Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólöf hjá Eflingu – var rekin frá Icelandair: „Aldrei búinn að tapa fyrr en maður hættir að berjast“

Ólöf hjá Eflingu – var rekin frá Icelandair: „Aldrei búinn að tapa fyrr en maður hættir að berjast“
Ólöf Helga Adolfs­dóttir

„Ég hef verið í vara­for­manns­emb­ætt­inu í tvo mán­uði og mér finnst þetta mjög áhuga­vert starf. Á þessum tveimur mán­uðum sem ég hef sinnt starfi vara­for­manns hef ég lært margt, bæði um sjálfa mig og um Eflingu, og ég finn bara að þetta starf á mjög vel við mig og ég vil halda áfram. Nú erum við að detta í kjara­samn­inga og er það stórt og mikið verk­efni sem við Agnieszka Ewa Ziółkowska, starf­andi for­maður Eflingar og kjör­inn vara­for­maður, erum spenntar að fara í með því öfl­uga fólki sem starfar í þágu Eflingar.

Ég vil styrkja stöðu trún­að­ar­manna en það for­dæmi sem Icelandair og SA virð­ast ætla að setja með því að segja upp trún­að­ar­manni í haust er hættu­legt öllu launa­fólki í land­inu, trún­að­ar­menn þurfa að geta treyst á upp­sagn­ar­vernd­ina þegar þeir eru að berj­ast fyrir sig og félaga sína,“ segir Ólöf Helga Adolfs­dóttir, starf­andi vara­for­maður Eflingar, í við­tali við Mannlíf en hún hefur til­kynnt að hún ætli að gefa kost á sér í emb­ætti for­manns stétt­ar­fé­lags­ins.

Ólöf Helga hefur gegnt emb­ætti vara­for­manns Eflingar frá því í nóv­em­ber eða frá því að Sólveig Anna Jóns­dóttir hætti þar störfum.

Ég hef einnig mik­inn áhuga á að draga meira inn unga fólkið; mér finnst mik­il­vægt að fá raddir þess að borð­inu.

„Svo vil ég nátt­úr­lega halda áfram því starfi sem Efling hefur unnið að síð­ustu ár sem lítur að þjón­ustu við erlenda félags­menn og þátt­töku þeirra í starfi hreyf­ing­ar­innar. Ég hef einnig mik­inn áhuga á að draga meira inn unga fólkið; mér finnst mik­il­vægt að fá raddir þess að borð­inu. Að auki vil ég vinna að því að efla enn frekar þjón­ustu við félags­menn, auka lýð­ræði innan félags­ins og tryggja aðgengi félaga að upp­lýs­ingum um starf­semi Eflingar svo eitt­hvað sé nefnt.“

Ólöf Helga kom að svið­inni jörð má segja í vetur eftir átök innan Eflingar og brott­hvarf meðal ann­ars þáver­andi for­manns. „Þetta var nátt­úr­lega skrýtið þá og mjög krefj­andi en ég hef lært ótrú­lega mikið á þessum tíma og ég tel okkur bara koma sterk­ari til baka.“

Í til­kynn­ingu Ólafar Helgu um fram­boðið segir ann­ars eft­ir­far­andi: „Framboð til for­manns Eflingar – stétt­ar­fé­lags

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til for­manns Eflingar til næstu tveggja ára, og gef kost á mér til setu í stjórn Eflingar á þeim lista sem upp­still­ing­ar­nefnd mun setja saman. Ég hef verið virk í verka­lýðs­bar­átt­unni und­an­farin ár og setið í stjórn Eflingar frá árinu 2019.

Frá því í byrjun nóv­em­ber sl. hef ég gegnt emb­ætti vara­for­manns og starfað ásamt Agniezsku Ewu Ziólkowsku að því að halda starf­semi Eflingar gang­andi í gegnum róst­ur­sama tíma eftir að þáver­andi for­maður félags­ins sagði af sér emb­ætti og fram­kvæmda­stjóri sagði upp störfum. Ég varð virk í verka­lýðs­málum í starfi mínu sem hlaðmaður á Reykja­vík­ur­flug­velli, en þar vann ég í fimm ár og gegndi emb­ætti trún­að­ar­manns þar til mér var sagt upp störfum. Það er erfitt að missa vinn­una og fram­færsl­una, ekki síst fyrir okkur sem höfum ein­göngu starfað í lág­launa­störfum og eigum því ekki borð fyrir báru þegar í harð­bakk­ann slær. En það er líka sárt að vera vísað á dyr af óljósum ástæðum, sem virð­ast ekki vera aðrar en þær að ég sinnti hlut­verki trún­að­ar­manns af alúð á tímum þar sem vegið var að kjörum og rétt­indum starfs­fólks.

Við þessar aðstæður átti ég skjól hjá mínu stétt­ar­fé­lagi sem reis upp mér til varnar. Ég þekki því af eigin raun hversu mik­il­væg öflug og skipu­lögð verka­lýðs­hreyf­ingin er launa­fólki and­spænis ægi­valdi fyr­ir­tækja og sam­taka atvinnu­rek­enda. Ég býð mig fram til for­manns Eflingar því að ég hef áhuga á að beina öllum kröftum mínum að verka­lýðs­bar­áttu. Ásamt stjórn, samn­inga­nefnd og trún­að­ar­ráði vil ég leiða Eflingu – næst­stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins og stærsta félag verka- og lág­launa­fólks – í gegnum kjara­samn­inga sem eru lausir síðar á þessu ári.

Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja stöðu trún­að­ar­manna og efla þá í starfi. Ég vil halda áfram því öfl­uga starfi sem Efling hefur unnið að síð­ustu ár og lýtur m.a. að þjón­ustu við erlenda félags­menn og þátt­töku þeirra í starfi hreyf­ing­ar­innar. Ég vil takast á við vanda ungs fólks á vinnu­mark­aði og þeirra sem eru utan náms og vinnu af fullum þunga. Síðast en ekki síst vil ég vinna að því ásamt stjórn og skrif­stofu að efla þjón­ustu við félags­menn enn frekar, byggja upp fræðslu­starf, auka lýð­ræði innan félags­ins og tryggja aðgengi félaga að upp­lýs­ingum um starf­semi Eflingar. Á næstu vikum mun ég leit­ast við að hitta sem flesta félags­menn, bæði til að kynna mig og mínar hug­myndir og heyra enn betur hvað brennur á félags­mönnum. Með fram­boði þessu bið ég um traust trún­að­ar­ráðs og félags­fólks Eflingar til að leiða félagið fram til bar­áttu næstu tvö ár.“

Aftur að Mann­lífs­við­tal­inu. Ólöf Helga segir að ef hún nái kjöri muni hún vilja opna Eflingu þannig að hinn almenni félags­maður fái að hafa meiri áhrif. Taki meiri þátt. „Ég myndi vilja að Efling upp­lýsti félags­menn meira um hvað er að ger­ast á stjórn­ar­fundum; hvað félagið er að gera og af hverju fólkið er í verka­lýðs­fé­lagi. Mér finnst vera mik­il­vægt að auka stétt­ar­vit­und hjá fólki; vit­und um það hvað er að vera í stétt­ar­fé­lagi og að það geri sér grein fyrir rétt­indum sínum og skyldum. Svo snýst þetta að sjálf­sögðu um aukin lífs­gæði fólks og að minnka mis­skipt­ingu á bæði auð og lífs­gæðum. Ég vil bara að við gerum betur.“

Svo lærði ég það þegar ég varð eldri að maður þarf sjálfur að stíga fram og tala ef maður vill að eitt­hvað breyt­ist.

Sú sem vill verða for­maður Eflingar seg­ist vera feimin og hlé­dræg og að hún hafi læðst með veggjum í grunn­skóla. „Ég hef alltaf verið voða­lega feimin og hlé­dræg mann­eskja,“ segir Ólöf Helga og kann­ast ekki við áber­andi leið­toga­hæfi­leika á árum áður þótt hún hafi fundið fyrir ákveð­inni ábyrgð­ar­til­finn­ingu og mik­illi rétt­læt­is­kennd í gegnum tíð­ina. „Svo lærði ég það þegar ég varð eldri að maður þarf sjálfur að stíga fram og tala ef maður vill að eitt­hvað breyt­ist. Maður getur ekki bara beðið eftir því að ein­hver annar geri það.“

Hún segir að ástæða þess að hún varð trún­að­ar­maður hjá Icelandair sé að þáver­andi trún­að­ar­maður vildi hætta og þar sem eng­inn hafði áhuga á að taka stöð­una að sér þá hafi hún gert það af skyldu­rækni. „Það þurfti ein­hver að gera þetta. Ég veit alveg að þetta er mik­il­vægt starf. Þetta er ekki eft­ir­sótt, en það er mik­il­vægt. Svo er ég þannig að ef ég tek eitt­hvað að mér þá geri ég það eins vel og ég get og ég tek það mjög alvar­lega.“

Er enn reið

Ólöf Helga komst í frétt­irnar í fyrra eftir að Icelandair sagði henni upp, en hún hafði verið trún­að­ar­kona í hlað­deild Icelandair á Reykja­vík­ur­flug­velli. Í við­tali við Mannlíf í fyrra­haust sagði hún: „Ég var búin að vera trún­að­ar­maður í rúm þrjú ár, en und­an­farna mán­uði hafði ég verið að vinna í ákveðnum málum fyrir hlað­deild­ina, bæði varð­andi breyt­ingu á vak­taplani og svo færslu á ákveðnu starfi sem snýr að þjón­ustu við hreyfi­haml­aða far­þega.

Í raun­inni var ég í sum­ar­fríi þegar ég fékk sím­tal frá yfir­mann­inum mínum um að ég ætti von á upp­sagn­ar­bréfi; ég var í heim­sókn hjá félögum mínum í hlað­deild­inni og var því á Reykja­vík­ur­flug­velli. Ég fékk svo upp­sagn­ar­bréfið í hend­urnar fimm dögum seinna. Ég hef ekki fengið neinar almenni­legar ástæður fyrir upp­sögn­inni nema að stöðv­ar­stjór­inn nefndi í sím­tal­inu við mig að um trún­að­ar­brest væri að ræða og til­kynnti svo sam­starfs­fólki mínu að mér hafi verið sagt upp störfum vegna alvar­legs trún­að­ar­brests. Ég fékk síðan þær upp­lýs­ingar á fundi að ástæða upp­sagn­ar­innar væri sam­skipta­erf­ið­leikar sem ég tel ekki nægi­lega góða ástæðu til þess að segja upp trún­að­ar­manni. Icelandair heldur því fram að þau hafi ekki vitað að ég væri trún­að­ar­maður þrátt fyrir að ég sé búin að vera í stöð­ugum sam­skiptum við þau sem trún­að­ar­maður síð­ast­liðna mán­uði vegna ágrein­ings­mál­anna sem ég nefndi áðan. Ef ég hefði aðgang að tölvu­póst­inum mínum hjá flug­fé­lag­inu þá gæti ég sýnt fram á það að Icelandair vissi sann­ar­lega að ég var trún­að­ar­maður og var í virkri rétt­inda­gæslu fyrir sam­starfs­menn. Svo var ég líka örygg­is­trún­að­ar­maður frá sept­em­ber 2020 og hefur Efling það stað­fest frá vinnu­eft­ir­lit­inu að ég var skráður örygg­is­trún­að­ar­maður.“

Ólöf Helga sagð­ist í við­tal­inu ekki kann­ast við trún­að­ar­brest í starfi og þegar hún var spurð um sam­skipta­erf­ið­leika sagði hún: „Ég verð að við­ur­kenna að ég er nátt­úr­lega mann­leg og ég get alveg hafa verið pirruð ein­hvern tím­ann; sér­stak­lega þegar við vorum í miðri bar­áttu um rétt­inda­mál þar sem ég, fyrir hönd hlað­deild­ar­innar, mót­mælti því að Icelandair gæti ein­hliða ákveðið að setja ábyrgð á starfi sem til­heyrir annarri deild yfir á okkar deild bara af því að þeim datt það í hug. Starfið sem um ræðir er mik­il­vægt og allir starfs­menn sam­mála um mik­il­vægi þess að sinna því starfi vel en tækja­kostur til verks­ins er ekki við­un­andi og starfið í raun­inni hættu­legt. Ég tel þá hvernig breyt­ingin var til­kynnt hafa skapað mjög erfitt and­rúms­loft en það var gert þannig að yfir­menn ákváðu þessa breyt­ingu ein­hliða og kynntu hana þannig að starfs­fólk var kallað á fund og okkur til­kynnt að frá þeim degi væri starfið á okkar ábyrgð; ekk­ert sam­tal heldur bara ákvörðun sem yfir­menn tóku.“ (https://gamla.mannlif.is/frettir/olof-helga-var-rekin-ur-starfi-hja-icelandair-eg-verd-ad-vidurkenna-ad-eg-er-natturlega-mannleg/)

Ég lærði ótrú­lega mikið af þessu þótt þetta hafi verið erfitt og leið­in­legt, en það skil­aði mér hingað, þar sem ég er núna.

Ólöf Helga seg­ist enn vera reið vegna upp­sagn­ar­innar hjá Icelandair. „Fyrst var ég nátt­úr­lega í sjokki, sér­stak­lega af því að ég kann­að­ist ekki við ástæð­urnar sem voru gefnar upp. Ég get að sjálf­sögðu verið ákveðin og það var mitt starf sem trún­að­ar­maður að berj­ast fyrir rétt­indum sam­starfs­fé­laga minna og mínum eigin. Ég var hissa og ég skildi þetta ekki. Svo var ég í raun­inni bara sár. Ég hafði byrjað að vinna hjá Flug­fé­lagi Íslands sem varð svo Air Iceland Connect og það var í raun­inni lítið fyr­ir­tæki og stemm­ingin var á þá leið að við hjálp­uð­umst öll að og við vorum eins og ein fjöl­skylda. Það átti að vera þannig áfram eftir að Icelandair tók yfir, en það breytt­ist ein­hvern veg­inn. Ég er leið yfir því hvernig þetta fór allt saman og hvernig áhrif þetta hefur haft á vinnu­stað­inn. Það var ótrú­lega gott að vita að maður gat leitað til stétt­ar­fé­lags­ins, Eflingar, og finna fyrir þeim stuðn­ingi. Ég er gíf­ur­lega þakk­lát fyrir það og vil halda áfram því starfi. Ég lærði ótrú­lega mikið af þessu þótt þetta hafi verið erfitt og leið­in­legt, en það skil­aði mér hingað, þar sem ég er núna.“

Ólöf Helga seg­ist ekki lengur vera sár út í Icelandair vegna upp­sagn­ar­innar. „Ég er eig­in­lega bara reið yfir þessu broti á rétt­indum launa­fólks. Ég er bara reið yfir þess­ari árás. Ég er reið yfir því að Icelandair fái að ráð­ast svona á rétt­indi launa­fólks og það með fullum stuðn­ingi Samaka atvinnu­lífs­ins. Ég bara kemst ekki yfir það.“

Hún segir að það hafi hjálpað hvað hún fann mik­inn stuðn­ing eftir upp­sögn­ina.

„Ég hafði gíf­ur­legan stuðn­ing frá stétt­ar­fé­lag­inu, Eflingu, og ég fann fyrir gíf­ur­legum stuðn­ingi frá fólki í land­inu. Það voru stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar svo sem frá öllum flug­stétt­unum, frá Raf­iðn­að­ar­sam­band­inu, ASÍ- UNG og Sameyki. Frá fjölda fólks.“

Maður er aldrei búinn að tapa fyrr en maður hættir að berj­ast.

Hvað lærði hún af þessu öllu?

„Ég lærði hell­ing. Ég lærði sér­stak­lega að maður á ekki að gef­ast upp ef maður veit að það sem maður er að berj­ast fyrir er mik­il­vægt. Ekki leyfa atvinnu­rek­endum að stjórna sam­tal­inu og að rétt­indi okkar, þau sem við göngum að sem vísum og margir telja að séu sjálf­sögð, gætu verið í hættu ef við erum ekki á varð­bergi. Rétt­inda­bar­átta verka­lýðs­ins er lang­tíma­verk­efni og við megum ekki gef­ast ekki upp þó að það líti stundum út fyrir að maður sé að tapa. Maður er aldrei búinn að tapa fyrr en maður hættir að berj­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi