Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólkið sem kvaddi okkur á þessu ári

Fólkið sem kvaddi okkur á þessu ári

Við kvöddum margt gott fólk á þessu ári og tók Mannlíf saman nöfn nokk­urra ein­stak­linga sem var minnst með hug­ljúfum kveðjum.

Árni Ólafur Ásgeirsson

Árni Ólafur Ásgeirs­son kvik­mynda­leik­stjóri er lést í apríl eftir stutt veik­indi. Árni leik­stýrði fyrst stutt­myndum, og síðan kvik­mynd­unum Blóð­böndum, Brimi og Lóa, þú flýgur aldrei einn, og hlaut fjölda verð­launa og til­nefn­inga fyrir. Síðasta kvik­mynd hans, pólsk-íslenska myndin Wolka, var frum­sýnd á árinu.

Blær Ástríkur Ástuson Ástráðsson

Blær Ástríkur Stefán Ástuson Ást­ráðs­son tákn­máls­fræð­ingur og laga­nemi var 51 árs þegar hann lést í jan­úar. Blær var ein atkvæða­mesta bar­áttu­mann­eskja þjóð­ar­innar fyrir rétt­indum fatl­aðs fólks.

Charlie Watts

Charlie Watts, trommu­leik­ari stór­hljóm­sveit­ar­innar Rolling Stones, lést í ágúst. Watts er tal­inn einn fremsti trommu­leik­ari heims en var ekki jafn hrif­inn af rokk­stjörnu­líf­inu og sumir aðrir í band­inu. Watts barði húð­irnar fyrir Rolling Stones í nærri sex­tíu ár.

Christopher Plummer

Kanadíski leik­ar­inn Christopher Plummer lést í byrjun febr­úar, 91 árs að aldri. Þekkt­astur er hann lík­lega fyrir leik sinn í Tóna­flóði, eða The Sound of Music, þar sem hann lék fjöl­skyldu­föð­ur­inn von Trapp.

Desmond Tutu

Desmond Tutu, frið­ar­verð­launa­hafa Nóbels og fyrr­ver­andi erki­bisk­ups í Suður-Afríku, lést að morgni 26. des­em­ber níræður að aldri. Hann var þekktur fyrir bar­áttu sína gegn aðskiln­að­ar­stefn­unni og ötull tals­maður mann­rétt­inda.

Filippus prins

Filippus her­tog­inn af Edinborg og eig­in­maður Elísa­betar drottn­ingar lést í Windsor-kast­ala þann 9. apríl. Filippus hefði orðið 100 ára í júní síð­ast­lið­inn. Hann var einn mátt­ar­stólpa bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar en hans aðal­hlut­verk var alla tíð að vera drottn­ing­ar­maður.

Guðmundur Steingrímsson

Guð­mundur Stein­gríms­son lést um miðjan apríl. Guð­mundur var gjarnan kall­aður Papa Jazz, og lék með fjölda djass- og dans­hljóm­sveita á ferli sem spann­aði um 70 ár. Guð­mundur kom fram opin­ber­lega fram á níræð­is­aldur og spil­aði jafn lengi inn á plötur.

Gunilla Bergström

Sænski rit­höf­und­ur­inn Gunilla Bergström lést í ágúst, 79 ára að aldri. Bækur hennar um Einar Áskel, Alfons Åberg á frum­mál­inu, hafa komið út á hátt í fjöru­tíu tungu­málum. Bergström hlaut fjölda við­ur­kenn­inga á ferl­inum fyrir bæk­urnar, sem hún mynd­skreytti sjálf.

Gunnar Birgisson

Gunnar Birg­is­son, fyrr­ver­andi alþing­is­maður og bæj­ar­stjóri Kópavogs og Fjalla­byggðar, lést í júní. Gunnar var odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Kópavogi frá 1990 og for­maður bæj­ar­ráðs. Hann tók við starfi bæj­ar­stjóra Kópavogs árið 2005 og gegndi því til 2009. Gunnar sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­nes- og síðar Suð­vest­ur­kjör­dæmi frá 1999 til 2006. Hann var bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar frá 2015 til 2019.

Juan Joya Borja

Spænski grínist­inn Juan Joya Borja lést í lok apríl, 65 ára að aldri. Fæst þekkja kannski nafn hans en mörg þekkja mynd­band með honum í sjón­varps­við­tali skelli­hlæj­andi afar smit­andi hlátri hefur farið geyst um netið. Mynd­skeiðið hefur verið textað á ýmsan hátt. Í mynd­skeið­inu sagði hann í raun og veru frá óförum sínum þegar hann var feng­inn sem starfs­maður á veit­inga­stað til að þvo tutt­ugu steik­arpönnur með því að setja þær í sjó­inn.

Jón Sigurbjörnsson

Jón Sig­ur­björns­son, leik­ari og óperu­söngv­ari, lést í lok nóv­em­ber, 99 ára að aldri. Jón steig sín fyrstu skref á leik­sviði hér hjá Leik­fé­lagi Reykja­víkur vorið 1949 og var svo fast­ráð­inn við Þjóð­leik­húsið í fjölda ára. Hann fór þaðan til Leik­fé­lags Reykja­víkur, og var leik­ari og leik­stjóri þar í ára­tugi.

Jón Sigurðsson

Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, seðla­banka­stjóri og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, lést í sept­em­ber 75 ára að aldri. Jón var seðla­banka­stjóri frá 2003 til 2006 þegar tók hann við emb­ætti iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra í rík­is­stjórn Geirs H. Haarde. Hann sat á ráð­herra­stóli til 2007 og var for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á sama tíma.

Kurt Westergaard

Danski skop­mynda­teikn­ar­inn Kurt Westergaard lést í júlí 86 ára að aldri. Westergaard er lík­lega þekkt­astur fyrir skop­myndir sínar af Múhameð spá­manni sem birt­ust á síðum Jót­land­s­pósts­ins árið 2005. Teikn­ing­arnar ollu miklu fjaðrafoki og reiði víða.

Larry King

Larry King during Bette Midler on „Larry King Live“ at CNN Studios in Hollywood, CA, United States. (Photo by SGranitz/WireImage)

Banda­ríski sjón­varps­mað­ur­inn Larry King lést 23. jan­úar. King var einn af þekkst­ustu sjón­varps­mönnum Banda­ríkj­anna og starf­aði á fjöl­miðlum í sex­tíu og þrjú ár. Frægastur var hann fyrir við­tals­þætti sína, Larry King Live, á sjón­varps­stöð­inni CNN, sem voru í sýn­ingu í tutt­ugu og fimm ár.

Mikis Theodorakis

Gríska tón­skáldið Mikis Theodorakis lést í sept­em­ber, 96 ára að aldri. Samhliða tón­smíðum lét hann póli­tík sig mikið varða og var einn af þekkt­ustu and­stæð­ingum her­for­ingja­stjórn­ar­innar sem tók völdin í Grikk­landi 1967. Theodorakis var þó lík­lega þekkt­astur fyrir tón­list­ina við kvik­mynd­ina um Grikkj­ann Zorba frá 1964.

Styrmir Gunnarsson

Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, lést í ágúst á heim­ili sínu í Kópavogi. Styrmir hóf störf á Morg­un­blað­inu árið 1965 og varð rit­stjóri sjö árum seinna. Hann starf­aði í fjöru­tíu og þrjú ár á Morg­un­blað­inu. Styrmir skrif­aði all­nokkrar bækur um stjórn­mál og lét hann geð­heil­brigð­is­mál sig ávallt miklu varða.

Svavar Gestsson

Svavar Gestsson, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður, lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala í jan­úar 76 ára að aldri.

Tom Moore

Sir Tom Moore, fyrr­ver­andi kapteinn í breska hernum, lést af völdum COVID-19 í febr­úar hund­rað ára að aldri. Hann vakti athygli víða um heim í byrjun far­ald­urs­ins þegar hann gekk í kringum heim­ili sitt í Bed­ford­skíri í Bret­landi og safn­aði áheitum til styrktar heil­brigð­is­kerf­inu. Honum tókst að safna upp­hæð sem sam­svarar tæpum sex millj­örðum íslenskra króna. Moore var aðlaður af Breta­drottn­ingu fyrir fram­takið í sumar.

Vilborg Dagbjartsdóttir

Vilborg Dag­bjarts­dóttir, skáld og kenn­ari, lést í sept­em­ber 91 árs að aldri. Vilborg fædd­ist á Hjalla á Vest­dals­eyri þann 18. júlí árið 1930. Hún nam leik­list um skeið hjá Lárusi Palssyni en lauk síðar kenn­ara­prófi frá Kenn­ara­skóla Íslands. Einnig lærði hún bóka­safns­fræði við Háskóla Íslands.

Meðfram rit­störfum starf­aði Vilborg sem kenn­ari við Aust­ur­bæj­ar­skóla í 43 ár. Stór hluti höf­unda­verks hennar eru sögur handa börnum, bæði þýddar og frum­samdar. Hún var einn frum­kvöðla að stofnun Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar og sat lengi í stjórn Menn­ingar- og frið­ar­sam­taka íslenskra kvenna. Hún hefur átt sæti í stjórn Stétt­ar­fé­lags íslenskra barna­kenn­ara, Rit­höf­unda­fé­lags Íslands og Rit­höf­unda­sam­bands Íslands.

Vilborg gaf út sína fyrstu ljóða­bók, Laufið á trjánum, árið 1960 og var hún þá ein af fáum konum hér á landi sem ortu atóm­ljóð. Ljóð hennar hafa verið birt í erlendum safn­ritum og tíma­ritum á fjölda tungu­mála.

Þórunn Egilsdóttir

Þórunn Egils­dóttir fyrrum þing­maður lést í júlí, 56 ára að aldri. Hún lést á Sjúkra­hús­inu á Akureyri en bana­mein hennar var krabba­mein. Þórunn var kjör­inn þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi árið 2013 og var for­maður þing­flokks­ins 2015 og 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi