Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jonni: „Þetta snýst ekki um peninga heldur að búa til minningar og ég er moldríkur af þeim“

Jonni: „Þetta snýst ekki um peninga heldur að búa til minningar og ég er moldríkur af þeim“

Körfu­bolta­þjálf­ar­inn Jón Halldór Eðvalds­son – Jonni – hefur verið lengi að í sport­inu og tekið að sér ýmis verk­efni; hann var dóm­ari, hann er þjálf­ari og þá er hann einn af sér­fræð­ing­unum í þætt­inum Domino´s Körfu­bolta­kvöld.

Jonni er með skemmti­legri mönnum og Mannlíf lagði fyrir hann nokkrar spurn­ingar.

Jonni er skemmti­legur og upp­á­tækja­samur maður, eins og sést

Jonni byrj­aði „að þjálfa 1997, ef ég man þetta rétt, en þá var ég búinn að vera að dæma í ein­hver ár og hafði mjög gaman af, og eðli­lega hef ég mjög mik­inn áhuga á körfu­bolta,“ segir hann og bætir við:

„Ég hafði mik­inn áhuga á að taka að mér þjálfun; man ekki hver það var – mögu­lega var það Kristinn Ósk­ars­son – sem fékk mig í að þjálfa yngri flokk, en ég þarf eig­in­lega að þakka við­kom­andi inni­lega fyrir. Ég tók síðan við kvenna­liði Kefla­víkur 2006, og það var fyrsta þjálf­ara­starfið mitt í meist­ara­flokki.“

Jonni hefur unnið fjöld­ann allan af titlum sem körfu­bolta­þjálf­ari í gegnum tíð­ina og það tengja hann flestir við körf­una, en færri vita að hann var góður mark­vörður í knatt­spyrnu.

En gat hann eitt­hvað í körfu?

„Ég var ekki neitt merki­legur í körfu en ég var geggj­aður í marki! Ég á reyndar ein­hverja Íslands- og bik­ar­meist­aratitla í yngri flokkum – hugsa að það hafi ekki verið mér að þakka samt – en ég hætti í körfu fimmtán ára gam­all til að elta knatt­spyrnu­fer­il­inn; það var ekki rétt „move“ hjá mér,“ segir Jonni og hlær:

„En ég elskaði að spila fót­bolta og kynnt­ist mikið af topp­fólki þar.“

Jonni, hvernig heldur þú þér á tánum sem þjálf­ari?

„Ég veit ekki hvað sé best að segja varð­andi það; ég hugsa að mik­ill áhugi á körfu­bolta sé það sem haldi mér á tánum. Svo hef ég bara svo rosa­lega gaman af því að vera inni í íþrótta­sal. Ég hef ekki farið í neitt nám varð­andi þjálfun; hef setið eitt­hvað af nám­skeiðum en mest er þetta grúsk. En námið mitt um þessar mundir felst í því að hlusta á mesta körfu­boltagúru sem ég hef hitt, og hann heitir Hörður Axel Vil­hjálms­son – fyrir mið­aldra karl­mann er það mjög gef­andi og skemmti­legt.“

Spurður um hvað það sé sem geri þjálfun svo heill­andi er Jonni ekki seinn til svars:

„Þetta snýst ekki um pen­inga – þetta sýnst um að búa til minn­ingar og ég er orð­inn mold­ríkur af þeim, og þær verða aldrei teknar af mér. En þetta er auð­vitað fyrst og fremst áhuga­mál; alveg eins og fólk spilar golf og vill helst vera á golf­vell­inum alla daga og spila þá vil ég vera í íþrótta­hús­inu sex daga vik­unnar.“

Hvaða þjálf­un­ar­að­ferðum eða taktík beitir þú og hvernig mynd­irðu lýsa þér sem þjálf­ara?

„Taktík breyt­ist eftir því hvernig lið þú ert að þjálfa. Ég hef aldrei verið fastur í að gera hlut­ina eins; ég reyni að aðlaga mig að þeim verk­efnum sem ég er með hverju sinni og vinn mig þaðan. Ég er liðs­þjálf­ari fyrst og fremst.“

Hvernig skyldi nú Jonna lít­ast á kvenna­lands­liðið í dag? Hann er ekki marg­orður um það:

„Það hefur mátt muna sinn fífil feg­urri.“

Þá að Domino´s Körfu­bolta­kvöldi, en þar er Jonni einn af sér­fræð­ing­unum.

Körfu­bolta­kvöld er einn besti og merki­leg­asti þáttur allra tíma í íslensku sjón­varpi og hefur lyft körf­unni hér upp á hærra plan.

Hann segir mikla gleði fylgja þætt­inum:

„Það að hafa fengið að taka þátt í þessu ævin­týri sem þessi þáttur er, er mjög skemmti­legt. Þessi þáttur hefur ein­fald­lega lyft körfu­bolt­anum hér á Íslandi upp á annað plan.

Núna er allt í einu fullt af fólki sem veit lítið um körfu farið að fylgj­ast með og hafa gaman af.

Tak­mark­inu var þar með náð, en betur má ef duga skal, og við höldum ótrauð áfram að búa til frá­bært sjón­varp fyrir Íslend­inga,“ segir Jonni sem er þó ekki ein­ungis mik­ill áhuga­maður um körfu­bolta þótt hann sé í for­grunni:

Jonni gerði Keflavík að Íslands­meist­urum árið 2011, og hefur unnið til fjölda ann­arra titla

„Ég elska að elda og ég er mik­ill áhuga­maður um ferða­lög; ferð­ast mikið og hef rosa­lega gaman af því að fara á fót­bolta­leiki á Englandi. En fyrst og fremst er ég áhuga­samur um lífið og að lifa því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi