Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurdór, ástsæll söngvari, fararstjóri og blaðamaður, lést annan í jólum

Sigurdór, ástsæll söngvari, fararstjóri og blaðamaður, lést annan í jólum
|

Sig­ur­dór Sig­ur­dórs­son, blaða­maður, far­ar­stjóri og ást­sæll söngv­ari, lést á Land­spít­aln­um á öðrum degi jóla, 83 ára að aldri. Hann var fædd­ur á Akra­nesi 24. nóv­em­ber 1938.

Blessuð sé minn­ing Sig­ur­dórs.

Sigurdór er ekki þekkt­asti dæg­ur­laga­söngv­ari íslenskrar tón­list­ar­sögu en hann söng hins vegar slag­ara sem allir hafa heyrt í hans með­förum og margir sungið með – Þórs­merk­ur­ljóð.

Sigurdór er fæddur og upp­al­inn á Akranesi en flutt­ist til Reykja­víkur á barns- eða ung­lings­aldri. Hann var átján ára gam­all þegar hann hóf að koma fram opin­ber­lega sem söngv­ari en þá hafði valið staðið ann­ars vegar um söng- eða knatt­spyrnu­feril hins vegar en hann þótti lið­tækur knatt­spyrnu­maður, hið fyrr­nefnda varð ofan á því það gat gefið af sér þokka­legar tekjur sem íþrótt­irnar gerðu ekki.

Fyrstu opin­beru sam­komurnar sem Sigurdór söng á voru revíu- og kab­ar­ett­sýn­ingar, t.d. á vegum Íslenzkra tóna og fljót­lega slóst hann í hóp ungra og efni­legra dæg­ur­laga­söngv­ara og söng m.a. á mið­næt­ur­skemmt­unum í Aust­ur­bæj­ar­bíói. Í kjöl­farið hófst hinn eig­in­legi söng­fer­ill þar sem hann söng með hljóm­sveitum eins og KK sextett, Hljóm­sveit Aage Lorange og Hljóm­sveit Svavars Gests en með síð­ast töldu sveit­inni söng hann stórsmell­inn um Maríu, Þórs­merk­ur­ljóð Sigurðar Þór­ar­ins­sonar jarð­fræð­ings sem kom út árið 1960 á tveggja laga plötu á vegum Íslenzkra tóna – það var svo end­ur­út­gefið ári síðar. Lagið sló í gegn og varð feiki­vin­sælt í óska­laga­þáttum Útvarps­ins og Sigurdór þurfti að syngja það marg­sinnis hvert ein­asta kvöld á dans­leikjum. Vart þarf að taka fram að lagið hefur komið út á ógrynni safn­platna.

Ung­ur flutti Sig­ur­dór frá Akra­nesi til Reykja­vík­ur, þá eft­ir gagn­fræða­próf frá Hér­aðs­skól­an­um í Reyk­holti. Nam prent­verk og lauk prófi í þeirri iðn árið 1961. Starfaði sem prent­ari næsta ára­tug­inn og fór svo þegar fram liðu stund­ir að sinna íþróttaf­rétta­mennsku í ígrip­um. Árið 1970 gerð­ist Sig­ur­dór blaða­maður á Þjóðvilj­an­um og starf­aði þar til árs­ins 1986. Færði sig þá yfir á DV og starf­aði þar til 1997. Var blaða­maður á Degi 1997 til 2001 og eft­ir það til starfs­loka á Bænda­blað­inu. Sem blaða­maður skrif­aði Sig­ur­dór mikið um póli­tík, verka­lýðs­mál og sjáv­ar­út­veg. Á öll­um blöð­unum, sem fyrr eru nefnd, var Sig­ur­dór jafn­framt með þætti með kveð­skap og lausa­vís­um, sem hann safn­aði og skráði. Síðustu árin birti hann slíkt efni gjarn­an á net­inu.

Sem ung­ur maður var Sig­ur­dór vin­sæll söngv­ari, meðal ann­ars með Hljóm­sveit Svavars Gests. Árið 1960 söng hann inn á hljóm­plötu Þórs­merk­ur­ljóð við texta Sig­urðar Þór­ar­ins­son­ar jarð­fræð­ings. Lagið náði mikl­um vin­sæld­um sem varað hafa til þessa dags. Á sumr­in frá 1976 til 1988 var Sig­ur­dór far­ar­stjóri Íslend­inga á Spáni á veg­um Úrvals.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Sig­ur­dórs er Sigrún Giss­ur­ar­dótt­ir, en þau gengu í hjóna­band árið 1961. Þau eign­uð­ust tvær dætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi