Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gauti prófessor greindist með krabbamein: „Ef það fer að dreifa sér fara líkurnar versnandi“

Gauti prófessor greindist með krabbamein: „Ef það fer að dreifa sér fara líkurnar versnandi“
Skjáskot Mynd: Salome

Gauti B. Eggerts­son, pró­fess­or í hag­fræði við Brown-há­skóla í Provi­dence í Rhode Is­land í Banda­ríkj­un­um, bróðir Dag­s B. Eggerts­sonar, borg­ar­stjóra í Reykja­vík, kom í hjart­næmt og skemmti­legt við­tal á MBL og um veru sína Vest­an­hafs um veik­indin sem hann er að berj­ast við.

„Ég tók hag­fræði­próf heima í Há­skóla Íslands 1997. Mig lang­aði alltaf að taka dokt­ors­próf í hag­fræði og sótti þess vegna um á síð­asta ár­inu mínu. Ég var svo ótrú­lega hepp­inn að kom­ast að í Princet­on, og naut þess þar lík­lega sér­stak­lega að Þor­vald­ur Gylfa­son [pró­fess­or í hag­fræði] var með sterk tengsl inn í skól­ann, en hann lauk námi sínu þaðan líka.“

Gauti hefur búið 17 ár í Banda­ríkj­unum og unnið að rann­sóknum, en hann býr þar ásamt fjöl­skyldu. Erfið tíð­indi bár­ust honum á haust­dögum, þar sem hann fékk til­kynn­ingu um að hafa greinst með enda­þarmskrabba­mein.

„Kon­an sendi mig á heilsu­hæli til Aust­ur­rík­is. Ég held að hún hafi verið með þetta sjötta skiln­ing­ar­vit sem fólk okk­ur náið er oft með. Henni fannst eins og hlut­irn­ir væru bara ekki í lagi. Ég var mjög skept­ísk­ur á að fara á svona heilsu­hæli, ímynd­aði mér fólk í jóga að til­biðja dul­ar­full­ar ver­ur í ein­hverj­um krist­als­grottó,“ seg­ir Gauti í létt­um dúr, „en svo kom í ljós að þessi staður sem ég fór á var vís­inda­lega byggður. Fæðið þarna sam­an­stóð af hafra­graut á morgn­ana, tveim­ur kart­öfl­um í há­deg­is­mat og svo var eitt­hvert grugg­ugt vatn sem kallað var súpa í kvöld­mat.

Til að gera illt verra var svo ekk­ert vín á borðum og, það sem verra var, ekk­ert kaffi held­ur! Ég komst raun­ar að því, sem kom mér á óvart, að ég sakn­aði víns minna en kaff­is, fyr­ir utan auð­vitað að fá eitt­hvað al­menni­legt að borða,“ seg­ir Gauti.

Sára­ein­falt að fara í ristil­skoðun

Þarna hófst alls­herj­ar­heilsu­út­tekt og í þeirri skoðun hafi Gauta verið ráð­lagt að fara í ristil­spegl­un í kjöl­far ómskoð­unar.

„Ég hélt nú að ómskoðun væri fyrst og fremst eitt­hvað fyr­ir ófrísk­ar kon­ur og full­viss­aði lækn­inn um að ég væri ekki ófrísk­ur. En þótt lækn­ir­inn hafi kom­ist að þeirri niður­stöðu að ég væri ekki ófrísk­ur, fannst henni melt­ing­ar­kerfið grun­sam­legt. Ég fór í ristil­spegl­un þegar ég kom til baka til New York og þá kom í ljós krabba­mein,“ seg­ir Gauti.

„Ég held að það sé full ástæða til að fólk fari að skima fyr­ir þessu fyrr, mér skilst að skimun byrji ekki fyrr en við 50 ára ald­ur. Ég er 47 ára gam­all og mér segja fróð­ari menn og kon­ur að nú sé krabba­mein að finn­ast æ oft­ar í yngra fólki. Ég hef heyrt á lækn­um að þeir telji eðli­legt að fólk fari að skoða þetta strax um fer­tugt. Það er sára­ein­falt að fara í ristil­skoðun og ef þetta er bara ný­byrjað, þegar mynd­ast svo­kall­aðir ristil­sep­ar, er hægt að klippa út á sama tíma og ristil­spegl­un­in fer fram.

Ef ég hefði farið í ristil­spegl­un fyr­ir fimm eða sjö árum hefði þetta ekki verið neitt mál. Nú sé ég hins veg­ar fyr­ir mér heil­mikið mara­þon,“ út­skýr­ir Gauti. Hann kveður þá vakn­ingu, sem orðið hafi und­an­far­in ár um brjóstakrabba­mein kvenna, já­kvæða, en gera megi mun bet­ur í að vekja at­hygli á enda­þarms- og ristil­krabba­meini.

Greindi vandann nær samstundis

„Ég bý svo vel að syst­ir henn­ar Örnu, kon­unn­ar hans Dags, er ein­mitt skurð­lækn­ir á sviði krabba­meins í enda­þarmi og ristli. Hún hef­ur varið stærst­um hluta síns starfs­fer­ils í Yale hér í Banda­ríkj­un­um en er nú ný­kom­in heim til Íslands,“ seg­ir Gauti og hafi því auð­vitað legið bein­ast við að hringja í hana til skrafs og ráða­gerða. Hún hafi þá greint vand­ann nær sam­stund­is.

Hann get­ur á þessu stigi lítið sagt um áhrif með­ferðar­inn­ar á sjálf­an krabb­ann, þar sem hann sé rétt bú­inn að ljúka téðri geisla­með­ferð, fyrsta skref­inu á veg­ferð­inni. Mál­in skýrist þó hugs­an­lega nú í janú­ar en fram und­an bíða stór­ar áskor­an­ir, lyfja­með­ferð og skurð­að­gerð.

„Það tek­ur dá­lít­inn tíma skilst mér, eft­ir geisl­ana, að vita hvort æxlið hafi minnkað eða ekki. Þetta er stað­bundið æxli hjá mér, en um leið og þetta er farið að dreifa sér yfir í lungu eða nýru fara lík­urn­ar mjög hratt versn­andi,“ út­skýr­ir hann.

Þau hjón­in tóku þá ákvörðun frá upp­hafi að segja börn­un­um allt af létta. „Ef þú seg­ir börn­un­um ekk­ert en þau vita samt að eitt­hvað er að, fara þau bara að ímynda sér það versta. Þá er betra að segja hlut­ina bara eins og þeir eru,“ seg­ir Gauti.

„Hitt­ir þú ein­hvern tím­ann Íslend­inga?“

Gauti segir að lokum frá nokkuð magn­aðri reynslu og skemmti­legri til­viljun:

„Þegar pabbi var að heim­sækja mig hérna í New York, geng­um við eitt kvöldið á veit­inga­stað ná­lægt íbúð­inni okk­ar. Á leið­inni spyr pabbi: „Hitt­ir þú ein­hvern tím­ann Íslend­inga?“ „Lítið sem ekk­ert,“ segi ég. Á veit­inga­staðnum vill þjónn­inn að við setj­umst út í horn. Mér er yf­ir­leitt sama um þannig hluti. En af ein­hverj­um ástæðum leist mér svo óskap­lega vel á borð sem ég sá, og bað um að fá að sitja þar í stað­inn.

Þegar við pabbi sett­umst niður og byrj­uðum að spjalla sneri kon­an á næsta borði sér að okk­ur: „Hæ, þið hljótið að vera frá Íslandi!“ – en slíkt hef­ur aldrei gerst áður í mínu til­felli eft­ir 17 ára bú­setu. Hún kynn­ir sig og heit­ir Elín Marta Pét­urs­dótt­ir. Hún heyrði að við vær­um að tala um krabba­mein. Og þá kem­ur í ljós að hún var greind með sömu teg­und krabba­meins árið 2019 – jafn­vel ná­kvæm­lega sama stig og stað­setn­ingu. Þar að auki var hún með­höndluð á sama sjúkra­húsi, Memorial Sloan Ketter­ing Cancer Center.

Eins og þetta væri ekki nóg þá kom í ljós að á þess­um risa­stóra spít­ala var hún með­höndluð af sama skurð­lækni og ég, dr. Mart­in Weiser. Þegar Elín er að segja sögu sína kem­ur eig­inmaður henn­ar að borð­inu eft­ir að hafa verið bú­inn að létta á sér. Dúkk­ar þar upp gam­all vin­ur minn, Sig­ur­geir Jóns­son, bekkjar­bróðir úr hag­fræði­deild Há­skóla Íslands fyr­ir tæp­um 30 árum. Til að gera langa sögu stutta reyn­ist Elín vera krabba­meins­laus í dag og þurfti ekki einu sinni skurð­að­gerð þar sem geisla- og lyfja­með­ferð reynd­ust ein­stak­lega vel í henn­ar til­felli. Þar að auki fékk hún litl­ar sem eng­ar auka­verk­an­ir af með­ferð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi