Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðventukransinn og kertanöfnin

Aðventukransinn og kertanöfnin

Aðventu­kransar eiga rætur að rekja til árs­ins 1839, þegar þýski guð­fræð­ing­ur­inn Johann Hinrich Wichern kynnti þá til sög­unnar í tengslum við trú­boðs­starf sitt.

Aðventu­krans Wicherns var því frá­brugð­inn kröns­unum eins og við þekkjum þá í dag, því auk þess að vera prýddur fjórum stórum kertum, einu fyrir hvern sunnu­dag í aðventu, var á honum einnig að finna mörg lítil rauð kerti.

Fjöldi litlu kert­anna var breyti­legur, allt eftir því hve margir virkir dagar voru frá fyrsta sunnu­degi í aðventu fram á aðfanga­dags­kvöld.

Vagnhjól sem aðventukrans

Wichern not­aði gam­alt vagn­hjól í fyrsta aðventu­krans­inn sinn sem gefur til kynna að honum hafi verið kunn­ugt um eldri hefðir þegar hann inn­leiddi þennan sið.

Kransa­hefðin er nefni­lega þekkt í gömlum heim­ildum þar sem tákn­fræði hjóls­ins er getið.

Á mið­öldum var aðventu­krans­inn lát­inn tákna hjól árs­ins sem allt fram á dimmasta dag árs­ins hafði snú­ist heilan hring og var nú í þann veg að færa mönn­unum aftur birtu og yl.

Kerta­ljósa­hefðin á rætur að rekja aftur í heiðni þegar mesta skamm­deg­inu var fagnað með sól­stöðu­há­tíðum sem færðu fólki birt­una á nýjan leik.

Og svo kom greni…

Wichern léði aðventu­krans­inum nútíma­lega merk­ingu, þó svo að það hafi ekki gerst sam­stundis.

Í kringum árið 1860 þakti hann hjólið með greni og þótti beitt grenið minna á þyrni­kór­ón­una sem Jesús bar þegar hann var kross­festur.

Rauð eða hvít aðventuljós

Wichern léði litum kert­anna jafn­framt mikla merk­ingu en hann valdi hvít kerti sem tákn um sak­leysi og rauð lét hann svo tákna ást eða kær­leika. Hér lenti hann þó í vand­ræðum.

Margir kirkj­unnar menn töldu nefni­lega að kertin ættu að vera fjólu­blá, því það væri kirkj­unnar litur fyrir aðvent­una.

Allar götur síðan hafa aðventu­hefðir skipst í tvennt.

Aðventu­krans­inn var svo lík­lega inn­fluttur til Íslands af dönskum kaup­mönnum og sást fyrst í tveim stærstu bæjum lands­ins Reykja­vík og Akureyri. (Árni Björns­son, 2000: 334).

Þessi siður kom til Íslands um 1940 og var í fyrstu aðal­lega not­aður til að skreyta búð­ar­glugga en á milli 1944 og 1950 fer hann að birt­ast á borðum þeirra efna­meiri og jafn­framt því fara versl­anir að selja aðventu­krans­inn um og upp úr 1960 (Árni Björns­son, 2000: 334).

Í blaða­grein með mynd af aðventu­kransi hang­andi neðan úr lofti á einka­heim­ili í Reykja­vík, segir svo: „síð­ustu árum eru margir hér á landi farnir að hafa í húsum sínum aðventu­krans­inn“ (Jón Auðuns, 1960: 3). Svo greini­legt er að lands­menn hafa verið nokkuð fljótir að með­taka þennan sið enda nýj­unga­girni Íslend­inga ann­áluð.

Þróun kransins

Frá 1954 til 1978 er oft­ast minnst á aðventu­krans­inn í alls konar blöðum og tíma­ritum. Fyrsta skýra leið­sögnin um tendrun og notkun á aðventu­krans­inum er umfjöllun í Morg­un­blað­inu 5. des. 1954, bls. 24, (279 tbl.) en þar segir:

Síð­ast­lið­inn sunnu­dag var fyrsti sunnu­dagur í jóla­föstu. Þann dag tendr­uðu þús­undir manna um gjörvallan heim fyrsta jóla­ljósið – kveikt var á fyrsta kert­inu í jóla­föstu­krans­inum eða aðventu­krans­inum….Kransinn hangir í fjórum silki­borðum, sem eru festir í hnúð sem er ofan á 35-40 sm. langri stöng, sem stendur á fæti…Verðið ykkur úti um aðventu­krans fyrir næsta sunnu­dag, þá er kveikt á þremur kertum, og þannig bæt­ist alltaf eitt kerti við, þar til kveikt hefur verið á öllum (Mbl. 5. des. 1954, bls. 24, 279 tbl.).

Eftir þetta fer umfjöll­unum að fjölga jafnt og þétt, sér­stak­lega eftir 1960. Þessir silki­borðar sem hér er sagt frá í lýs­ing­unni hurfu þó rétt um og eftir 1974 og var það fyrst og fremst að völdum umræðu um hættu á sjálfsíkveikju en einnig vegna breyt­inga í jóla­skreyt­ingat­ísku (Val­gerður Valde­mars­dóttir, 2007).

Kertin fá þó ekki opin­ber­lega nöfn fyrr en í des­em­ber 1978 þegar Jón Dalbú Hró­bjarts­son, Karl Sig­ur­björns­son og Sigurður Pálsson eru ráðnir til við að skrifa í jóla­dálka Morg­un­blaðs­ins og skipta þeir með sér verkum. Fellur aðventu­krans­inn í hlut séra Karls Sig­ur­björns­sonar (Karls Sig­ur­björns­son, 2006).

Hér koma kerta­nöfnin fram í eft­ir­far­andi röð:

– Spá­dóma­kerti; Morg­un­blaðið 3. des­em­ber 1978, bls. 68.

– Bet­lehems­kerti; Morg­un­blaðið 10. des­em­ber 1978, bls. 66.

– Hirða­kerti; Morg­un­blaðið 17. des­em­ber 1978, bls. 56.

– Engla­kertið, kemst þó ekki á prent fyrr en í Morg­un­blað­inu 20. des, 1981.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi