Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dómur fallinn í SSF málinu:„Ég lít á þennan dóm sem staðfestingu á því að stéttarfélagið sveik mig“

Dómur fallinn í SSF málinu:„Ég lít á þennan dóm sem staðfestingu á því að stéttarfélagið sveik mig“
Hilmar Vilberg Gylfason Mynd: Aðsend

Dómur er fall­inn í máli Hilmars Vilbergs Gylfa­sonar, fyrrum fjár­mála­stjóra Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja, gegn sam­tök­unum. Sakaði Hilmar fram­kvæmd­ar­stjóra SSF meðal ann­ars um ofbeldi og ein­elti gegn sér en Hilmari var sagt upp starfi er hann var í veik­inda­leyfi.

Hilmar vann 2 liði af 5 í stefnu sinni fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Var Frið­berti Trausta­syni, fram­kvæmd­ar­stjóra SSF gert að greiða Hilmari 1.023.350 krónur með drátt­ar­vöxtum sam­kvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 31/2001 um vexti og verð­trygg­ingu frá 10. des­em­ber 2020 til greiðslu­dags. Hilmar hafði kraf­ist tæp­lega 75 millj­óna króna.

Sjá einnig: Hilmar lýsir ein­elti á skrif­stof­unni: „Ég lam­að­ist úr skelf­ingu og kom varla upp nokkru orði“

Var dóm­ur­inn Hilmari í vil er snéri að van­greiddri yfir­vinnu og orlof en taldi upp­hæð­irnar sem Hilmar krafð­ist ekki vera í sam­ræmi við það sem hann átti inni. Dómurinn hafn­aði kröfu Hilmars um að SSF yrði gert að greiða að öllu leyti fyrir lög­fræði­að­stoð sem Hilmar þáði er hann til­kynnti ofbeldi og ein­elti gegn sér í félag­inu en þó hluta af greiðsl­unni. Þá hafn­aði dóm­ur­inn einnig þeim lið er snéri að skaða og miska­bótum, með öllu.

Dóms­orðin hljóm­uðu svohljóð­andi:

„Stefndi, B, greiði stefn­anda, A, 1.023.350 krónur með drátt­ar­vöxtum sam­kvæmt 1. mgr.

6. gr. laga nr. 31/2001 um vexti og verð­trygg­ingu frá 10. des­em­ber 2020 til greiðslu­dags.

Kröfum um 9% sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað, 6,45% trygg­inga­gjald og 0,10% gjald til end­ur­hæf­ing­ar­sjóðs af 428.150 krónum er vísað frá dómi. Máls­kostn­aður fellur niður.

Gjaf­sókn­ar­kostn­aður stefn­anda vegna þókn­unar lög­manns hans, Hösk­uldar Þórs

Þór­halls­sonar, að fjár­hæð 1.000.000 króna greið­ist úr rík­is­sjóði.“

Mannlíf ræddi við Hilmar í kvöld en hann seg­ist mjög ósáttur við dóm­inn. Varðandi þau rök sem dóm­ar­inn gaf fyrir því að hafna skaða og miska­bót­unum segir Hilmar: „Ég hef aðeins skoðað þennan rök­stuðn­ing hjá dóm­ar­anum og nið­ur­staðan hans er bara ein­fald­lega röng, hann vísar rangt í ákvæði reglu­gerða o.s.frv. Horfir einnig algjör­lega fram­hjá vitn­is­burðum og gögn­unum sem láu fyrir.“

Heldur Hilmar áfram. „Síðan er það krafan mín um að upp­sögnin verði dæmd ólög­mæt þar sem stétt­ar­fé­lagið gaf sann­an­lega ranga ástæðu fyrir því að mér væri sagt upp störfum. Þeir vildu meina að ,,rekstr­ar­hæfi“ skrif­stof­unnar væri í hættu. Samt sem áður kemur hver á eftir öðrum fyrir dóm­inn og lýsir yfir hæfni minni sem starfs­manni hjá félag­inu. Dómarinn fellir þessa kröfu á því að ákvæði í kjara­samn­ingi stétt­ar­fé­lags­ins geri ekki kröfu um að veittur sé skrif­legur rök­stuðn­ingur og því hafi hann ekk­ert gildi. Þetta er í beinni and­stöðu við dóm Félags­dóms frá árinu 2013 og Atla Rafns, Hæsta­rétt­ar­dóm­inn í Borg­ar­leik­hús­mál­inu sem kom um dag­inn. Þetta ákvæði er eins í örugg­lega flestum kjara­samn­ingum á vegum ASÍ, t.d. hjá VR. Þannig að það er mikið undir að hnekkja þess­ari nið­ur­stöðu. Og sama ef þessi nið­ur­staða verður stað­fest á æðri dóm­stigum þá eru þessi ákvæði í kjara­samn­ingum hjá fullt af stétt­ar­fé­lögum algjör­lega mark­laus, sem hlýtur að vera áfell­is­dómur yfir stétt­ar­fé­lög­unum.“

Hilmar seg­ist einnig hafa margar athuga­semdir við störf dóm­ar­ans.

„Ég hef síðan ótal athuga­semdir við störf dóm­ar­ans, sem lýsir sér kannski best í nið­ur­stöðu hans um máls­kostnað þar sem hann heldur því fram að ég hafi lagt fram allt of mikið af gögnum o.s.frv. Samt var aldrei gerð nein athuga­semd við eitt ein­asta gagn í mál­inu. Og ég á að sitja uppi með yfir 10 millj­ónir í máls­kostnað þegar nið­ur­staða dóms­ins er samt sem áður að stétt­ar­fé­lagið hafi svikið mig um greiðslur. Það er skrýtin afstaða til Davíðs, þegar Davíð er að berj­ast við Golíat.“

Ætlarðu að fara með þetta fyrir Landsdóm?

„Þetta hefur tekið mikið á mig og fjöl­skyld­una og í grunn­inn er það þannig að ég lít á þennan dóm sem stað­fest­ingu á því að stétt­ar­fé­lagið sveik mig. Þó lík­lega verði Lands­réttur að fá málið til sín til að fá rétt­láta nið­ur­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi