Orri Björnsson forstjóri íslenska fyrirtækisins Algalíf hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir frábær störf sín – og að sjálfsögðu einnig hér á Íslandi.
Bandaríska tímaritið CIO Look hefur greinilega fylgst vel með störfum Orra hjá Algalífi og metur þau mikils, sem er enginn smá heiður; tímaritið hefur valið Orra Björnsson forstjóra Algalífs sem einn af tíu mest hvetjandi forstjórunum til að fylgjast með.

Orri er að gera frábæra hluti hjá Algalíf og svo sannarlega komið fyrirtækinu á kortið,stóra kortið.

Enda er þessi fyrrum einn allra besti keppandi Gettu betur frá upphafi og fyrrum handhafi Grettisbeltisins rómaður stjórnandi; ákveðinn og fylginn sér og það með afar jákvæðum hætti: Enda er hann virtur og vinsæll hjá starfsfólki sínu og kann að stjórna þannig að hann nær alltaf öllu því besta úr starfsfólki Algalífs, sem á ekki hvað sístan þátt í ævintýralegum uppgangi þess.

Til hamingju Orri og tilhamingju Algalíf!































Athugasemdir