Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halldór er ekki hrifinn af nýju nafni Sambó: „Sambó verður að Skít í munni túrista“

„Sambó verður að Skít í munni túrista“ Þetta segir Halldór Högurður, ráð­gjafi með meiru, í færslu á Facebook-síðu sinni. Vísar hann þar í frétt DV sem birt­ist í dag og greindi frá því að sæl­gæt­is­fram­leið­and­inn Kólus hefði breytt nafn­inu á Sambó sæl­gæti sínu yfir í Sanbó. M-inu hefur sem sagt verið skipt út fyrir N.

Halldór er ekki hrifinn af nýju nafni Sambó: „Sambó verður að Skít í munni túrista“
„Sambó verður að Skít í munni túrista“

Þetta segir Halldór Högurður, ráð­gjafi með meiru, í færslu á Facebook-síðu sinni. Vísar hann þar í frétt DV sem birt­ist í dag og greindi frá því að sæl­gæt­is­fram­leið­and­inn Kólus hefði breytt nafn­inu á Sambó sæl­gæti sínu yfir í Sanbó. M-inu hefur sem sagt verið skipt út fyrir N.
Sælgæti fyr­ir­tæk­is­ins er sívin­sælt, sér­stak­lega lakk­rís­inn, en síð­ustu ár hefur borið nokkuð á gagn­rýn­is­röddum vegna Sambó nafns­ins. Nafnið hefur af mörgum verið talið rasískt. Máli sínu til stuðn­ings hafa ýmsir bent á skírskotun nafns­ins í gömlu barna­bók­ina Litli svarti Sambó, en fram­setn­ing bók­ar­innar á svörtu fólki þykir bæði afar óvið­eig­andi og for­dóma­full og hefur verið gagn­rýnd mikið síð­ustu ár.

Segir nafnið koma frá rússneskri bardagaíþrótt

Fram­kvæmda­stjóri Kólus, Snorri Páll Jónsson, hefur þver­tekið fyrir þetta og rakið nafn­gift­ina til rúss­nesku bar­daga­í­þrótt­ar­innar Sambó.

Í sam­tali við DV í dag segir Snorri nafna­breyt­ing­una koma til vegna ásak­ana um ras­isma. Hann talar sér­stak­lega um að þegar ferða­menn leiti að sæl­gæt­inu á net­inu fái þeir upp ásak­anir um kyn­þátta­for­dóma í stað sæl­gæt­is­ins.

Snorri vill meina að sumir séu ekki til­búnir til þess að átta sig á því að nafnið eigi sér ekki rasískan upp­runa. Að end­ingu hafi verið ákveðið að nota Sanbó í aug­lýs­ingar fyrir ferða­manna­mark­að­inn. Snorri segir fyr­ir­tæk­inu hafa leiðst þetta og ákveðið að lúta í lægra haldi. Það sé umræða á sam­fé­lags­miðlum sem eyði­leggi orð­spor sæl­gæt­is­ins.

Af umbúðum Sambó.

Í fyrra var hrundið af stað und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess var kraf­ist að nafn­inu yrði breytt. Í grein Grapevine frá árinu 2015 var málið tekið fyrir og fyr­ir­tækið harð­lega gagn­rýnt. Þar fylgdu meðal ann­ars myndir af gömlum kassa utan af Sambó lakk­rís, hvar sjá má svartan dreng með tígris­dýr á hæl­unum á sér, sem rímar tví­mæla­laust við sög­una um Litla svarta Sambó.

Skeiniprik Búddista til forna

Svo vikið sé aftur að færslu Halldórs Högurðar, sem hefur sopið ýmsa fjör­una í mark­aðs­málum, er það að sjá að honum finn­ist Kólus ekki endi­lega hafa valið vel þegar nýtt nafn var sett á sæl­gætið.

„Það þarf bók­staf­lega að ANAL-ísera íslenska sæl­gæt­is­fram­leið­endur. Opal brill­er­aði í Danmörku um árið með „OBAL“ og nú ætlar Sambó að kalla sig Sanbó í frí­höfn­inni en Sanbo er í ensku slangri skipt út fyrir shit í oh shit og því gæti fyr­ir­sögnin verið „Sambó verður að Skít í munni túrista“

Einnig er Sanbo eitt þeirra orða sem notað var yfir skeiniprik búddista til forna. Þessir sæl­gæt­is­fram­leið­endur virð­ast vera með haus­inn upp í rass­gat­inu hvað nafna­giftir varðar. Verandi ráð­gjafi í mark­aðs­málum er það hobbí hjá mér að googla ný nöfn á fram­leiðslu­vörum, það er ekki leið­in­legt hobbí,“ segir Halldór Högurður að lokum.

Samsett mynd Halldórs Högurðar af frétt DV og þýð­ing­unni á slangr­inu Obal í Urban Dictionary.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi