögu­leikar sem hefur sýnt sig; ég er búin að vera í ólíkum geirum í atvinnu­líf­inu og alls staðar hefur bak­grunn­ur­inn og námið komið sér vel.“

Gréta María vakti athygli sem fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar.

„Ég var búin að vinna hjá Arion banka í nokkur ár og var þar for­stöð­ur­maður hag­deildar sem er með við­skipta­á­ætlun fyrir bank­ann. Síðan í fram­haldi af því hugs­aði ég með mér að mig lang­aði til að gera eitt­hvað meira. Ég varð fjár­mála­stjóri hjá Festi, sem er móð­ur­fé­lag sem átti Krónuna, Elko, Nóatún og Bakkann vöru­hótel, og síðan urðu eig­enda­skipti og þá tók ég við Krónunni.“

Hvað með sam­keppn­ina við Bónus?

„Við fórum mark­viss­ara að segja frá því hvað við vorum að gera og það þarf að hlusta á við­skipta­vin­ina; hverju þeir kalla eftir. Svo þarf að segja þeim hvað verið sé að gera sem er þá að upp­fylla þarfir þeirra bæði til dæmis varð­andi eins og ávexti og græn­meti en líka áherslur í umhverf­is­málum og vera svo­lítið leið­andi í þeim efnum. Það er alltaf gott að vera númer tvö af því að þá er alltaf hægt að sækja; það er oft frekar varn­ar­staða að vera stærstur á mark­aðnum.“

Hún er spurð um stra­teg­í­una og talar hún um ungu kyn­slóð­ina sem eru við­skipta­vinir fram­tíð­ar­innar og hvernig hægt sé að höfða til hennar.

„Ef hægt er að ná þeim þá er hægt að búa til góða stöðu.“ Hún nefnir líka tækn­ina og var hugað að því hvernig Krónan gæti verið á undan í tækn­inni. „Við vorum fyrst með sjálfs­af­greiðslu­kass­ana og síðan bjuggum við til app þannig að það var hægt að versla á net­inu og þegar Covid skall á þá vorum við til­búin.“

Gréta María segir frá­bært fólk vinna hjá Krónunni. „Það er fólk sem er búið að vinna lengi í geir­anum og svo fengum við frá­bært fólk með okkur sem var með mikla reynslu í öðru, er frá­bært á sínu sviði og kom inn með góða þekk­ingu. Þegar maður er stjórn­andi þá leggur maður alltaf áherslu á hvernig maður geti sett saman teymi sem nær góðum árangri. Það er gott að vera með fólk sem er með mikla reynslu en svo er alltaf heil­brigt að fá inn ferskt og nýtt blóð.“

Þegar maður er stjórn­andi þá leggur maður alltaf áherslu á hvernig maður geti sett saman teymi sem nær góðum árangri

Tæki­færin eru til að grípa þau og hóf Gréta María svo störf hjá Brimi.

„Ég hugsa þetta þannig að það skiptir ekki alltaf máli hvar maður er að vinna af því að verk­efnið er alltaf það sama: Hvernig á að ná betri árangri? Hvaða áherslur á að hafa og hvernig á að tengja við við­skipta­vin­ina og svo starfs­fólkið af því að það eru sér­fræð­ing­arnir? Hvernig á að virkja það? Þegar ég vann hjá Krónunni þá sagði ég oft að ég gæti setið allan dag­inn á skrif­stof­unni og ætlað að koma með ein­hverjar hug­myndir en hug­mynd­irnar eru frá fólk­inu sem er á gólf­inu. Það veit hvað þarf að gera. Og það er alveg sama hvort það sé í sjáv­ar­út­veg­inum eða þar: Það eru sömu grund­vall­ar­at­riði.“

Fyrirmyndir mikilvægar

Nú siglir Gréta María enn á ný mið en hún er að taka við sem for­stjóri hjá Arctic Adventures en fyr­ir­tækið er á meðal stærstu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja lands­ins.  Hún líkir þessu við önnur fyr­ir­tæki.

„Þetta er það sama: Það er verið að fá við­skipta­vini og það er mikil nálægð. Þeir eru ein­hvers staðar úti í nátt­úr­unni með leið­sögu­manni og það er gaman hvernig fólkið er þjálfað. Hvað vill við­skipta­vin­ur­inn? Eftir hverju er hann að leit­ast við að upp­lifa?“

Það er upp­bygg­inga­starf fram undan innan fyr­ir­tæk­is­ins en heims­far­ald­ur­inn hefur haft áhrif á rekst­ur­inn eins og svo víða.

„Fyr­ir­tækið velti rúmum sjö millj­örðum króna fyrir Covid en núna er það ekki nálægt því að vera þar en við munum svo sann­ar­lega kom­ast fljótt þangað aftur þegar við fáum ferða­menn til lands­ins.“

Gréta María er með stórar hug­myndir varð­andi fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins.

„Ég er alveg búin að pæla í því hvað við ætlum að gera og hvernig við ætlum að gera það. Það er öfl­ugt fólk til staðar,“ segir hún en það þarf að bæta við og hafa í huga hvernig eigi að þjálfa starfs­menn og virkja þá sem og hvernig eigi að ná til við­skipta­vina og skilja þarfir þeirra betur þannig að hægt sé að ná til fleiri. „Þarna er gríð­ar­lega hörð sam­keppni eins og í mat­vör­unni; það eru margir og mikil sam­keppni í verðum. Þetta þarf að sjálf­sögðu að vera vel rekið.“

Ég er alveg búin að pæla í því hvað við ætlum að gera og hvernig við ætlum að gera það

Gréta María er spurð hvernig stelpur sem vilja verða athafna­konur ættu að und­ir­búa sig og kom­ast í álnir. Hún segir að fyr­ir­myndir séu mik­il­vægar. „Vigdís Finn­boga­dóttir var for­seti þegar ég var að alast upp og þegar ég fór í verk­fræð­ina var Rannveig Rist for­stjóri álvers­ins. Þetta skiptir miklu máli.“ Hún segir að ungar stelpur eigi að vera óhræddar við að setja sig í sam­band við fólk sem þær telji að geti hjálpað sér. Og í versta falli fá þær „nei“. „Þá er eng­inn heimsendir.“ Hún segir að til þess að stýra fyr­ir­tæki skipti mestu máli að þekkja sjálfan sig vegna þess að það sé ekki hægt að hjálpa öðrum að vaxa ef við­kom­andi þekkir sjálfan sig ekki vel.

Ekki hægt að hjálpa öðrum að vaxa ef við­kom­andi þekkir sjálfan sig ekki vel

Gréta María æfði íþróttir áður fyrr og valdi á end­anum körfu­bolta og var hún þjálf­ari á tíma­bili og þjálf­aði um tíma meist­ara­flokk KR.

„Ég var oft að spá í hvar styrk­leik­arnir væru hjá hverjum og einum þannig að liðið yrði sem best,“ segir Gréta María sem líkir þessu við atvinnu­lífið. Hún segir að fólk geti ekki verið gott í öllu. „Þegar fólk vinnur við það sem það er gott í þá tekur það ennþá meiri fram­förum.“

Viðtalið á Vef-Tv er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi