Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig kennir syninum heima: „Troðum námi í kvíðin börn og skilj­um ekki erfiðleika þeirra“

Sólveig kennir syninum heima: „Troðum námi í kvíðin börn og skilj­um ekki erfiðleika þeirra“

Sól­veig Svav­ars­dóttir, kenn­ari og fjö­urra barna móðir aðhyllist hæglætslífs­stíl auk þess sem hún kennir syni sínum, sem er í öðrum bekk, heima.Sólveig er vara­for­maður Hæg­læt­is­hreyf­ing­ar­inn­ar og held­ur úti ásamt nokkr­um öðrum heima­síð­unni

Hæg­læti.is.

Á síð­unni er hægt að nálg­ast mikið magn af praktísk­um upp­lýs­ing­um um hvernig fólk geti til­einkað sér ró­legri lífs­stíll og hvers­dag.Hæg­læt­is­hreyf­ingin er hreyf­ing fólks sem hefur til­einkað sér eða hefur áhuga á að til­einka sér hæg­læti (

e. slow liv­ing

).Hæglæti er svar við hraða og streitu sam­fé­lags­ins sem leiðir marga inn í kulnun, kvíða og upp­gjöf. Hæglæti er val um að lifa með­vit­aður og að hafa stjórn á og val um það hvernig maður ver tíma sínum; það er að vera með­vit­aður um að maður hefur alltaf val um ákvarð­anir og aðstæður og þar með að upp­lifa sig ábyrgan fyrir eigin líðan, heilsu og sam­skiptum sínum við aðra.

Að lifa í hæg­læti er að vera í núvit­und: Að vera vak­andi og með athygli á líð­andi stund; að heyra vel og hlusta; að anda og njóta; að velja með­vitað að tak­marka streitu; taka sér minna fyrir hendur og gera færri hluti. Og ekki síst að beina athygl­inni frekar að því að

vera

í stað þess að vera upp­tek­inn af því að

gera

æðis­lega mikið.Í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­hús­inu með Gunnari og Davíð Wiium var rætt við Sólveigu Svav­ars­dóttu, kenn­ara og fjö­urra barna móður sem aðhyllist hæg­læt­is­lífs­stíl auk þess sem hún kennir syni sínum sem er í öðrum bekk, heima.Hæg­lætið vill Sól­veig meina að sé svar við hraða og streitu sem svo marg­ir upp­lifa í nú­tíma sam­fé­lagi, með til­heyr­andi af­leið­ing­um, svo sem kuln­un, kvíða og upp­gjöf.„Ég held að það séu ákveðnar týp­ur sem fara í kuln­un,“ seg­ir Sól­veig og bætir við:„Full­komn­un­ar­áráttu­kvíða­týp­ur, svona eins og ég var, fara bara út í lífið og ætla bara að vera með þetta. Þurfa að vera ógeðs­lega flott­ar á yf­ir­borð­inu, vera í þessu og hinu, með ógeðs­lega góðar ein­kunn­ir, vera í ógeðs­lega góðu formi og allt þetta.“

Eitt af mik­il­væg­ustu verk­fær­um Sól­veig­ar og henn­ar stóru fjöl­skyldu er úti­ver­an.

Í því sam­hengi held­ur hún úti In­sta­gram-reikn­ingn­um úti­vera og börn­in. Þar skrá­set­ur hún alla sína fjöl­breyttu úti­veru með fjöl­skyld­unni sem hún deil­ir með öðrum og þeim ótelj­andi mögu­leik­um sem ís­lensk nátt­úra hef­ur upp á bjóða til úti­vist­ar.

„Ég held að við, full­orðna fólkið, get­um al­veg nýtt okk­ur börn­in meira til þess að ná okk­ur til­ baka því við vor­um einu sinni börn og þau eru snill­ing­ar í nú­vit­und. Meðvitað geri ég það stund­um að elta börn­in mín í stað þess að þau séu að elta mig, vera á þeirra hraða, skoða hlut­ina með þeim, hætta að reka á eft­ir þeim,“ seg­ir Sól­veig.Sól­veig sem er kenn­ara­menntuð, er ein fjög­urra ein­stak­linga hér á landi sem er með barnið sitt í heima­skóla.Son­ur henn­ar sem er í öðrum bekk stund­ar nám eft­ir náms­skrá heima fyr­ir með móður sinni í stað þess að ganga í skóla eins aðrir jafn­aldr­ar hans. Sól­veig seg­ir þessi ákvörðun vera í beinni teng­ingu við hæg­læt­is­lífs­stíl­inn sem hún hef­ur til­einkað sér; seg­ir hefð­bund­inn átta tíma skóla­dag­ geta verið stút­full­ur af mikl­um hraða og streitu, sem hent­ar ekki öll­um börn­um.

Stór­ir bekk­ir, sam­hliða svo­köll­uðu ein­stak­lings­mið­uðu námi í mennta­kerf­inu, ganga ekki upp að mati Sól­veig­ar:

„Ég kenndi ell­efu nem­end­um minn drauma­vet­ur og það var dá­sam­legt. Ég náði utan um hóp­inn og var meira að segja með góðan stuðn­ings­full­trúa með mér, því­lík­ur ár­ang­ur, því­lík ánægja hjá for­eldr­um og gæði í kennslu,“ seg­ir Sól­veig.

Heima­kennsla hent­ar ekki öll­um börn­um, en hent­ar syni Sól­veig­ar. Hún sinn­ir kennsl­unni í sam­vinnu við hverf­is­skól­ann og skil­ar inn kennslu­áætlun þar sem mark­mið vetr­ar­ins eru skil­greind.

Kennslu­dag­ur­inn byrj­ar oft ró­lega, enda er hún með þrjú önn­ur börn sem hún þarf að koma af stað út í dag­inn.

Þar næst taka við ýmis störf tengt því að fóðra hæn­urn­ar og kan­ín­urnar, sem og út að ganga úti með hund­ana sína tvo.

Um klukkan tíu hefst svo bók­legt nám, sem get­ur staðið fram að há­deg­is­mat. Rest­in af deg­in­um fer í hefð­bund­in störf af ýmsu tagi inni á heim­il­inu, eða í garð­inum. Til­tekt, matseld, fönd­ur og hand­verk.

Maður Sól­veig­ar er sjó­maður, hann er í því kerfi að hann er þrjár vik­ur í landi, og svo þrjár  vikur úti á sjó.

Á meðan hann er í landi tek­ur hann að sér al­mennt hand­verk með drengn­um; svo sem smíði í bíl­skúrn­um, svo eitt­hvað sé nefnt.

„Þessi litli skóli, sem ég er ekki enn búin að nefna, hefur það sem aðal­mark­mið að börnum líði vel; ein­stak­ling­ar sem verður sátt­ur við lífið og til­ver­una: Það er núm­er eitt tvö og þrjú,“ seg­ir Sól­veig.

„Ef þér líður vel þá get­ur þú lært, ef þér líður illa og ert með kvíða og streitu átt þú bara erfitt með að læra, og við erum alltof oft að troða ein­hverju ofan í bull­andi kvíðin börn og skilj­um svo ekki af hverju þau eiga erfitt með að læra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi