Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Breytt umhverfi samskipta á tímum samfélagsmiðla – hugsa sig um áður en þumallinn er mundaður

Breytt umhverfi samskipta á tímum samfélagsmiðla – hugsa sig um áður en þumallinn er mundaður
Áslaug Arna – Mynd. Skjáskot/RÚV

Þórdís Vals­dóttir, lög­fræð­ingur og fjöl­miðla­kona ræðir um í pistli sínum Er ekki best að sleppa þuml­inum? í aðsendum pistli á Vísi í gær sem vert er að velta fyrir sér.

Mannlíf fjall­aði um málið í vik­unni og kemur þar fram að Logi Bergmann Eiðsson hafi virst gera lítið úr mál­inu í útsend­ingu á K-100. Logi sagði í útsend­ingu hafa haft það betra. Í miðjum þætti fór hann heim og til­kynnti að hann færi í „frí.“ Síðar sama dag gaf hann svo út yfir­lýs­ingu á Facebok um sak­leysi sitt og að hann hefði and­styggð á kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Það vakti sér­staka athygli að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins lík­aði við færslu  og sýndi þannig vel­þóknun sína og stuðn­ing við mál­stað­inn. Aðrir sem settu inn athuga­semdir við færsl­una for­dæmdu fram­göngu Loga. Hann lok­aði á end­anum fyrir athuga­semdir.

Þórdís skoðar það í pistli sínum hvort það sé ekki orðið tíma­bært að allar kyn­slóðir aðlagi sig að breyttu umhverfi sam­skipta á tímum sam­fé­lags­miðla og hugsi sig tvisvar um áður en þum­al­l­inn er mund­aður.

„Und­an­farna mán­uði hefur ítrekað ratað í fréttir að hátt­sett fólk innan þjóð­fé­lags­ins setji like, eða jafn­vel hjörtu eða önnur tjákn á umdeildar færslur. Þá virð­ist alltaf sama umræðan fara af stað, hvort verið sé að oftúlka gjörn­ing­inn eða hvort sá sem setti þumal á til­tekna færslu sé með gjörn­ingnum að taka afstöðu í við­kvæmu máli.

Stóra spurn­ingin er; er like tján­ing? Ertu að tjá skoðun þína á mál­unum með því að setja þumal við færslu? Sumir telja svo vera og aðrir ekki.

Tján­ing­ar­frelsi er á meðal mik­il­væg­ustu rétt­inda okkar í sam­fé­lag­inu. Tján­ing­ar­frelsi nær einnig til þeirra sem telj­ast þjóð­þekktir ein­stak­lingar en þessir ein­stak­lingar lúta þó öðrum leik­reglum en almenn­ingur, um það verður ekki deilt.

Það liggur í augum uppi að það er gjörn­ingur að bregð­ast við færslum á sam­fé­lags­miðlum, hvort sem það er tján­ing eða ekki. Þú velur að setja like við mynd af barni vinar þíns eða hjarta við fyndið mynd­band af ketti. Þú tekur ákvörðun um að bregð­ast við færslu, hver svo sem mein­ingin á bak við þum­al­inn er.

Sumir vilja meina að það telj­ist til ofsókna að setja út á þum­la­gleði þeirra sem gegna valda- og ábyrgð­ar­stöðum í sam­fé­lag­inu. En ég spyr, er til of mik­ils ætlað af þeim ein­stak­lingum að láta hjá liggja að bregð­ast við færslum sem telj­ast veru­lega umdeildar?

Sam­skipta­mynstur okkar hefur breyst gríð­ar­lega, einu sinni var ekki til Messen­ger og við töl­uðum saman í síma eða áttum jafn­vel penna­vini. Nú heyra sím­töl nán­ast til und­an­tekn­inga og yfir 90% lands­manna nota Facebook. Mögulega er hægt að tala um ákveðið kyn­slóða­bil þar sem yngri kyn­slóðin túlkar sam­skipti eða við­brögð við færslum á sam­fé­lags­miðlum öðru­vísi en eldri kyn­slóðin en ekki má þó gleym­ast að ein­stak­lingar velja það að setja like, hjarta eða önnur tjákn. Það er val hvers og eins hvort og þá hvernig like-um er útdeilt.

Við erum í miðri bylt­ingu sem er að miklu leyti knúin áfram af yngri kyn­slóð­inni. Bylt­ingin hefur átt sér stað á sam­fé­lags­miðlum og því má segja að sam­skipta­reglur miðl­anna ráði þar miklu. Nú láta konur ekki lengur bjóða sér að á þeim sé káfað, þær séu lít­il­lækk­aðar og segja má að tími hins marg­róm­aða „kvenna­bósa“ sé útrunn­inn.

Þau mál tengd kyn­bundnu ofbeldi og áreitni sem hafa verið til umræðu upp á síðkastið eru ein­ungis topp­ur­inn á ísjak­anum og fleiri mál munu koma upp á yfir­borðið. Kannski er tíma­bært að allar kyn­slóðir aðlagi sig að breyttu umhverfi sam­skipta á tímum sam­fé­lags­miðla og hugsi sig tvisvar um áður en þum­al­l­inn er mund­aður. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi