Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Tantrafræðin lýsa kynlífi sem einni af grunnþörfum mannsins“

„Tantrafræðin lýsa kynlífi sem einni af grunnþörfum mannsins“
Natha Yogacenter Reykja­vík

„Kynorkan knýr okkur áfram, ýtir undir lang­anir og gerir okkur for­vitin um heim­inn. Kynorkan kveikir í okkur og fær okkur til að upp­götva nýjar hliðar á til­ver­unni, sér­stak­lega ef þær lofa nautn og vellíðan. Ef þessi orka er í ójafn­vægi getur það fram­kallað allskyns fíkn, lang­anir eða sjúk­dóma sem geta dregið okkur til dauða.“

Blaða­maður Mannlífs ræddi við Serafim Arnar Hólm, einn af eig­endum Natha Yogacenter sem er til húsa í smiðju­hverf­inu í Kópavogi. Natha Yogacenter kennir jóga og tantra á grunni shai­visma, heim­speki­stefnu sem einnig er kennd við trika. Tantra er sá hluti jóga­iðk­unar sem byggður er á svoköll­uðum Veda-fræðum Indverja sem mið­ast að því að hraða á þroska og þróun mann­eskj­unnar.

Það kemur Serafim stöðugt á óvart hversu auð­velt það er að umbreyta lífi okkar til hins betra. Nemendur koma til hans á nám­skeiðin í Natha Yogacenter með alls kyns vanda­mál en kom­ast oft fljótt að því hversu lít­il­væg vanda­mál þeirra voru í raun og veru.

Það er Serafim hjartans mál að nemendur hans öðlist nýjan skilning:

„… að það verði til einhver skilningur hjá nemendunum okkar þar sem þau fara að upplifa vandamál sín á annan hátt, jafnvel að þau séu ekki eins stór og þeim fannst áður og brosi í dag að því sem þeim fannst vera vandamál.“

Eigendur Natha Yogacernter. Magda­lena og Serafim Arnar

Kynnt­umst tveimur árum seinna
Serafim kynnt­ist Natha Yogacenter í Danmörku árið 1993, þegar vin­kona hans sagði honum frá tantra­nám­skeiði á Købma­gergade 26 í Kaup­manna­höfn.

„Þar sem ég hafði mik­inn áhuga á tantra, sexual tao og þess háttar þá sló ég til og fór ásamt þáver­andi kær­ustu minni á nám­skeiðið. Við fórum fljót­lega að stunda Hatha-jóga í skól­anum þar sem ég kynnt­ist svo núver­andi konu minni. Við hófum námið sama ár en kynnt­umst ekki fyrr en tveimur árum seinna.“

Natha Yogacenter er hluti af ATMAN – International Federation of Yoga and Meditation. Allir jóga­kenn­arar sam­bands­ins þurfa að taka þátt í jóga­nám­skeiðum skól­ans og hafa iðkað jóga í tvö ár áður en þeir geta hafið kenn­ara­nám. Sjálft námið tekur að jafn­aði tvö ár – kennt er um helgar, annan hvern mánuð. Náminu lýkur með tveimur prófum; verk­legu og skrif­legu.

Það eru gerðar miklar kröfur gerðar tantra-jóga­kenn­ara. Nemendur þurfa að þreyta  inn­töku­próf og að því loknu tekur við nám í fjögur ár. Námið skipt­ist í átta lotur sem taka hver um sig 10 daga og er dreift yfir fjögur ár. Til þess að útskrif­ast verður nem­and­inn að stand­ast verk­legt og skrif­legt próf og skila inn verk­efni sem er valið sér­stak­lega fyrir við­kom­andi.

Serafim hóf nám við skól­ann 1993 og fór að kenna þremur árum síðar sam­hliða fram­halds­námi í fræð­unum. Serafim kláraði hvort tveggja og útskrif­að­ist úr jóga­nám­inu 2006 og sem tantra­kenn­ari 2017. Eins og gefur að skilja hefur Serafim margt að segja okkur um mik­il­vægi kyn­lífs.

Skoða okkur sjálf án fordóma

Natha Yogacenter Reykja­vík. Para­vinna

„Kynlíf er mik­il­vægur hluti þess að vera mann­eskja. Því miður hefur kyn­líf verið bælt niður í mann­inum í árþús­undir. Þetta hefur haft hörmu­legar afleið­ingar á mann­kynið, þar sem við erum að bæla nauð­syn­legar þarfir mann­eskj­unnar. Afleið­ing­arnar eru meðal ann­ars stöðugar kyn­lífslang­anir eða and­staða við þær, þ.e bæl­ing. Hvort tveggja er skað­legt fyrir þroska okkar og ham­ingju.“

„Tantra­fræðin lýsa kyn­lífi sem einni af grunn­þörfum manns­ins. Þetta við­horf er nauð­syn­legt til að við getum skoðað okkur sjálf án for­dóma eða hlut­drægni,“ segir Serafim.

Honum finnst vanta upp á sam­fé­lags­kennslu innan þess­ara fræða. Hann segir enn­fremur:

„Samfélagið býr ekki lengur yfir þekkingu því hvernig sé best að rækta heilbrigt kynlíf.“

„Það sem mér finnst best er að vera ekki lengur undir álögum kyn­hvat­ar­innar en geta samt notið kyn­lífs, þegar ég óska þess. Auðvitað spilar það líka inn í að tantra kennir karl­mönnum að stjórna sáð­láti sínu. Það gefur þeim mögu­leika á að upp­lifa rað­full­næg­ingar til jafns við konur. Kynlíf og full­næg­ingar verða líka öfl­ugri og sam­tengd­ari kær­leika og nánd við mak­ann.“

Margir hafa örugg­lega upp­lifað kyn­líf sem er fullt af kær­leika og nánd og kær­leika, þar sem elskendur bráðna saman í eina ver­und og upp­lifa eitt­hvað sem er miklu stærra en venju­legt kyn­líf. Tantra hjálpar til við að gera slíkar upp­lif­anir reglu­bundnar og enda­lausar, þ.e. við hættum þegar við erum algjör­lega full­nægð — ekki þegar sáð­látið hefur fjar­lægt getu karl­mannsinns til að halda áfram.

„Hægt og síg­andi hættir sá sem iðkar jóga að vera leiksoppur ytri örlaga en tekur þess í stað í taumana á eigin lífi, mótar það og þroskar eftir eigin höfði. Í því ferli breyt­ist það sem við sjáum og finnst vera mik­il­vægt.

Einfaldleikinn verðu augljós og flækjustig lífsins viðráðanlegt.“

Natha yogacenter Reykja­vík. Jóga­á­stundun

Kyn­lífs­orkan þurfi ekki að vinna gegn okkur
Serafim og kona hans kenna hefð­bundið Hatha-jóga, sem er fyrst og fremst þekkt fyrir lík­ams­stöður (asana). Þar fylgja þau þar hinum átta greinar jóga (ashtanga) eins og Patanjali lýsir þeim í bók sinni Yoga Sutras, en hann  hefur verið kall­aður faðir Hatha-jóga.

Tantra­fræðin ganga út frá því að kyn­lífs­orkan þurfi ekki að vinna gegn okkur heldur getum við tamið þessa „villtu hesta” og látið þá draga „vagn” okkar þangað sem við viljum í stað þess að stjórn­ast af fíkn nautna af ýmsu tagi, þar með talið kyn­lífslöngun.

Serafim segir að til þess að temja hest­ana verðum við fyrst og fremst að þekkja þessa orku þegar hún sýnir sig og læra að stýra henni að vild. „Þetta krefst þess að við verðum með­vituð um það sem er að ger­ast innan í okkur í stað þess að ánetj­ast því, bæla það eða hafa það að engu. Þetta krefst sjálf­skoð­unnar, ein­lægni og vilja til að bæta sjálfan sig.“

Jóga­iðkunin hefur umbreytt lífi Serafim og hann hefur séð hið sama ger­ast hjá þús­undum ann­arra með iðkun jóga og tantra í gegnum árin.

„Þegar við förum að horfa inn á við, skoða okkur sjálf og tengja það hug­mynda­fræð­inni sem er kennd í skól­anum þá komum við auga á alls­konar flýti­leiðir. Allt í einu skiljum við hvað þarf til þess að efla sjálfs­á­lit okkar og vilja­styrk, vekja kær­leika okkar á okkur sjálfum og öðrum.

Það sem áður var þoku­kennt og óskilj­an­legt verður kort­lagt og leiðin verður skýr.“

Finna frið og til­gang
Áhrif jóga og tantra á sjálfs­mynd og líðan Serafims sjálfs eru dæmi um þau jákvæðu umskipti sem verða á við­horfi fólks til lífs­ins: „Ég fór frá því að finn­ast ég vera villtur í ókunnum og fjand­sam­legum heimi, í það að finna frið og til­gang í heimi sem alltaf skaffar mér það sem mig vantar.“

Eðl­is­fræðin kennir okkur það að orku er ekki hægt að skapa úr engu. Hins vegar er hægt að breyta orku frá einu formi yfir í annað. Serafim sér tantra þeim augum,  að tantra geri ráð fyrir sams­konar orku­skiptum innra með  mann­eskj­unni.

„Lífsorka okkar getur tekur á sig margar myndir og er hluti af frumorku manns­ins, orkunni  sem heldur í okkur lífi, byggir upp sjálfs­bjarg­ar­við­leitni okkar og hvatir. Kyn­hvötin er sú orka sem heldur mann­inum á lífi. Eins og ég nefndi áðan þá gerir þessi orka okkur for­vitin um umhverfi okkar og aðrar mann­eskjur. Við sækj­umst eftir sam­neyti við aðra, við viljum til­heyra hópnum og finnum okkar sess í honum. Við erum líka á hött­unum eftir því að finna sér­staka mann­eskju, mann­eskju sem við finnum löngun til að sam­ein­ast kyn­ferð­is­lega. Eins og við vitum getur kynorkan orðið ofboðs­lega öflug og gefið fólki kraft til að kom­ast yfir hindr­anir.  En að sama skapi getur hún komið fólki í alvar­leg vand­ræði.“

Knýja fram þroska og aukna með­vit­und
Serafim bendir á  að í flestum trú­ar­brögðum og dul­speki­kerfum sé varð­veisla þess­arar frumorku ein af grunn­skil­yrðum þess að ná árangri í and­legri iðkun. Ástæðuna telur hann þá að mað­ur­inn þarfn­ist þess­arar orku til að knýja fram þroska og aukna með­vit­und. „Sú leið sem er þekkt­ust í lang­flestum and­legum þroska­kerfum er skír­lífi, þ.e. að við­kom­andi haldi sig frá kyn­lífi til að koma í veg fyrir að tapa frá sér þess­ari frumorku. Það hefur svo valdið alls­konar mis­skiln­ingi og rang­túlk­unum um að kyn­líf sé synd­ugt, óhreint og skammar­legt. Þessar hugs­anir eru eitt­hvað sem við öll líðum fyrir enn þann dag í dag.“

Tantra kennir okkur að til eru leiðir til að halda í þennan dýr­mæta hluta af lífi okkar, kyn­lífið sjálft. Sé rétt að því staðið skapar það nánd og kær­leika og kemur í veg fyrir ork­una sem tap­ast hjá karl­mann­inum við sáð­lát. Það þýðir að karl­mað­ur­inn lærir að skilja á milli  full­næg­ingar og sáð­láts. Það þarf líka að nálg­ast kyn­lífið á réttan hátt. Það þarf að hvíla á gagn­kvæmum kær­leika og virð­ingu. „Kynlífið verður að helgri athöfn þar sem aðil­arnir mæt­ast í kær­leika og bráðna saman í gegnum ást­ar­leiki sem geta varað klukku­tímum saman, sem er eitt af því sem hefur gert tantra frægt,“ segir Serafim og brosir góð­lát­lega.

Hann segir að allt ger­ist þetta í vak­andi með­vit­und elskend­anna, þ.e. þeir hverfa aldrei alger­lega í nautn­ina, heldur halda þeir jafn­vægi á milli nautnar og með­vit­undar; dálítið eins og þegar við höldum jafn­vægi á reið­hjóli. Við „hverfum“ aldrei alveg, við getum ekki sofnað eða tekið athygli okkar alveg frá því að hjóla af því að þá myndum við detta af hjól­inu. Samt engin áreynsla fólgin í að halda þessu jafn­vægi, aðeins með­vit­und og núvit­und. Við erum vak­andi hér og nú. Þannig lærum við að varð­veita kynorku okkar til þess að nýta hana ann­ars staðar í líf­inu, sér­stak­lega til að breyta með­vit­und okkar.

Sjón­ar­horn karl­manns
„Ég hef hérna lýst þessu frá sjón­ar­horni karl­manna,“ segir Serafim  „þar sem þeirra orku­tap er svo aug­ljóst í sáð­lát­inu sem bindur enda á þeirra kynæs­ing. Konur missa líka orku í gegnum sumar teg­undir full­næg­inga en fyrst og fremst í gegnum blæð­ingar.

Það krefst lengri lýs­inga og útskýr­inga til að gera þessu ásætt­an­leg skil.“

Serafim fer í gegnum ýmsa þætti þess­ara kenn­inga á nám­skeiðum sínum; sér­stak­lega Sacred Sexu­ality, nám­skeiði þar sem fjallað er sér­stak­lega um þann hluta tantra sem snýr að kyn­lífi og parsam­böndum. Í stuttu við­tali er aðeins hægt að gægj­ast undir yfir­borðið á þessum fræðum sem eru bæði djúp og viða­mikil og varða alla þætti þess að vera mann­eskja.

Námskeið, vinnu­stofur og við­burðir
Natha Yogacenter á Íslandi var sett á stofn árið 2007 þegar Serafim og Magda­lena, konan hans, fluttu til Íslands. Þau voru í fyrstu hjá Auði og Ástu í Jóga­setr­inu Lótus en eru núna í eigin hús­næði á Smiðju­vegi 4.

Natha og aðrir skólar innan ATMAN hafa alla tíð verið reknir af sjálf­boða­liðum og sú er einnig raunin á Íslandi. Þar starfar teymi fimm kenn­ara í jóga og tantra og kenna Sacred Sexu­ality, Tantra for Women ásamt því að standa fyrir smærri nám­skeiðum, vinnu­stofum og öðrum við­burðum. Allir nem­end­urnir hafa mögu­leika á að fara í kenn­ara­nám og sækja um að kenna í skól­anum.

Fyrir Serafim er það mik­il­vægt að þekk­ingin sem skól­inn býr yfir verði haldið við og að Íslend­ingar fái áfram að njóta þess að hafa aðgang að þessum ómet­an­legu fræðum. Þau hjá Natha Yogacenter leggja áherslu á að fylgja hefð­bundnum aðferðum sem reynst hafa vel. Þau líta ekki á jóga sem leik­fimi heldur sem aðferð til að umbreyta með­vit­und­inni. Í þeirra augum er mik­il­vægt að nem­endur skilji hvað það er sem fær jóga­stöð­urnar til að virka eins og þær gera, hvaða grund­vall­ar­reglur eru þar að verki.

Nám­skeiðin eru bæði fræði­leg og verk­leg. Í byrjun er farið í að skoða hvernig staðan virkar, hvaða orku hún vekur og hvað það gerir fyrir  orkuflæðið í lík­am­anum þegar stöð­unni er haldið í ein­hvern tíma. Hug­mynda­fræðin á bak við jóga og tantra er líka útskýrð til að sýna sam­hengið,  því ann­ars gæti þetta allt saman litið út eins og eitt­hvað vúdú.

Hug­myndin er sú að þegar við höfum fengið reynslu af eigin orku, hvernig það sé hægt að hafa áhrif á streymi hennar og eðli, þá förum við að skilja fleiri hlut og öðl­ast dýpri skiln­ing sem ann­ars væri okkur hul­inn.

Við erum nær alltaf upp­tekin í huga okkar
Allir sem hafa reynt að hug­leiða vita að hugur okkar er fullur af hugs­unum sem við erum ekki með­vituð um í dags­ins önn. Við frek­ari eft­ir­grennslan sjáum við að við erum næstum alltaf ómeð­vituð og að með­vit­undin um okkur sjálf og umhverfi okkar varir aðeins stutt, fá og hverful augna­blik sem koma og fara án þess að gera vart við sig. Við erum nær alltaf upp­tekin í huga okkar þar sem við tölum stans­laust við sjálf okkur, dæmum aðra, minn­umst for­tíð­ar­innar eða dreymir um fram­tíð­ina. Þetta verður til þess að við missum af því sem er að ger­ast hérna og núna.

Þetta er gömul þekk­ing sem hefur verið kennd og iðkuð á marga mis­mun­andi vegu. Fyrir stuttu komst núvit­und í tísku en það er einmitt ein leið til að byrja að brjóta þessi álög sem skapa fjar­veru frá eigin lífi. Fleiri aðferðir eru til en jóga er sú heild­stæð­asta og best skráða sem Serafim hefur kynnst.

Nemendur skól­ans
Nemendur Natha Yogacenter hafa í gegnum tíð­ina verið á aldr­inum 25 til 50 ára. Stundum hafa þau fengið til sín yngra fólk, rétt komið af tán­ings­aldri en einnig eldra fólk. „Eg held að elsti nem­andi minn hafi verið 85 ára og sá yngsti 17 ára,“ segir Serafim eftir stutta umhugsun.

Jóga spyr hins vegar ekki að aldri. „Þó að við mælum ekki með að börn yngri en 13–14 ára stundi jóga að stað­aldri þá er gott fyrir börn að leika sér með stöð­urnar og jafn­vel að kynn­ast hug­mynda­fræð­inni að baki. Þau eru hins vegar enn að að vaxa og þroskast og það er nauð­syn­legt fyrir þau að fá að taka út sinn vöxt fyrst.“

Natha Yogacenter leggur áherslu á að kenna jóga sem and­lega þroska­leið. Þau vilja valda breyt­ingum í lífi iðkand­ans, vekja inn­sæið og sam­kennd­ina með sjálfum okkur og öðrum. Þannig kemst meira jafn­væg á lífið. „Þau sem koma til að stunda leikfi fara fljótt eitt­hvert annað. En þau sem hafa áhuga á and­legum þroska finna hjá okkur þann fjár­sjóð sem ég fann fyrir mörgum árum síðan.“

Serafim hvetur fólk til að vera óhrætt við að byrja. Hann bendir á að nýir nem­endur þurfi ekki að hafa neina þekk­ingu á jóga eða tantra til að koma á nám­skeið. „Það þarf ekk­ert sér­stakt til að hefja nám hjá okkur; við byrjum öll þar sem við erum. Það eina sem við öll þurfum að koma með, er vilj­inn til að læra og takast á við eigin þroska.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi