Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Friðrik fattaði í skíðaferðinni að eitthvað alvarlegt væri að: „Erfiðast að tilkynna fjölskyldunni“

Friðrik fattaði í skíðaferðinni að eitthvað alvarlegt væri að: „Erfiðast að tilkynna fjölskyldunni“
Friðrik Már Þor­steins­son

„Það breytt­ist allt. Allar pæl­ingar um fram­tíð­ina breytt­ust. Og maður fer að hugsa allt öðru­vísi; ég tel mig þó vera mjög sterkan and­lega,“ segir Friðrik Már Þor­steins­son, stofn­andi og eig­andi Northcoast Sea­foods í Bret­landi. Fyr­ir­tæki hans flytur út um 50 pró­sent af pill­aðri rækju frá Íslandi og var velta fyr­ir­tæk­is­ins um 142 millj­ónir punda í hitti­fyrra.

Allt breytt­ist svo árið 2019 þegar Friðrik Már greind­ist með tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dóm­inn MSA (Multiple System Atrophy) sem hann segir að sé kall­aður Parkison plús. Hann var þá 48 ára gam­all. Um er að ræða fjöl­kerfalömun sem hefur áhrif á ósjálf­ráða tauga­kerfið og missir sjúk­ling­ur­inn stjórn á lík­am­anum og er hrörn­unin hrað­ari heldur en hjá Park­in­son-sjúk­lingum en ein­kennin þykja mörg hver vera lík þeim sem tengj­ast þeim sjúk­dómi. Þá er lík­legt að fleiri ein­kenni komi fram hjá MSA-sjúk­lingum. Friðrik Már hafði fundið ýmis ein­kenni en hann gerði sér grein fyrir því að eitt­hvað mikið væri að þegar hann datt ítrekað í skíða­ferð árið 2019 og fór hann í fram­hald­inu í rann­sóknir.

„Þegar ég horfi til baka þá voru fyrstu ein­kennin fjölgun kló­sett­ferða. Þó svo engir tveir sjúk­lingar með MSA séu eins þá eiga þeir eitt sam­eig­in­legt: Þvag­blöðru­vanda­mál.

Mig minnir að það hafi verið um árið 2015 að kló­sett­ferðum fór fjölg­andi en það var fjórum árum áður en ég greind­ist. Rit­höndin var farin að breyt­ast en ég var far­inn að skrifa mjög smátt letur.

Þessum sjúk­dómi fylgir svaka tillfinn­inga­flækja.

Ég hafði verið í lík­ams­rækt í um 12 ár áður en ég greind­ist og hef talið mig and­lega hraustan ein­stak­ling og þetta er ákveðið verk­efni sem þarf að takast á við. Það er stutt á milli hlát­urs og grát­urs. Þessum sjúk­dómi fylgir svaka tillfinn­inga­flækja. Ef ég fæ til dæmis hól eða heyri fal­lega tón­list get ég brostið í grát sem getur endað með hlátri.“

Hvað var erf­ið­ast við að fá grein­ing­una?

Þögn.

„Að til­kynna fjöl­skyld­unni um það.“

Röddin

Ein af afleið­ingum MSA er að við­kom­andi missir rödd­ina smátt og smátt.

„Í nóv­em­ber 2019, sex mán­uðum eftir að ég greind­ist, fór ég með erindi á rækju­ráð­stefnu í Kanada. Ég hafði til­kynnt öllum að ég væri með Park­in­sons eins og ég hafði verið greindur upp­runa­lega en var ekk­ert far­inn að aug­lýsa það að ég væri með MSA. Eftir að ég hafði flutt erindi mittt kom vinur minn til mín og sagði mér að röddin mín væri öðru­vísi; að ég ætti erf­ið­ara með að bera fram sum orð en önnur.“

Röddin er í besta lagi í dag. Stundum er ég alveg óskilj­an­legur.

Það er erfitt að skilja það sem Friðrik Már segir. Þó hafði hann skrifað í Messen­ger-skila­boðum til blaða­manns þegar fal­ast var eftir við­tali að röddin væri í betra lag­inu þann dag­inn og að von­andi myndi blaða­maður skilja hann. „Ég bið þig um að ég end­ur­taki ef þú skilur mig ekki; þú heyrir að röddin er að gefa sig,“ segir hann svo við blaða­mann í við­tal­inu. „Röddin er í góðu lagi núna miðað við suma daga. Röddin er í besta lagi í dag. Stundum er ég alveg óskilj­an­legur.“

Önnur lík­am­leg geta hefur versnað mikið og í dag getur Friðrik Már gengið með göngu­grind og hann er far­inn að fá aðstoð heil­brigð­is­starfs­manns við að kom­ast á fætur, fara í sturtu og klæð­ast kvölds og morgna. „Ég hef alltaf verið mjög sjálf­stæður og það hefur verið einna verst að missa sjálf­stæðið og vera öðrum háður. Ég get ekki lengur verið einn.“

Svo er ég á leið á skíði í lok jan­úar því félag­arnir grófu upp kenn­ara í Aust­ur­ríki sem getur fylgt mér sitj­andi niður brekk­urnar.

Athafna­mað­ur­inn á sér mörg áhuga­mál og hefur hann þurft að gefa sum upp á bát­inn vegna veik­ind­anna. „Ég varð að losa mig við mót­or­hjólð og golf­kylf­urnar eru farnar að safna ryki. Ég er þó ekki hættur að fara á völl­inn; Anfield er með gott hjóla­stóla­að­gengi. Svo er ég á leið á skíði í lok jan­úar því félag­arnir grófu upp kenn­ara í Aust­ur­ríki sem getur fylgt mér sitj­andi niður brekk­urnar.“

Hljóðgerfill í þróun

Fiðrik Már fékk þá hug­mynd í fyrra að þróa hljóð­gerfil fyrir íslenska tungu en fólk gæti þá tekið upp eigin rödd sem síðan yrði sett á tal­gerfil ef fólk missir svo rödd­ina. Friðrik Már lét taka upp rödd­ina sína á ensku í hitti­fyrra. Hann mun því geta notað smá­forrit til að tjá sig með tal­ger­fli en foritið mun verða í sím­anum hans eða í iPad. Þetta var hins vegar ekki hægt þegar kom að okkar ylhýra en það þarf að þróa sér­stakan hljóð­gerfil fyrir móð­ur­málið.

Hug­myndin er að rödd Friðriks Más verði notuð til aðstoðar við þróun hug­bún­aðar fyrir íslenskan radd­banka.

„Ég fór til Íslands í fyrra og lét taka upp rödd­ina mína á íslensku,“ segir hann en svona tækni kall­ast „radd­banki“ en Háskól­inn í Reykja­vík aðstoð­aði við verk­efnið. Hug­myndin er að rödd Friðriks Más verði notuð til aðstoðar við þróun hug­bún­aðar fyrir íslenskan radd­banka. Það vantar ein­fald­lega hug­bún­að­inn og nú er verið að þróa smá­forrit með þetta verk­efni í huga og er það einmitt í sam­starfi við HR og hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Tiro.

Daga­talið og hálf­nöktu karl­menn­irnir sjö

Svona hljóð­gerf­ill kostar sitt og fékk Friðrik Már hug­mynd að því hvernig hægt væri að fjár­magna hluta verk­efn­is­ins: Stofna styrkt­ar­sjóð. Honum varð hugsað til æsku­vin­anna sex á Dalvík og ákveðið var að búa til daga­tal og birta myndir af þeim: Úr varð að þeir fækk­uðu allir fötum, huldu sitt „heilag­asta“ eins og hann kallar það og sátu fyrir svona klæða­litlir í íslenskri nátt­úru. Þannig kall­ast nátt­úra karl­manns­ins á við íslenska nátt­úru á mynd­unum.

Hvers vegna að sitja – eða standa – fyrir naktir?

„Okkur fannst þetta vera fyndið.“

Allt var unnið í sjálf­boða­vinnu og höfðu vin­irnir sjö gaman af þessu – klæddir Nokia-stíg­vélum en þeir voru í slíkum stíg­vélum átta ára gamlir á tombólu­mynd en reyndar voru þau stíg­vél nátt­úr­lega þó nokkrum núm­erum minni.

Daga­talið kostar almennt 2000 krónur auk þess sem sjóð­ur­inn, Röddin mín, þiggur frjáls fram­lög.

Ágóðinn af sölu daga­tals­ins rennur óskiptur til verk­efn­is­ins, Röddin mín,  og seg­ist Friðrik Már halda að daga­talið sé komið í öll hús á Dalvík.

Daga­talið kostar almennt 2000 krónur auk þess sem sjóð­ur­inn, Röddin mín, þiggur frjáls fram­lög. Hægt er að panta dagaal eða leggja verk­efn­inu lið með því að milli­færa á: Banki 0537 – 14 – 7245 – kt.: 621121-2000.

Þeir sem vilja sækja daga­töl geta gert það á fast­eigna­söl­unni Domusnova, Hlíða­smára 4. Einn af vinum Friðriks Más vinnur þar. Þá er hægt að fá heim­sent og er þá best að senda tölvu­póst til: [email protected].

Hér eru svo styrkt­ar­síma­númer:

907-1502 fyrir 2.000kr.
907-1506 fyrir 6.000kr.
907-1510 fyrir 10.000kr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi