Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bólusett Ingibjörg Dögg með Covid í annað sinn: „Hélt í vonina um að þetta væri misskilningur“

Bólusett Ingibjörg Dögg með Covid í annað sinn: „Hélt í vonina um að þetta væri misskilningur“
Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir rit­stjóri.

„Ég get víst ekki afneitað þessu lengur, ég er komin með Covid í annað sinn,“ skrifar Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Stund­ar­innar, sem sýkt­ist af kór­ónu­veirunni í annað sinn. Ingi­björg skrifar langan pistil um málið og útskýrir það hvernig það gat gerst að hún hefði veikst í annað sinn og það meira að segja tví­bólu­sett.

Með veiruna frá London

Þetta hófst með því að hún lagði leið sína til London með syni sínum.

„Daginn eftir síð­asta loka­prófið hans flugum við út og áttum saman dýrð­ar­daga. Lang­þráðan tíma saman, þar sem við gátum bara verið og notið lífs­ins. Á meðan við vorum úti var neyð­ar­á­standi lýst í London, en við urðum ekki mikið vör við það. Ekkert breytt­ist. Ekki eins og þegar ég var í Barcelona þegar útgöngu­bann skall á,“ skrifar hún.

Mæðginin fóru í sýna­töku, fylgdu sótt­varn­ar­reglum, báru grímur, spritt­uðu hendur og gættu fyllsta hrein­lætis.
„En það dugði ekki til, ég kom með veiruna heim. Þar sem ég hef áður fengið covid, alltaf mælst með sterkt mótefni og hef farið í tvær bólu­setn­ingar var þetta skráð sem vafasmit og ég kölluð í frek­ari mæl­ingar á Land­spít­al­anum á fimmtu­dags­morgun. Síðan fékk ég svörin, ég væri á ein­hverjum landa­mærum og skráð kannski með ómíkron í kerf­inu en sér­fræð­ingur ætti eftir að hringja í mig. Hann ætl­aði að hringja á fimmtu­dag, föstu­dag og áðan átti ég von á sím­tali eftir smá­stund. Framan af hélt ég í von­ina um að þetta væri mis­skiln­ingur og ég myndi losna úr ein­angrun, en var farin að sætt­ast við til­hugs­un­ina um að svona væri þetta bara þegar stað­fest­ingin barst loks end­an­lega rétt í þessu. Ég er víst ein af sirka þrjá­tíu sem hafa smit­ast aftur,“ skrifar Ingi­björg Dögg sem þarf að lík­indum að eyða jól­unum í ein­angrun frá sínum nán­ustu og öllum öðrum.

„Ég er í ein­angrun og verð í ein­angrun og veit ekki hversu lengi, lík­lega fram yfir jól er mér sagt en það verður að skýr­ast með tím­anum. Sér­fræð­ing­ur­inn bauð mér að koma aftur á mið­viku­dag til að mæla mótefni í blóð­inu, svo hver veit, kannski verð ég laus fyrir jól, kannski ekki. Starfs­menn Land­spít­al­ans hafa alla­vega lofað að mér verði aldrei aftur haldið í ein­angrun í 28 daga og segja að hér hafi margt lærst á þeim tíma sem er lið­inn frá því að ég veikt­ist í fyrra“.

Jóla­skinkan er alla­vega komin í pækil

Ingi­björg Dögg hrósar happi yfir því að aðstæður hennar eru breyttar frá því hún var inni­lokuð alein í rúm­lega 20 daga eftir fyrra smitið. „Nú erum við búin að gera breyt­ingar á aðstæð­unum sem gera mér kleift að standa upp, vera líka inni í stofu og stíga út til að anda að mér fersku lofti án þess að þurfa að hafa áhyggjur af öðrum heim­il­is­með­limum sem eru hér í sótt­kví. Ég er ekki ein og það munar mestu um það. Það er merki­legt hvað það getur verið gott að finna fyrir nær­veru ann­arra í hús­inu, heyra í börn­unum og geta jafn­vel spjallað aðeins saman á milli rýma. Þannig að þrátt fyrir allt verður þetta kannski bara heilandi reynsla. Ég finn alla­vega fyrir djúp­stæðu þakk­læti fyrir hvað líf mitt hefur breyst til betri vegar frá því að ég var síð­ast í sömu aðstæðum“.

Hún mun taka því sem að höndum ber en fagna því að fjöl­skylda hennar verður frjáls úr sótt­kví á næstu dögum.
„Börnin og Jón losna úr sótt­kví í vik­unni. Svo koma jólin og þau verða eins og þau verða. Jóla­skinkan er alla­vega komin í pækil og til­búin til mat­reiðslu þegar ég verð til­búin til að elda. Hún verður alveg jafn góð nokkrum dögum síðar“.

Pistill Ingi­bjargar í heild sinni:

Ég get víst ekki afneitað þessu lengur, ég er komin með Covid í annað sinn. Þetta gerð­ist þannig að ég lá uppi í rúmi með mígreni þegar sonur minn lædd­ist inn, sagð­ist vera búinn að finna hræó­dýrt flug fyrir okkur til London og spurði hvort hann mætti bjóða mér út. Þar sem ég hef ekki átt tíma ein með honum í marga marga marga mán­uði svar­aði ég án þess að hugsa: Ef þú borgar flugið skal ég borga hót­elið. Korteri seinna var þetta frá­gengið og búið að panta miða í leik­hús úti.

Daginn eftir síð­asta loka­prófið hans flugum við út og áttum saman dýrð­ar­daga. Lang­þráðan tíma saman, þar sem við gátum bara verið og notið lífs­ins. Á meðan við vorum úti var neyð­ar­á­standi lýst í London, en við urðum ekki mikið vör við það. Ekkert breytt­ist. Ekki eins og þegar ég var í Barcelona þegar útgöngu­bann skall á. Þannig að við röltum um borg­ina, fórum á söfn, í leik­hús og á jóla­mark­aði, dáðumst að jóla­ljós­unum og gleð­inni sem sveif yfir vötnum alls staðar þar sem við komum (nema þegar við heyrðum vin­konur ríf­ast um strák úti á götu og mættum ungum manni í ann­ar­legu ástandi sem gerði sig lík­legan til að ráð­ast á Lúkas), og hlógum með eða að fólk­inu sem brast í dans hér og þar og alls staðar. Við sáum mið­aldra konur dansa eftir göt­unum, alls­konar fólk bresta skyndi­lega í hóp­d­ans á horn­inu, föður dansa við dóttur sína í fata­búð og veikan mann dansa á veit­inga­húsi um leið og hann gerði sig lík­legan við konu í flegnum kjól með akk­eri flúrað á annað brjóstið. Hún var þarna með kærast­anum sínum en tók svo fal­lega á móti þessum manni að hann bara brosti og hélt áfram að dansa, út af staðnum og inn í nótt­ina. Lúkas eyddi sum­ar­laun­unum í fata­búðum og sýndi mér mikla bið­lund í bóka­búðum og á end­anum komum við bæði hlaðin bókum heim, sem sætti furðu því hver kaupir jú bækur nú til dags og hvað þá burð­ast með þær á milli landa þegar það er hægt að fá allt á net­inu. (Kannski er meira af ömmu minni í mér en ég vil við­ur­kenna en hún fyllti ferða­töskur af rúg­brauði og bókum.)Við fórum í sýna­töku, fylgdum sótt­varn­ar­reglum, bárum grímur, spritt­uðum hend­urnar og gættum fyllsta hrein­lætis en það dugði ekki til, ég kom með veiruna heim.Þar sem ég hef áður fengið covid, alltaf mælst með sterkt mótefni og hef farið í tvær bólu­setn­ingar var þetta skráð sem vafasmit og ég kölluð í frek­ari mæl­ingar á Land­spít­al­anum á fimmtu­dags­morgun. Síðan fékk ég svörin, ég væri á ein­hverjum landa­mærum og skráð kannski með ómíkron í kerf­inu en sér­fræð­ingur ætti eftir að hringja í mig. Hann ætl­aði að hringja á fimmtu­dag, föstu­dag og áðan átti ég von á sím­tali eftir smá­stund. Framan af hélt ég í von­ina um að þetta væri mis­skiln­ingur og ég myndi losna úr ein­angrun, en var farin að sætt­ast við til­hugs­un­ina um að svona væri þetta bara þegar stað­fest­ingin barst loks end­an­lega rétt í þessu. Ég er víst ein af sirka þrjá­tíu sem hafa smit­ast aftur.Ég er í ein­angrun og verð í ein­angrun og veit ekki hversu lengi, lík­lega fram yfir jól er mér sagt en það verður að skýr­ast með tím­anum. Sér­fræð­ing­ur­inn bauð mér að koma aftur á mið­viku­dag til að mæla mótefni í blóð­inu, svo hver veit, kannski verð ég laus fyrir jól, kannski ekki. Starfs­menn Land­spít­al­ans hafa alla­vega lofað að mér verði aldrei aftur haldið í ein­angrun í 28 daga og segja að hér hafi margt lærst á þeim tíma sem er lið­inn frá því að ég veikt­ist í fyrra. Svo langvar­andi ein­angrun tók samt sinn toll af mér og ég finn fyrir því núna. Eftir að hafa verið inni­lokuð inni í svefn­her­bergi í tvo sól­ar­hringa fór ég bara að gráta, keyrði burt og slökkti á sím­anum. Á meðan gekk ölv­aður ókunn­ugur maður inn í húsið og neit­aði að fara þegar börnin reyndu að reka hann út.Nú erum við búin að gera breyt­ingar á aðstæð­unum sem gera mér kleift að standa upp, vera líka inni í stofu og stíga út til að anda að mér fersku lofti án þess að þurfa að hafa áhyggjur af öðrum heim­il­is­með­limum sem eru hér í sótt­kví. Ég er ekki ein og það munar mestu um það. Það er merki­legt hvað það getur verið gott að finna fyrir nær­veru ann­arra í hús­inu, heyra í börn­unum og geta jafn­vel spjallað aðeins saman á milli rýma. Þannig að þrátt fyrir allt verður þetta kannski bara heilandi reynsla. Ég finn alla­vega fyrir djúp­stæðu þakk­læti fyrir hvað líf mitt hefur breyst til betri vegar frá því að ég var síð­ast í sömu aðstæðum.Börnin og Jón losna úr sótt­kví í vik­unni. Svo koma jólin og þau verða eins og þau verða. Jóla­skinkan er alla­vega komin í pækil og til­búin til mat­reiðslu þegar ég verð til­búin til að elda. Hún verður alveg jafn góð nokkrum dögum síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi