Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ögmundur Jónasson: „Ég sagði af mér til að bjarga stjórninni – reyndist mér erfið ákvörðun“

Ögmundur Jónasson: „Ég sagði af mér til að bjarga stjórninni – reyndist mér erfið ákvörðun“
Mynd. Skjáskot/RÚV

„Þetta er mín sýn á sögu stjórn­mála og félags­mála síð­ustu rúma fjóra ára­tug­ina,“ segir Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður, um sjálfsævi­sögu sína, Rauða þráð­inn, sem kemur út í jan­úar. „Per­sónu­saga mín er þarna ein­hvers staðar líka en þó aðeins að því marki sem hún flétt­ast inn í afskipti mín af félags­málum og póli­tík frá því ég steig inn á þann vett­vang undir lok átt­unda ára­tug­ar­ins. Þannig að þetta fer að teygja sig í hálfa öld. Ég segi í upp­hafi bókar frá því úr hverju ég er gerður; hvað það er sem býr til lífs­þráð­inn hjá mér – sem er nátt­úr­lega rauður á lit­inn. Ég fylgi þessum þræði síðan og það segja mér þeir sem lesið hafa bók­ina, sem að vísu eru ekki margir enn því offisí­alt kemur hún ekki út fyrr en 1. jan­úar, að sam­fellan í þræð­inum sé aug­ljós frá upp­hafi og fram á þennan dag. Það er nú eig­in­lega það sem mér finnst skipta mestu máli að vera sjálfum sér sam­kvæmur en þó til­bú­inn að laga sig að breyttum aðstæðum.“

Það vildi ég að sjálf­sögðu í öðrum köflum líka en þarna vildi ég vanda sér­stak­lega til því margt hefur verið mis­sagt um Icesave sem þurfti að leið­rétta.

Ögmundur segir að bókin sé búin að malla lengi sem óljós áform. „Ég skrif­aði hana nán­ast í einum rykk á árinu sem leið. Tvennt tók tíma. Í fyrsta lagi að fara ræki­lega í saumana á heim­ildum fyrir þá kafla þar sem ég vildi ger­ast sagn­fræð­ingur. Það á sér­stak­lega við um Icesave- deil­una. Þar vildi ég vera eins nákvæmur og kostur er. Það vildi ég að sjálf­sögðu í öðrum köflum líka en þarna vildi ég vanda sér­stak­lega til því margt hefur verið mis­sagt um Icesave sem þurfti að leið­rétta. Hitt sem tók tíma var að finna myndefni. En það tókst með hjálp góðra manna.“

BSRB-ganga.

Villikettirnir

Ögmundur er spurður hvað standi upp úr á ferli hans.
„Þegar ég var í Sjón­varp­inu, for­maður starfs­manna­fé­lags­ins þar, hengdum við upp skilti sem á stóð að fleiri væru menn en yfir­menn en að stundum þyrfti að minna á það. Það síð­ast­nefnda, um áminn­ing­una, var í sviga á eftir. Ég birti mynd af þessu skilti. En þarna var sú her­hvöt sem ég hef alla tíð látið stjórn­ast af. Það sem stendur upp úr er að ég skuli ekki hafa gleymt þess­ari grund­vall­araf­stöðu til sam­ferða­manna minna og sam­fé­lags­ins að eng­inn skuli öðrum ofar settur. Um hefð­bundnar hæðir og lægðir þá stendur upp úr á minni póli­tísku veg­ferð hve marg­breyti­leg hún hefur verið, allt frá Sigtúns­hópnum, verk­fallsá­tökum á níunda ára­tugnum og svo nátt­úr­lega póli­tískum slags­málum í gegnum tíð­ina.“

Erfiðust eru átök við vini og sam­herja.

Hvað var erf­ið­ast?
„Erfiðust eru átök við vini og sam­herja. Á því leikur eng­inn vafi.“

Þegar Ögmundur er spurður hvað hafi ein­kennt hann sem stjórn­mála­mann seg­ist hann vona að mönnum finn­ist hann hafa verið sam­kvæmur sjálfum sér; sagt það sama fyrir og eftir kosn­ingar.“

Talið berst að Stein­grími J. og deil­unum innan VG.
„Orða­til­tækið að vík verði milli vina hygg ég að hafi átt þarna full­kom­lega við. Og þessi vík varð meira að segja djúp og ill­fær yfir. Hvað síðar verður veit ég ekki en á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins 2009 til 2013 höfðu komið upp ágrein­ings­mál, ekki bara á milli mín og Stein­gríms og þeirra sem fylgdu honum að málum heldur einnig ann­arra félaga okkar. Þannig að þetta urðu átök sem margir komu að og fyrir vikið urðu margir sárir áður en yfir lauk.“

Svo voru það villi­kett­irnir.

„Það var Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir sem upp­nefndi okkur á þennan hátt en bjó þar með til and­stæð­una sem einnig kom úr dýra­rík­inu, nefni­lega sauð­kind­ina. Hinn póli­tíski sauður er skelfi­legt fyr­ir­bæri. Köttum smalar þú ekki svo glatt og það var áhyggju­efni Jóhönnu en sauð­irnir rekast vel í rétt. Í því er mikil hætta fólgin en það er að gera þátt­tak­endur í stjórn­málum að gagn­rýn­is­lausri hjörð. Það var alltaf látið sem svo að villi­kett­irnir í stjórn­ar­lið­inu – þau sem höfðu uppi gagn­rýni – væru fá. Reyndin var sú að í gras­rót stjórn­mál­anna vorum við mörg og senni­lega í meiri­hluta þótt inni í flokks­stofn­unum værum við færri.“

Ég sagði af mér til að bjarga stjórn­inni.

Svo sagði Ögmundur af sér sem heil­brigð­is­ráð­herra.

„Ég sagði af mér til að bjarga stjórn­inni. Jóhanna sagði stjórn­ina fallna nema við töl­uðum einum rómi í Icesave. Það vildi ég ekki gera. Hvorki láta af sann­fær­ingu minni né fella stjórn­ina. Þess vegna sagði ég af mér.“

Var erfitt að hætta?
„Fyrst í stað reynd­ist mér það erfið ákvörðun. En ég vissi innst inni að ég átti að hætta á þeim vett­vangi þar sem ég hafði haldið mig í rúm tutt­ugu ár, það er Alþingi. En ég er ekk­ert hættur, hef verið á fullu í margs konar málum, inn­an­lands og utan, og horfi glað­beittur til fram­tíð­ar­innar.“

Hvað með skoðun ráð­herr­ans fyrr­ver­andi á for­sæt­is­ráð­herr­anum?
„Ég gagn­rýni Katrínu fyrir að kúvenda í utan­rík­is­málum og ger­ast of fylgispök við mark­aðs­hyggju Evr­ópu­sam­bands­ins.“

Vinstri menn þurfa að finna rætur sínar og verða ekki við­skila við þær.

Hvað með VG? Er flokk­ur­inn kom­inn út af í stefn­unni? Ekki svo grænn og ekki svo til vinstri?
„Tví­mæla­laust. Vinstri menn þurfa að finna rætur sínar og verða ekki við­skila við þær. Það má ekki henda að VG, Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð, endi uppi sem HF, Hreyf­ingin fram­boð.“

Hvað fannst Ögmundi um sós­í­alista?
„Ásetn­ing­ur­inn er góður en utan­rík­is­póli­tík­ina vantar.“

Árið 2021 er senn á enda. Hvað segir Ögmundur um ára­mót?
„Komandi ár verður betra en það sem nú er að líða. Ég hef trú á því. Ef við sem viljum veg hins rauða og græna í stjórn­málum sem mestan leggjum okkur fram þá mun landið rísa. En það ger­ist ekki af sjálfu sér. Það þarf alltaf ger­endur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi