Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

10 ára gutti sem stendur frammi fyrir því að kveðja afa sinn hinstu kveðju

10 ára gutti sem stendur frammi fyrir því að kveðja afa sinn hinstu kveðju

Jónas Har­alds­son, blaða­maður skrifar fal­lega grein þar sem að hann spyr: „Hvað gerir 10 ára gutti sem stendur frammi fyrir því að kveðja afa sinn hinstu kveðju?“

Greinin lýsir hjart­næmt aðdrag­and­anum að kveðju drengs­ins:

„Hvað gerir 10 ára gutti sem stendur frammi fyrir því að kveðja afa sinn hinstu kveðju? Jú, hann kveður hann á sinn hátt, með elsku­legri kveðju, en kannski – og að vonum – nokkuð undir áhrifum Youtube og þeirrar ensku sem nútíma­börn læra sjálf­krafa með snjall­síma- og tölvu­notkun. Því neitar eng­inn að börn á þessum aldri eru býsna glúrin þegar kemur að notkun þess­ara mögn­uðu tækja, þótt deila megi um lengd þess tíma sem þau verja í sím­anum eða tölv­unni. Og ensku­kunn­áttan fylgir með. Nánast allt það efni sem börnin skoða í snjall­tækj­unum er á ensku og áður en nokkur veit eru þau mæl­andi á enska tungu löngu áður en til form­legs ensku­náms kemur.

Þessi tíu ára yng­is­sveinn, sem að ofan er getið, er son­ar­sonur okkar hjóna en hann býr með for­eldrum sínum og systk­inum í Danmörku. Móðurafi hans, Fjölnir Björns­son, lést nú á haust­dögum eftir skamm­vinn veik­indi. Dreng­ur­inn kom því hingað til lands með sínu fólki vegna útfarar afa síns.

Við, sem afar og ömmur þess­ara barna, höfum vita­skuld oft hist og átt góðar stundir saman allt frá því að sonur okkar og dóttir þeirra, þá á mennta­skóla­aldri, ákváðu að ganga saman sinn ævi­veg. Má þar nefna brúð­kaup, skírnir, barna­af­mæli, ferm­ingu og annað sem til­heyrir fjöl­skyldu­lífi. Eftir að þessi sam­eig­in­lega barna­fjöl­skylda okkar flutti til Dan­merkur fyrir nokkrum árum hafa heim­sóknir beggja ömmu- og afa­p­ar­anna verið tíðar milli landa þar til Covid-veiran setti strik í reikn­ing­inn í ár.

Það var kært með móð­uraf­anum og barna­börn­unum enda var Fjölnir hlýr maður og umhyggju­samur. Það var því með sorg í hjarta sem börnin fylgdu afa sínum síð­asta spöl­inn. Að lok­inni kistu­lagn­ingu og útför vildu þau minn­ast hans á sinn hátt. Full­orðið fólk sendir blóm, sam­úð­ar­skeyti og þess háttar en annað hentar börnum betur. „Hvað eigum við að gera?” spurðu þau mömmu sína. „Þið getið perlað eitt­hvað fal­legt eða teiknað mynd sem við getum sett á leiðið hjá afa,” sagði mamma þeirra.

Börnin tóku hana á orð­inu og hófust handa. Það dreifði hug­anum að búa eitt­hvað fal­legt til fyrir afann sem þeim þótti svo vænt um. Þau gáfu sér góðan tíma og perluðu, m.a. fal­legt hjarta og litla kan­ínu sem hægt var að leggja á leiðið. Tíu ára dreng­ur­inn vildi gera eitt­hvað annað svo mamma hans stakk upp á því að hann teikn­aði mynd fyrir afa sinn sem leggja mætti á leiðið. Það leist okkar manni vel á svo hann fékk blað og og liti.

Þegar allt var til­búið fóru for­eldr­arnir með börnin að leiði afa síns. Perlu-kan­ín­unni var komið fal­lega fyrir sem og lit­skrúð­ugu hjart­anu. Síðan afhenti tíu ára pilt­ur­inn móður sinni teikn­ing­una sem hann hafði lagt hug og hjarta í. Þar sást sól og jörð, flug­vél á lofti sem vænt­an­lega tákn­aði ferð­irnar milli land­anna tveggja, íslenski fán­inn og loks skip á haffleti. Það var tákn­rænt því Fjölnir afi var fyrr á starfs­ferli sínum stýri­maður og skip­stjóri. En mest áber­andi á mynd­inni voru kveðju­orð til afa. Dreng­ur­inn er almæltur á íslensku – og dönsku, að sjálf­sögðu, þar sem hann hefur gengið í skóla í Danmörku und­an­farin ár – en hann ákvað engu að síður að minn­ast afa síns á ensku, sem hann kann vel eftir alla tölvu­leik­ina og Youtube-áhorfið. Áhrif þess leyndu sér ekki þegar hann rétti mömmu sinni mynd­ina til að leggja á leiðið en stóð þar skýrum stöfum:

Bye Fjölnir

you will

be mis­sed.

Efst í hægra horn­inu stóð, stutt og laggott: Love Viggó.“

Heimild:

Jónas Har­alds­son blaða­maður. 2020, 28. des­em­ber. Bye afi. Lifðu Núna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi