Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tara: „Fitu­for­dómar eru lífs­hættu­legir og er fólki mis­munað innan heil­brigð­is­kerf­is­ins“

Tara: „Fitu­for­dómar eru lífs­hættu­legir og er fólki mis­munað innan heil­brigð­is­kerf­is­ins“
Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson.

„Eins og venja er þegar feit kona stígur fram á sjón­ar­sviðið án þess að sýna auð­mýkt eða skömm fyrir lík­ama sinn varð allt vit­laust,“ en loka þurfti fyrir ummæla­kerfi vegna meið­andi ummæla sem voru þar við­höfð.

Þessi orð lét Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu falla árið 2019 á facebook síðu sinni. Þar var hún að  tala um að henni finnd­ist hún finna sig knúna til að skrifa grein í ljósi þeirra við­bragða sem Ísold Hall­dóru­dóttir fyr­ir­sæta fékk eftir að við­tal við hana birt­ist í tíma­rit­inu Dazed á dög­unum en hún er mikil bar­áttu­kona fyrir lík­ams­virð­ingu.

Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu hefur í gegnum árin varpað ljósi á afleið­ingar fitu­for­dóma á heilsu fólks. Hún hefur talað fyrir því að það hjálpi ekki feitu fólki þegar fólk láti í ljós áhyggjur sínar af heilsu­fars­legu ástandi þeirra, í raun geri það illt verra.

Í aðsendri grein í Kjarn­anum sem hún sendi frá sér á dög­unum og ber heitið Lík­ams­virð­ing­ar­ferða­lag milli tveggja heima í Kjarn­anum biður hún fólk um að leggj­ast í sjálfs­skoðun og kom­ast að því hvaðan við­horf okkar til feits fólks koma og hvort að þau „end­ur­spegli þau gildi sem við viljum til­einka okkur og fara eftir í dag­legu lífi.“

Í grein­inni fer hún heilt yfir fáfræði margra á þessum mála­flokki og hvað mætti betur fara hjá við­horfum fólks;

„Í kjöl­far umfjöll­unar frétta­skýr­ing­ar­þátt­ar­ins Kveiks um offitu barna sem sýndur var nú í haust varð mikil umræða um rétt­mæti slíkrar umfjöll­unar og mögu­legs ávinn­ing og skaða meðal almenn­ings og það er orðið alveg morg­un­ljóst að hér á landi hefur hin nýja heims­mynd náð ágætri fót­festu. Það end­ur­spegl­að­ist í orðum Dóru Guðrúnar Guð­munds­dóttur, sviðs­stjóra á lýð­heilsu­sviði Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins í Kast­ljósi dag­inn eftir sýn­ingu Kveiks þegar hún lagði áherslu á mik­il­vægi þess að horfa á vand­ann út frá heild­stæðu sjón­ar­miði og að unnið yrði mark­visst gegn fitu­for­dómum í sam­fé­lag­inu því að þeir væru í raun skað­legri en kílóin. Þetta er jafn­framt í takt við nið­ur­stöður skýrslu sem unnin var fyrir heil­brigð­is­ráð­herra í jan­úar 2021 um kynja- og jafn­rétt­is­sjón­ar­mið hvað varðar heilsu og heil­brigð­is­þjón­ustu.

Já, hjólin eru svo sann­ar­lega farin að snú­ast í rétta átt. Þó er mikið verk óunnið innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og sam­fé­lags­ins alls. Góðu frétt­irnar eru að við höfum alla burði til að leysa það verk­efni með glæsi­brag. Og fyrsta skrefið í ferða­lag­inu fer fram innra með hverju ein­asta okkar. Við þurfum nefni­lega öll að leggj­ast í sjálfs­skoðun og virki­lega skoða hvaðan við­horf okkar til feits fólks koma og hvort að þau við­horf end­ur­spegli þau gildi sem við viljum til­einka okkur og fara eftir í dag­legu lífi. Því að ekk­ert okkar vill valda öðrum skaða eða sárs­auka. Við viljum öll leiða líf okkar með kær­leik og virð­ingu að leið­ar­ljósi. Það er kom­inn tími til að sú virð­ing inni­feli einnig lík­ams­virð­ingu.

Nú þegar líður að árs­lokum stöndum við á stórum tíma­mót­um. Og ég er ekki bara að tala um ára­mótin. Við, ásamt öllum hinum vest­rænu lönd­unum, höfum nefni­lega verið að berj­ast gegn offitu­grýl­unni und­an­farna ára­tugi en okkur hefur ekk­ert orðið ágengt. Þyngd okkar er enn að aukast. Lífs­stíls­sjúk­dómar eru sístækk­andi ógn við heilsu­far okkar og þjóð­arbú. Hvað gerum við þá?

Við byrjum á þeirri ein­földu ályktun sem hefur verið hvað mest áber­andi; ef að offita veldur verra heilsu­fari þá hlýtur þyngd­ar­tap að leiða til betra heilsu­fars. Þessu höfum við trúað alla okkar ævi, við fáum stöðugt skila­boð frá umhverf­inu um að þetta sé sann­leik­ur­inn, lyk­ill­inn að góðri heilsu og lang­lífi. Við erum reyndar ekki ein um það. 79% Íslend­inga á aldr­inum 18-79 ára eru ósáttir við þyngd sína og telja sig þurfa að létt­ast og 50% okkar eru í megrun. Þetta bara hlýtur að vera rétt, þetta hlýtur að vera byggt á vís­inda­legum rökum! Það er of sárt að hugsa til þess hversu miklir fjár­munir, tími og orka hefur farið í hinar ýmsu þyngd­ar­tap­stil­raunir alla okkar ævi til að þetta geti ekki verið satt! “

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi