Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meirihluta lesenda Mannlífs fannst Skaupið lélegt eða í lagi: „Ég fílaði eldgosagrínið alveg“

Meirihluta lesenda Mannlífs fannst Skaupið lélegt eða í lagi: „Ég fílaði eldgosagrínið alveg“

Á slag­inu 22:29 í gær­kvöldi sátu lík­leg­ast vel­flestir lands­menn límdir við sjón­varps­skjái sína og fylgd­ust með Ára­mótaskaup­inu. Allir hafa álit á Skaupinu og getur það verið jafn mis­jafnt og við erum mörg. Mannlíf setti í loftið könnun að Skaupinu loknu og spurði ein­fald­lega „Hvernig fannst ykkur Skaupið?“

Nið­ur­stöð­urnar eru þessar.

Rúmlega 40% af þeim sem kusu þóttu Skaupið ömur­legt. Rúm 22% sögðu það frá­bært og rúm 45% fannst það „Svona allt í lagi“.
Ekki nema um 2% þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni horfðu ekki á Skaupið.

Mannlíf fékk einnig nokkra val­in­kunna álits­gjafa til að leggja mat sitt á Ára­mótaskaupið.

Hildur Eir Bolla­dóttir, prestur.

Mér finnst afar ólík­legt að nokkur muni sitja eftir með sárt ennið eftir skaupið í ár, eng­inn tek­inn fyrir með mjög mein­legum hætti enda voru mörg stærstu mál árs­ins 2021 það erfið að kannski vildu höf­undar skaups­ins fara mjúkum höndum um þjóð­arsál­ina. Skaupið sótti í sig veðrið þegar á leið, Kristín Þóra Har­alds­dóttir átti stór­leik sem Lilja Alfreðs­dóttir, mér fannst karla­björg brand­ar­inn mjög góður og satt best að segja hló ég líka upp­hátt að krabba­meins­sýna brand­ar­anum, Kötlu­grínið var gott svo voru bara líka þarna leik­arar sem eru alltaf fyndnir.

Eva Ruza Miljevic, fjöl­miðla­kona og skemmti­kraftur með meiru.

Ára­mótaskaupið byrj­aði vel með upp­hafs­at­rið­inu og framan af hugs­aði ég, já þetta er að svín­virka. Ég skelli­hló til dæmis yfir kaðla­at­rið­inu og fjöl­skyld­unni sem skellti sér að eld­gos­inu, tengdi stíft við það að góla á fjöl­skyld­una að passa sig á covidkaðlinum. Ég hló líka hatt yfir Only Fans pabb­anum og 75.000 kr tips­inu hans. Eeeeen hins­vegar fór það allt í einu að missa pung og ég fór að detta út. Villi Neto er ótví­ræður ára­mótaskaups­meist­ari og ég hefði viljað sjá hann loka skaup­inu með ein­hverri neglu. Hvar var atriðið um alla sem tóku sprett­inn í Laug­ar­dals­höll­ina eins og brjál­æð­ingar til að fá fyrstu spraut­una? Og hvaaaaar var Bónus svína­skets­inn!? Ég hefði viljað sjá það í skaup­inu. Skaupið fær 6,3 í ein­kunn sem er hægt að námunda upp í 6,5. Krakkaskaupið fær hins­vegar 10 í ein­kunn

Grétar Þór Eysteins­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði.

Mér hálf-síð-mið­aldra karl­inum hefur yfir­leitt fund­ist ára­mótaskaupið vera ágætt fyrir mína parta. Gildir þá einu hvort ég hef skelli­hlegið að öllu Skaupinu eða ekki, að það hefur alltaf mátt finna eitt­hvað gott til að hlæja að og svo botnar maður ekk­ert í sumu og finnst eitt­hvað líka vera mis­heppn­aðir fimmeyr­ingar. Þetta skaup er engin und­an­tekn­ing frá þessu. Mér fannst nú brand­ar­inn um fót­boltalands­liðið vera ágætis hug­mynd en var teygt úr honum um of. Það sem ekki var teygt um of var taln­ingin í Borg­ar­nesi. Þar hefði mátt gera meira úr en gert var og einn stuttur fimmeyr­ingur var eini afrakst­ur­inn. En nóg af ein­hverri nei­kvæðni – sem á alls ekki að vera aðal­inntakið hér. Mér fannst gaman að því að sjá djamm­þyrsta fólkið tekið í bak­aríið í covidgríninu. Eins skemmtu bólusetningarbesserwisserarnir mér vel og líka fær­sér orða­leik­irnir sem voru skemmti­lega flétt­aðir yfir í að gera grína að öðru – nefni­lega Facebook fólk­inu sem er svo mik­il­vægt og áhrifa­vald­andi. Ég fíl­aði eld­gosa­grínið alveg en topp­ur­inn var þó undir lokin þegar Freyr Eyj­ólfs­son brá sér í gervi Jakobs Frímanns þing­manns og Stuð­manns. Það var bara nóg að sjá Frey.
En semsé, almennt slapp þetta Skaup alveg til hjá mér. Það væri eitt­hvað að ef að hálf-síð-mið­aldra karlfauskur norður í landi myndi hlæja sig mátt­lausan af öllu efn­inu í ára­mótaskaup­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi