Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rapparinn með rafbyssuna – Uppnám á X-inu: „Ég hleyp í burtu og hann reynir að stinga mig“

Rapparinn með rafbyssuna – Uppnám á X-inu: „Ég hleyp í burtu og hann reynir að stinga mig“

Þann 15. febr­úar árið 2010 varð uppi fótur og fit á útvarps­stöð­inni X-inu 977, í húsa­kynnum 365 miðla í Skafta­hlíð.

Þar veitt­ist rapp­ar­inn Magnús Ómarsson, betur þekktur sem Móri, að rapp­ar­anum Erpi Eyvind­ar­syni með hníf. Hann var einnig vopn­aður raf­byssu, með Doberman-hund sér við hlið. Erpur varð­ist árás Móra með skúr­ingamoppu.

Lögreglu var umsvifa­laust gert við­vart og voru fjórir lög­reglu­bílar sendir á svæðið. Þegar lag­anna verði bar að garði var Móri hins­vegar á bak og burt.

Erpur sagðist hafa uppgötvað Móra

For­mál­inn að atvik­inu var sá að þeir Erpur og Móri höfðu átt í hörðum deilum og orða­skaki dag­ana fyrir árás­ina. Mennina greindi á um það hvor þeirra væri meiri frum­kvöð­ull í rappi á Íslandi. Erpur hafði til að mynda sagt í útvarps­þætt­inum Harma­geddon á X-inu að hann hefði upp­götvað Móra á sínum tíma. Hann sagð­ist hafa fundið Móra í ræs­inu fyrir utan Nonna­bita.

Erpur sagði Móra hafa verið algjör­lega óþekktan þegar hann rapp­aði í lag­inu XII vanda­mál á fyrstu Rottweiler-plöt­unni. „Það sem hann er að væla yfir er það – sem allir vita; stað­reynd – að það hafði eng­inn heyrt í Móra rappa þegar hann rappar á fyrstu Rottweiler-plöt­unni sem kom út árið 2001,“ sagði Erpur í sam­tali við Vísi þegar deil­urnar stóðu sem hæst, nokkrum dögum fyrir atvikið á 365. „Hann getur vælt enda­laust og vaðið í kanna­bis­skýi mis­skiln­ings, en ári seinna kom platan hans út,“ sagði Erpur.

Hljóm­sveitin XXX Rottweiler hundar.

Sagði Erp vera að endurskrifa söguna

Stuttu síðar sagði Móri í við­tali við Frétta­blaðið að hann væri búinn að rappa síðan Erpur var í bleyju.

Móri hafði hringt inn í Harma­geddon þegar Erpur lét þar gamm­inn geisa um meinta upp­götvun sína á honum. Hann sagð­ist hafa ákveðið að hringja inn og sagði Erp hafa verið „eins og kúkur“.

Móri sagði við Erp í sím­ann að hann væri að end­ur­skrifa sög­una. Því næst stakk hann upp á því að þeir Erpur myndu hitt­ast undir fjögur augu og ræða málin. „Hann ætl­aði að hringja í mig eftir þátt­inn en er ekki ennþá búinn að því,“ sagði Móri í sam­tali við Vísi.

Erpur bætti um betur með eft­ir­far­andi ummælum fyrir sömu frétt á Vísi:

„Móri er gang­andi sönnun þess að kanna­bis­efni eru ekki skað­laus.“

Móri hafði verið fram­ar­lega í bar­áttu fyrir lög­leið­ingu kanna­bis­efna, svo þetta var fast skotið hjá Erpi.

Átti að vera sáttafundur

Viðtalið örlaga­ríka í útvarps­þætt­inum Harma­geddon á X-inu þennan febr­ú­ar­dag átti að leiða þá Erp og Móra saman, svo þeir gætu sæst. Það fór þó ekki betur en eins og fyrr sagði.

Móri hafði mætt á undan Erpi í húsa­kynni 365. End­ur­bætur stóðu yfir á útvarps­sviði 365 á þessum tíma og búið var að rífa allt úr úr and­dyr­inu. Móri beið Erps í mann­lausu rým­inu. Þegar Erpur mætti á svæðið lagði Móri til atlögu með hund­inn sér við hlið og elti Erp um her­bergið með hníf­inn á lofti. Myndband náð­ist af atvik­inu. Hund­ur­inn virt­ist þó ekki í sér­stökum víga­ham og var frekar spakur.

Um klukku­stund eftir að lög­reglu bar að garði gaf Móri sig fram.

Sagði Móra hafa reynt að drepa sig

Í frétt sem birt­ist á Vísi dag­inn eftir atvikið sagð­ist Erpur ætla sér að kæra árás­ina. Hann full­yrti að Móri hefði reynt að drepa hann. Í sam­tali við Frétta­blaðið sagð­ist Móri hins­vegar meta atvikið þannig að Erpur hafi ráð­ist á sig, og sagð­ist ætla að kæra þann síð­ar­nefnda fyrir lík­ams­árás. Erpur meidd­ist lít­il­lega í árásinni og hlaut ein­hverjar skrámur.

Þessi hundur var lat­asti hundur sem ég hef séð

Í sam­tali við Vísi í ofan­greindri frétt sagði Erpur eft­ir­far­andi um máls­at­vik:

„Hann ýtir í mig og fer að þenja sig. Ég gríp þá í hann og keyri á hann. Hann dettur og fer að kýla mig.

Þegar ég held honum niðri dregur hann upp hníf og byrjar og sveifla honum á fullu. Ég hleyp í burtu og hann reynir að stinga mig. Ég tek þá moppu og lem hann í haus­inn.“

Hann sagði Móra því næst hafa hrökkl­ast í burtu.

„Þessi hundur var lat­asti hundur sem ég hef séð. Ég þakka fyrir það,“ sagði Erpur enn­fremur, um stóra fer­fætling­inn sem Móri hafði sér til halds og trausts.

„Aldrei gerst áður á Íslandi“

Frosti Logason, fjöl­miðla­maður og annar stjórn­enda Harma­geddon, reyndi að stöðva Móra þegar hann réð­ist að Erpi með hnífnum. Hugs­an­lega er það að ein­hveru leyti skjótum við­brögðum Frosta að þakka að ekki fór verr.

„Þetta er einn æsi­leg­asti þátt­ur­inn sem ég hef verið í,“ sagði Frosti þegar blaða­maður hafði sam­band við hann stuttu eftir árás­ina. Hann átti þá enn eftir að gefa skýrslu um málið hjá lög­reglu.

Rit­höf­und­ur­inn, leik­skáldið og tón­list­ar­mað­ur­inn Halldór Laxness Hall­dórs­son, betur þekktur sem Dóri DNA, sagði íslenska rapp­heim­inn hrein­lega í sjokki eftir að fregnir bár­ust af atburð­inum. Á þessum tíma hélt Dóri úti rapp­þætt­inum Haf­örn­inn á Rás 2. Hann var sjálfur rapp­ari og þekkti vel til rapptón­list­ar­heims­ins.

„Þetta hefur aldrei gerst áður á Íslandi,“ sagði Dóri.

Hann sagði að svona árás kall­aði ekki á hefnd, eins og þekkt væri til dæmis í rapp­sen­unni í Banda­ríkj­unum. Hann sagði málið eiga að fara sína leið í dóms­kerf­inu.

„Ég meina, við erum bara full­orðnir menn í vinnu og námi. Við getum ekki staðið í svona kjaftæði,“ sagði Dóri meðal ann­ars í sam­tali við Vísi á sínum tíma.

Lögregla taldi árásina sviðsetta

Svo fór að Erpur kærði Móra fyrir til­raun til mann­dráps. Málið var hins­vegar fellt niður eftir stutta rann­sókn. Ástæðan var sú að lög­regla taldi árás­ina hafa verið svið­setta.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, rétt­ar­gæslu­maður Erps, var afar ósáttur við þá nið­ur­stöðu og kærði hana til Rík­is­sak­sókn­ara, sem tók undir það sjón­ar­mið að rann­saka þyrfti málið betur.

Heilum þremur árum eftir árás­ina, árið 2013, var Móri ákærður fyrir hafa hótað Erpi þennan dag árið 2010 í húsa­kynnum 365.

„Ég kærði það til Rík­is­sak­sókn­ara sem fól lög­reglu að rann­saka málið betur – enda var það algjör­lega órann­sakað – sem leiddi síðan til þess að þessi ákæra var gefin út,“ sagði Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son við það til­efni.

Móri var ákærður fyrir að hafa hótað Erpi „með því að hafa elt Erp með hníf í hendi í and­dyri 365 – hátt­semin var til þess fallin að vekja hjá Erpi ótta um líf sitt, heil­brigði og vel­ferð.“ Refsing við slíku broti gat varðað allt að tveggja ára fang­elsi en væg­asta refs­ing voru sektir. Móri var einnig ákærður fyrir vopna­laga­brot, vegna raf­byssunnar sem hann bar þennan dag í Skafta­hlíð.

Dómur kveðinn upp

Ákæran var þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 18. apríl árið 2013. Móri ját­aði þar sök í mál­inu og hér­aðs­dóm­ar­inn lauk mál­inu strax á staðnum með sekt­ar­gerð.

Móri var dæmdur til að greiða heilar 50.000 krónur í sekt í rík­is­sjóð fyrir hátt­semi sína þremur árum fyrr. Sak­sókn­ar­inn hafði farið fram á að hann yrði sektaður um 100.000 krónur. Móri mót­mælti því og sak­sókn­ari féllst á að lækka kröf­una um helm­ing.

Rafbyssa Móra var einnig gerð upp­tæk.

„Góðir í dag? Ertu geðveikur?“

Árið 2017 var Erpur Eyvind­ar­son gestur í Grettistaki, hlað­varpi á Kjarn­anum. Þar sagði hann að deilur hans og Móra hefðu upp­runa­lega verið blásnar upp í fjöl­miðlum.

„Fjöl­miðlar vilja alltaf hafa eitt­hvað svona rapp­stríð.“

Erpur lýsti því hvernig Móri hefði komið að honum með hníf­inn og raf­byss­una – og hund­inn, sem Erpur sagð­ist reyndar ekki alveg hafa skilið hver mein­ingin var með.

„Hann var með ein­hvern Doberman-hund, sem var reyndar bara sof­andi eða eitt­hvað. Ég veit ekki alveg hvað var að þessum hundi sko, hann var bara með alls­konar grein­ingar.“

Þegar þátta­stjórn­andi spurði Erp hvort þeir Móri hefðu grafið stríðs­öx­ina og væru „góðir í dag“, skellti Erpur upp úr. „Ég hef ekk­ert hitt mann­inn. Góðir í dag? Ertu geð­veikur? Heldurðu að við séum bara…. Það er eitt að vera Árni Johnsen að vera hálf­viti; það er annað að koma á eftir manni með hníf. Það er aðeins önnur saga. Þannig að nei, auð­vitað erum við ekki góðir í dag.“

Erpur Eyvind­ar­son. Skjáskot úr mynd­bandi lags­ins „Fyr­ir­liði“.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi