Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna Kristjáns er sjötug í dag: „Ég tek samt alveg á móti gjöfum þótt engin verði afmælisveislan“

Anna Kristjáns er sjötug í dag: „Ég tek samt alveg á móti gjöfum þótt engin verði afmælisveislan“
Anna Krist­jáns­dóttir.

Hin bráð­skemmti­lega og lipri penni, Anna Krist­jáns­dóttir, er sjö­tug í dag. Hún býr nú á Tenerife og skrifar pistla um lífið á spænsku eyj­unni undan ströndum Afríku, á hverjum ein­asta degi. Hún er þó stödd á Íslandi í augna­blik­inu. Nýjasti pistill­inn er afmælispist­ill. Og hann er fullur af hár­fínum húmor eins og oft­ast hjá Önnu.

„Ég við­ur­kenni sök mina. Ég telst ekki lengur vera ung­lingur heldur full­orðin. Það var víst á þessum degi fyrir 70 árum síðan sem ég kom í þennan heim eins og frelsandi eng­ill og for­eldr­arnir horfðu á nýfætt barnið í jöt­unni (sic!) og sögðu hvort við annað: „Full­komnun er náð. Við þurfum ekki að gera fleiri til­raunir til að búa til hina full­komnu mann­eskju“. Með fæð­ing­unni hættu þau að gera það og snéru sér að öðrum skemmti­legri áhuga­málum en að búa til börn. Ég ætla ekk­ert að rifja upp hið mjög svo ham­ingju­ríka upp­eldi mitt hér og nú. Það hefur þegar verið fært til bókar og gefið út og grunar mig að tals­vert sé enn til af upp­lagi bók­ar­innar á hola­bok.is.“

Anna fer því næst yfir plön afmæl­is­dags­ins.

„Í til­efni af afmæl­is­deg­inum fékk ég nagla­snyrt­ingu og augn­háraplokkun hjá Kristrúnu frænku og hár­litun hjá Erlu. Helena dró mig svo í skó­búð og valdi á mig nýja spari­skó og svo eina í slabbið á Íslandi að vetri til svo nú má ég henda gömlu Íslands­hæfu spari­skónum. Afmæl­is­dag­ur­inn stefnir í að verða nokkuð enda­sleppur. Sumir eru í sótt­kví, aðrir í sjálf­skip­aðri sótt­kví og fyrir bragðið er ómögu­legt að safna saman nán­ustu fjöl­skyldu­með­limum. Ég tek samt alveg á móti gjöfum þótt engin verði afmæl­is­veislan fyrr en síðar, enda fjöldi smit­aðra orð­inn geig­væn­legur þótt sjálf hafi ég ekki miklar áhyggjur. Tvö barna minna telj­ast í áhættu­hóp, þar á meðal sonur minn sem er með gjafa­nýra. Fyrir bragðið er hætta á að ég fari ein í mína afmæl­is­veislu sem er þá eðli­leg­ast að verði haldin á Bæjarins bestu.“

Eitt af því sem fylgir sjö­tugs­af­mæl­is­dögum er end­ur­nýjun á öku­skír­tein­inu og af því hefur Anna áhyggjur.

„Ég hefi áhyggjur af einu til við­bótar. Í dag er síð­asti dag­ur­inn sem öku­skír­teinið mitt er í gildi. Ég er að vísu búin að sækja um end­ur­nýjun og fara í lækn­is­skoðun, en komst að því fyrir þremur vikum síðan að það tekur heilan mánuð að útbúa nýtt skír­teini. Spán­verjar eru sko ekk­ert að flýta sér við slíka hluti. Það gæti orðið vand­ræða­legt augna­blik ef ég skyldi verða stöðvuð af lög­reglu þessa daga sem ég verð á Íslandi og þarf að fram­vísa bráða­birgða­fram­leng­ingu á öku­skír­tein­inu á spænsku. Ég er ekki viss um að allir lög­reglu­þjónar á Íslandi séu betri í spænsku en ég sem er hræði­leg í spænsku.“

Anna hálf­sér eftir að hafa komið til Íslands því hún er að frjósa í hel.

„Þótt ég sé orðin þetta háöldruð er ekki þar með sagt að ég fari að selja Mjall­hvíti og fá mér CRV. Svo gömul er ég ekki. En mér er kalt hérna á hjara ver­aldar. Fyrir bragðið er ég hálf­part­inn farin að sjá eftir þeirri skyndi­á­kvörðun minni að hafa farið til Íslands í stað meg­in­lands Spánar þar sem ég veit að hefði verið vel tekið á móti mér. En það er alltaf gott að vera vitur eft­irá.“

Í lok pistils­ins segir hún það bull að hún sé sjö­tug í dag.

„Að lokum vil ég ítreka eitt. Það er bara bull að ég sé sjö­tug í dag. Ég er nefni­lega bara 26 ára og verð ekki 27 fyrr en 24. apríl næst­kom­andi. Ég end­ur­fædd­ist nefni­lega þann dag árið 1995. En ég tek samt á móti gjöfum í til­efni af upp­haf­legu fæð­ing­araf­mæli mínu.“

Mannlíf óskar Önnu inni­lega til ham­ingju með stóraf­mælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi