Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eyþór Arnalds fagnar frelsinu frá stjórnmálunum: „Ég synti oft á móti straumnum“

Eyþór Arnalds fagnar frelsinu frá stjórnmálunum: „Ég synti oft á móti straumnum“
Eyþór Arnalds

„Nú er ég frjáls. Þetta er alltaf ákvörðun hvort maður eigi að fara í fram­boð eða ekki og ég sagði að ég ætl­aði að fara í fram­boð að óbreyttu. Síðan er búin að vera umræða um próf­kjör eða ekki próf­kjör og þá verður maður að gera upp hug sinn end­an­lega og mér fannst rétt að gera það núna fyrir jólin. Af því að þegar maður finnur í hjart­anu að maður eigi að gera eitt­hvað eða ekki gera eitt­hvað þá á maður að ákveða það og láta fólk vita,“ segir Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í við­tali við Reyni Trausta­son en Eyþór ætlar ekki að gefa kost á sér í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor.

Ég létt­ist um þrjú kíló áður en ég tók ákvörðun um að fara; þetta var það erfið ákvörðun.

„Ég held að það sé margt sem hefur áhrif á mann og svona ákvörðun er stór ef maður er að fara af stað. Ég kvald­ist mikið áður en ég tók ákvörðun um að fara síð­ast en þá var leið­toga­próf­kjör og fimm sem kepptu end­an­lega um það. Áður en ég ákvað að fara í það próf­kjör fyrir fjórum árum reyndi ég mikið að segja „nei“ og reyndi mikið að telja sjálfum mér hug­hvarf um að fara ekki. Ég gekk svo langt að ég var með tvo krist­alla í vas­anum sem áttu að fá mig til þess að vera stað­fastan og fá mig til þess að fara ekki. En það tókst ekki. Ég létt­ist um þrjú kíló áður en ég tók ákvörðun um að fara; þetta var það erfið ákvörðun. Þetta er auð­veld­ari ákvörðun,“ segir hann um ákvörð­un­ina núna. „Ég létt­ist bara and­lega vegna þess að nú er mér létt.“

Eyþór er spurður hvort það sé ekki leið­in­legt að vera leið­togi minni­hluta.

Það fer stundum meiri orka í að vinna innan flokks heldur en út á við og það á við bæði um minni­hluta og meiri­hluta.

„Það er alltaf flókið að vera leið­togi bæði minni­hluta og meiri­hluta. Ég hef prófað hvoru tveggja; í Árborg var ég í fjögur ár í minni­hluta og fjögur ár í meiri­hluta. Þetta er alltaf ákveð­inn ball­ans. Það fer mikil orka innan flokka í að sam­eina ólík sjón­ar­mið og hlusta á alla. Það fer stundum meiri orka í að vinna innan flokks heldur en út á við og það á við bæði um minni­hluta og meiri­hluta. Ég hugsa til dæmis að þessi meiri­hluti sem er núna í Reykja­vík sé ekki ein­faldur því þarna eru gjör­ó­líkir flokkar; Viðreisn, VG og fleiri. Þetta er alltaf jafn­væg­is­list að vera leið­togi. Maður má ekki láta sér leið­ast þó maður sé leið­togi. Maður verður að hafa gaman af þessu.“

Dagur er búinn að vera lengi í ráð­hús­inu og það gildir um stjórn­mála­menn svipað og flug­vélar: Á end­anum kemur málm­þreyta í alla.

Talið berst að meiri­hlut­anum í borg­ar­stjórn og Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra.

„Dagur er búinn að vera lengi í ráð­hús­inu og það gildir um stjórn­mála­menn svipað og flug­vélar: Á end­anum kemur málm­þreyta í alla. Hann er búinn að vera í 20 ár í ráð­hús­inu og ég finn það bara á honum sjálfum að þetta er orðið dálítið langt. Það er kannski spurn­ing um útgöngu­leið­ina. Ég tók eftir að hann gaf út eins konar ævi­sögu,“ segir Eyþór og á við nýja bók Dags sem kom út fyrir jólin: „Nýja Reykja­vík – umbreyt­ingar í ungri borg“. „Hún fjallar mikið um hans verk í borg­inni og póli­tík­ina. Það er nú oft merki um að menn séu á útleið þegar þeir skrifa bauta­stein um sjálfan sig. Þannig að í hug­anum held ég að hann sé far­inn í burtu en það er bara spurn­ing hvert.“

Borg­ar­full­trú­inn er spurður hvaða mögu­leika hann haldi að Sjálf­stæð­is­menn hafi til að mynda meiri­hluta í borg­ar­stjórn. Og hann seg­ist halda að það sé alltaf mögu­leiki. „Ég tók oft það debat fyrir fjórum árum – þá voru allar skoð­ana­kann­anir þannig að meiri­hlut­inn sem var þá myndi halda. Það var bara tveimur dögum fyrir kosn­ingar sem við náðum að koma fram í skoð­ana­könn­unum að við værum að fella meiri­hlut­ann. Ég var alltaf sann­færður um að við myndum fella hann og við felldum hann. Svo var það Viðreisn sem ákvað að end­ur­reisa hann.“

Todmobile

Eyþór hefur komið víða við und­an­farna ára­tugi og hann segir að það sé skemmti­legt að takast á við ólík verk­efni. Tón­listin heill­aði og hann var í hljóm­sveit­inni Tappa tík­arrassi um tíma.

„Þegar við horfum til baka á Tappa tík­arrass sem var í Rokk í Reykja­vík og þess­ari pönk­bylgju þá vorum við að mörgu leyti svona krút­t­pönk. Við vorum miklu meiri krútt heldur en pönk­arar í Bret­landi og lit­rík­ari og glað­ari. Þessi bylt­ing sem var í kringum tón­list­ina á þessum tíma var ótrú­lega öflug. Það var gaman að taka þátt í því. Við tókum alla músík og hökk­uðum hana í ræmur og bjuggum til eitt­hvað nýtt.“

Hann segir að þau hafi verið 15 ára gömul.

„Þetta var upp­hafið að því að ungir krakkar voru að hafa trú á því að semja tón­list og vera ekki bara að þýða eins og oft var erlenda tón­list yfir á íslensku. Það var algengt að popptón­list á Íslandi væri erlend lög. Við bjuggum ekki bara til lög sem voru gjör­ó­lík heldur vorum við óhrædd við að fara alger­lega nýjar leiðir. Ég held að þetta sjálfs­traust hafi skilað sér síðan í tón­list­inni á Íslandi.“

Margir jafn­aldrar mínir fóru að verða baldnir 16 ára en ég fór alveg hina leið­ina; fór í pönk­inu í sell­óið. Ég synti oft á móti straumnum

Svo var það klassíkin. Sellóið.

„Margir jafn­aldrar mínir fóru að verða baldnir 16 ára en ég fór alveg hina leið­ina; fór í pönk­inu í sell­óið. Ég synti oft á móti straumnum.“

Hann fór í MH og þurfti að sækja um að vera utan­skóla af því að hann æfði sig á sell­óið í um sex tíma á dag. „Ég tók það mjög alvar­lega,“ segir Eyþór sem fór síðan í fram­haldsám í Hollandi og segir hann að kenn­ari sinn þar sé eini selló­leik­ar­inn sem geti spilað með tveimur bogum.

Svo stakk vinur hans, Þor­valdur, upp á því að þeir tækju upp nokkur lög og úr varð hljóm­sveitin Tod­mobile sem gerði garð­inn frægan og kom hljóm­sveitin meira að segja saman fyrr á þessu ári í Hörpu.

„Við komum saman á þessu ári; við hittum á grímu­lausan glugga milli Covid-lok­ana og gátum horft framan í áheyr­endur í Hörpu.“

Todmobil fór svo­lítið aðrar leiðir. „Við blönd­uðum saman klassík, poppi og rokki.“

Svo hætti Eyþór í hljóm­sveit­inni.

„Við vorum búin að gera það sem við ætl­uðum að gera. Við vorum búin að gefa út plötur og fá öll þau verð­laun sem hægt var að fá. Það var tvennt í stöð­unni: Ann­að­hvort að fara til útlanda og spila ann­ars staðar eða end­ur­taka okkur svo­lítið. Þá var það að gera eitt­hvað annað og þá fór ég í tækn­ina og Símann og allt það.“

Nýr kafli var haf­inn.

Stofnaði Íslandssíma

Eyþór seg­ist hafa verið með stúdíó sem var eitt fyrsta staf­ræna stúd­íóið í heimi. „Ég bjó til félag sem hét Stafræn hljóð­vinnsla. Góður vinur minn, Guðjón í OZ, var mjög fram­sýnn með tækni; langt á undan sinni sam­tíð. Og við bjuggum til OZ hljóð og fórum að vinna með hljóð í OZ-tækn­inni. Það leiddi til þess að ég fór að vinna með Guðjóni í OZ og það var mikið ævin­týri. Við fórum til Silicon Valley og út um allt; við vorum í San Francisco og hittum alla þessa toppa – Bill Gates og alla sem voru í tækn­inni á þeim tíma. Þetta var gríð­ar­lega spenn­andi tími ekki síst í kringum 1996-1997. Við unnum líka með Ericsson sem var fjar­skipt­ar­isi.“

Þá kom hug­mynd að Íslands­síma sem við stofn­uðum og fórum í að keppa við Lands­sím­ann á öllum sviðum fjar­skipta og í dag er það félag Vodafone.

Svo kom upp hug­mynd; það var bara eitt síma­fyr­ir­tæki á Íslandi. „Svo kom Tal með gsm. Vantaði ekki annað svona heil­steypt fjar­skipta­fyr­ir­tæki? Þá kom hug­mynd að Íslands­síma sem við stofn­uðum og fórum í að keppa við Lands­sím­ann á öllum sviðum fjar­skipta og í dag er það félag Vodafone. Síðan fór ég til London að vinna hjá fjar­skipta­fyr­ir­tæki þar þannig að maður er búinn að vera víða.“

Og Eyþór seldi hlut sinn í Íslands­síma.

„Síðan hefur maður gert ýmis­legt fleira.“

Í stjórnmálin

Eitt ár í stór­borg­inni London og svo var það sveita­sælan fyrir utan Selfoss þar sem Eyþór bjó um ára­bil. Hann var þar odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Árborg.

Það er það sem vantar í Reykja­vík – að meiri­hlut­inn vinni með minni­hlut­anum.

„Heima­menn vildu fá mig í fram­boð. Þá var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Árborg í lægð. Hann hafði verið með um 24% og þeir sann­færðu mig um að fara í slag­inn; þar var próf­kjör og ég vann það og við náðum síðan 40% fylgi og síðan 50% fylgi í næstu kosn­ingum. Það gekk vel. Það var gríð­ar­lega lær­dóms­ríkur tími. Þegar við tókum við 2010 þá var banka­hrunið eig­in­lega nýbúið og ástandið á fjár­málum sveit­ar­fé­lags­ins mjög slæmt. En það var mjög góð sam­staða í bæj­ar­stjórn­inni og við áttum gott sam­starf með þeim sem voru í minni­hluta. Það er það sem vantar í Reykja­vík – að meiri­hlut­inn vinni með minni­hlut­anum. Við unnum mjög náið með öllum aðilum og hag­ræddum. Og ef ég súmmera upp það sem gerð­ist þá lækk­uðum við fast­eigna­skatt­ana, við lækk­uðum skuld­irnar og bæj­ar­fé­lagið eign­að­ist það sem núna er mið­bær Selfoss og fram­tíð­ar­landið við brúna sem er við Laug­ar­dæli. Þetta var allt keypt en þrátt fyrir það náðum við að lækka skuldir en það er vegna þess að það var svo ódýrt að kaupa – við not­uðum tæki­færið í krepp­unni. Og nú er Árborg búið að blómstra sem sveit­ar­fé­lag og lyk­ill­inn er að grípa tæki­færin þegar þau koma. Ég er mjög stoltur af því að hafa fengið að taka þátt í þeirri veg­ferð.“

Eyþór var um tíma stjórn­ar­for­maður og pró­kúru­hafi Becromal Iceland ehf sem rekur afl­þynnu­verk­smiðju í Eyja­firði. „Það var mjög spenn­andi verk­efni. Það eru þéttar sem eru not­aðir í flest allar vind­myllur í Evrópu. Þetta er bara kyrr­lát verk­smiðja við fjörð­inn sem gengur bara vel. “

Hann er far­inn út úr því fyr­ir­tæki.

„Núna er meiri tími til að hugsa og vinna.“

Hann er alveg ein­stakur í Íslands­sög­unni.

Svo stofn­aði hann félagið „Félag um for­seta­fram­boð Davíðs“ sem studdi Davíð Oddsson í kjöri til for­seta Íslands. „Mér fannst það spenn­andi. Davíð er mjög merki­legur karakter og það að fá að kynn­ast honum eru ákveðin for­rétt­indi. Hann er alveg ein­stakur í Íslands­sög­unni. Hans saga sem stjórn­málafor­ingi er ein­stök. Og svo er hann svo sterk per­sóna og gríð­ar­lega minn­ugur þannig að ég er þakk­látur fyrir að hafa kynnst honum.“

Eyþór hefur verið hlut­hafi í Morg­un­blað­inu og seg­ist nú eiga um 10%. Hann er spurður hvers vegna honum hafi dottið í hug að kaupa hlut í fjöl­miðli.

„Ég var hlut­hafi í DV þegar ég var 11 ára,“ segir Eyþór sem gaf út blað í bekknum sínum á svip­uðum tíma. „Ég seldi Vísi sem krakki og spar­aði pen­ing­inn og mér datt ekki annað í hug heldur en bara að kaupa í Dag­blað­inu sem var síðan stofnað. Auðvitað fékk ég þá ekki pen­inga til baka.“

Athafna­mað­ur­inn og póli­tíkus­inn seg­ist alltaf hafa haft áhuga á fjöl­miðlum vegna þess að þeir séu hluti af menn­ing­unni okkar.

Neikvæðni virkar

Eyþór hefur verið gagn­rýndur fyrir hlut sinn í Morg­un­blað­inu. „Það er þannig í stórn­málum að allt sem hægt er að nota gegn manni er notað gegn manni.“

Hann segir að póli­tíkin hafi þann galla að það sé svo auð­velt að nota nei­kvæðn­ina. „Það er mjög nei­kvætt hvað nei­kvæðnin er mikil en ástæðan fyrir því að hún er notuð er að hún virkar. Það er sál­fræði­lega sannað að menn muna miklu meira ósigra sína heldur en sigra og þeir muna meira ef þeir tapa heldur en ef þeir græða. Það er marg­búið að rann­saka það í póli­tík að nei­kvæðni virkar. Og menn kepp­ast þá um að vera sem nei­kvæð­astir. Það er hins vegar ekki mjög jákvætt vinnu­um­hverfi fyrir sál­ina. Sá sem er í meir­hluta ræður dálítið and­rúms­loft­inu á vinnu­stað. Hann ræður hvort það sé hlustað á, hvort til­lögur séu sam­þykktar eða hvort menn séu með í ráðum. Víða í kringum okkur eins og í Kópavogi er verið að sam­þykkja fjár­hags­á­ætl­anir sam­eig­in­lega en í Reykja­vík er ekk­ert verið að hlusta. Ég held að þetta sé ekk­ert hollt fyrir meiri­hlut­ann hvorki varð­andi rekstur borg­ar­innar né bara heilsu­fars­lega. Það er mikið um veik­indi í borg­ar­stjórn. Það hafa margir veikst á þessu kjör­tíma­bili og ég held að það hljóti að tengj­ast and­rúms­loft­inu að ein­hverju leyti.“

Þetta eiga bara að vera full­trúar íbú­anna og svo eiga þeir að vinna saman og ef þeir mynda ein­hvern meiri­hluta þá er ekki þar með sagt að þeir eigi að loka á minni­hlut­ann.

Eyþór við­ur­kennir að það sé of mikil harka í umræð­unni. Hann segir að ef hann hefði fengið tæki­færi þá hefði hann gert eins og gert var á Selfossi; að vinna með minni­hlut­anum. „Hugsunin með sveit­ar­stjórn og borg­ar­stjórn er ekki meiri­hluti og minni­hluti. Það er hvergi talað um það í lög­unum. Þetta eiga bara að vera full­trúar íbú­anna og svo eiga þeir að vinna saman og ef þeir mynda ein­hvern meiri­hluta þá er ekki þar með sagt að þeir eigi að loka á minni­hlut­ann. Svo var meira að segja minni­hlut­inn í borg­ar­stjórn núna með meiri­hluta atkvæða. Það voru fleiri atkvæði á bak við okkur heldur en meiri­hlut­ann.“

Eyþór seg­ist ekki trúa öðru en að það verði breyt­ingar eftir kosn­ing­arnar í vor. „Það á eftir að koma í ljós hvort Dagur heldur áfram eða ekki og svo á eftir að ákveða hvernig hinir flokk­arnir raða á lista. Til­finn­ing mín er að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eigi að geta fengið 35-36%. Ég hef haft ágætis til­finn­ingu fyrir svona fylgi og spáði því síð­ast að við fengjum rúm­lega 30% – þá vorum við með um 24% í könn­unum og fengum 31%. Ég man eftir því að þá spáðu flestir því að Sam­fylk­ingin yrði stærsti flokk­ur­inn en það varð ekki. En 35-36%; það vantar þá ein­hvern sam­starfs­flokk og þá er það spurn­ing hver það verður. En ég held að það sé hollt fyrir borg­ina að þetta breyt­ist.“

Ég held að ef maður horfir á línu­rit yfir fylgin þá hafi Icesave-málið haft áhrif.

Eyþór er spurður um skoðun sína á rúm­lega 20% fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­vísu. „Hann hefur haft betra fylgi í sveit­ar­stjórnum víða heldur en á lands­vísu. Við vorum til dæmis með 31% í Reykja­vík í borg­ar­stjórn en það var bara rúm­lega 20% í þing­inu. Ég held að ef maður horfir á línu­rit yfir fylgin þá hafi Icesave-málið haft áhrif. Það dump­aði þetta dálítið niður og svo hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn misst fólk til Við­reisnar ann­ars vegar og Mið­flokks­ins hins vegar. Núna er eitt­hvað af fólki að koma frá Mið­flokknum yfir til Sjálf­stæð­is­flokks­ins og svo er spurn­ing hvað ger­ist með Viðreisn. Þetta eru ákveðin skil. Varðandi Viðreisn þá er það ESB; þar fór ákveð­inn hluti af borg­arís­jak­anum á flot. ESB er ekki á dag­skrá þannig að ég myndi halda að það væri hægt að ná honum til baka en við tókum nýlega við vara­borg­ar­full­trúa úr Mið­flokknum, Baldri Borg­þór­syni,“ segir Eyþór en Baldur gekk í Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Borgarlínan

Eyþór hefur haft miklar efa­samdir um fyr­ir­hug­aða borg­ar­línu.

Þannig að það að fara af stað með hug­myndir um línur þar sem verða stórar rútur: Fram­tíðin er ekki stórar rútur. Fram­tíðin er litlir pakkar. Alveg eins og inter­netið.

„Ég hafði efa­semdir um hana 2017 áður en ég fór í fram­boð. Ég hef litið á borg­ar­lín­una sem línu­legt kerfi og dálítið þung­lama­legt kerfi. Við erum að ganga í gegnum algjöra sam­göngu­bylt­ingu alveg eins og fjar­skipta­bylt­ingin var alger bylt­ing þegar far­sím­arnir komu og inter­netið. Núna erum við að sjá álíka bylt­ingu í sam­göngum þar sem við sjáum ann­ars vegar sjálf­keyr­andi lausnir og orku­skipti; raf­magn.“ Hann nefnir raf­skutlur sem hann segir að eng­inn hafi séð fyrir og hann talar um orku­skipti í bílum á Íslandi. „Þannig að umhverf­is­þátt­ur­inn í sam­göngum er að gjör­breyt­ast. Bíllinn verður ekk­ert meng­andi lengur. Þá er það spurn­ingin hvernig við eigum að laga sam­göng­urnar. Ég trúi því að tæknin sé núna að koma með miklar breyt­ingar; sjálf­keyr­andi lausnir munu lækka kostn­að­inn við almenn­ings­sam­göngur. Þannig að það að fara af stað með hug­myndir um línur þar sem verða stórar rútur: Fram­tíðin er ekki stórar rútur. Fram­tíðin er litlir pakkar. Alveg eins og inter­netið.“

Er nokkur leið til baka?

„Ég ákvað að gefa ekki kost á mér; það er hægt að taka ákvörðun. Það er ekki búið að panta eitt eða neitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi