Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ættleidd til Íslands – Valdi barnið með lokuð augu: „Þau voru forvitin um hvað ég væri dökk“

Ættleidd til Íslands – Valdi barnið með lokuð augu: „Þau voru forvitin um hvað ég væri dökk“

Friðrik Agni Árnason ræddi við móður sína og ömmu í þætt­inum Ugla sat á kvisti á Rás 1.

„Þetta er drottn­ingin okkar, hún Maya,“ stóð í bréfi sem móðir Mayu, fyrstu stúlkunnar sem var ætt­leidd opin­ber­lega til Íslands frá Asíu, fékk sent frá mun­að­ar­leys­ingja­hæli á Indlandi árið 1968. Móðir Mayu er frá Tékkóslóvakíu en alin upp í Þýska­landi. Hún flutti til Þýska­lands þegar Maya var níu ára og barnið varð eftir. Barna­barn hennar segir sög­una af mæðg­unum.

Maya Jill Ein­ars­dóttir er fyrsta barnið sem var opin­ber­lega ætt­leitt til Íslands frá Asíu. Hún fædd­ist á Indlandi árið 1966 en stelpan fannst í borg sem til­heyrir Mumbai. Tveir ókunn­ugir menn fundu hana aðeins nokk­urra vikna gamla innan um önnur götu­börn og fóru með hana á heim­ili fyrir mun­að­ar­laus börn í Mumbai. Þremur árum síðar var hún ætt­leidd til Íslands og fékk afmæl­is­dag­inn 28. októ­ber.

Móðir hennar, Liselotte Bensch Fuchs, er fædd í Tékkóslóvakíu en flúði þaðan til Þýska­lands. Hún bjó á Íslandi þegar hún ætt­leiddi Mayu. Friðrik Agni Árnason, sonur Mayu og barna­barn Liselotte, segir sögu mæðgn­anna í þætt­inum Ugla sat á kvisti á Rás 2.

Allir þekktust og hjálpuðust að

Liselotte flutti með fjöl­skyld­unni frá Tékkóslóvakíu til Berlínar og var faðir hennar undir eft­ir­liti stjórn­valda. Þetta voru miklir óróa­tímar og lenti faðir hennar nokkrum sinnum í fang­elsi fyrir að smygla fólki frá austur Berlín til vest­urs. Svo flutti litla fjöl­skyldan til Dus­seldorf þar sem hjónin bjuggu allt sitt líf í nýbyggðri blokk sem hýsti tutt­ugu og eina flótta­fjöl­skyldu.

„Allir þekkt­ust og hjálp­uð­ust að. Þau þekktu flótta­lífið og vissu hvernig best væri að hjálpa.“

Sautján og átján ára þurftu Liselotte og systir hennar að byrja að vinna fyrir sér og flytja heiman því það var þröngt í búi. Þá var stungið upp á því að þær færu í að læra hjúkrun. Þær fengu vinnu á spít­ala og þar kynnt­ist Liselotte konu sem átti dóttur sem hafði ákveðið að taka sér árs­frí frá vinnu í banka og flytja til Íslands til að starfa sem sjúkra­liði. Liselotte var for­vitin og fékk sjálf heim­il­is­fangið hjá Landa­kots­spít­ala. Þangað skrif­aði hún bréf og bauð fram starfs­krafta sína og systur sinnar. Henni var strax svarað að þær væru vel­komnar og þær héldu af stað þangað árið 1963.

Valdi barnið með lokuð augu

Þegar hún fékk fregnir af því að hún ætti von á stelpu voru henni sendar myndir af nokkrum stúlkum til að velja úr. Hún var ekki viss hvernig ætti að velja.

„Ég vildi stelpu og það voru bara stelpur í boði en það skipti engu máli fyrir mig hvort hún væri eins eða tveggja ára. Ég var í algjörum vand­ræðum,“ rifjar Liselotte upp. Hún skoð­aði mynd­irnar oft og ákvað svo að velja þær með ugla sat á kvisti. „

Ég valdi mynd­ina með lokuð augu, skellti í umslag og sendi til baka. Ég fékk svo svarið: Já, þetta er drottn­ingin okkar hún Maya.“

Þau voru forvitin um hvað ég væri dökk

Um tíu tímum eftir heim­komu segir Liselotte að Maya hafi áttað sig á því að hún væri komin heim. „Þá byrj­aði hún að leiða mig, og okkur öll. Hún sagði alltaf: Leiða mig. Þannig gekk það svo mán­uðum skipti,“ rifjar hún upp. Þegar hún lagði barnið í rúmið stóð hún upp við riml­ana og hvísl­aði: „Mamma.“

Mægð­urnar voru strax sam­rýmdar. Á Íslandi göptu margir yfir Mayu og dökku hör­undi hennar, en barnið var fljótt að aðlag­ast og eign­ast vini og allir vildu leika við hana. „Ég átti auð­velt með að eign­ast vini sem barn. Þau voru for­vitin um hvað ég væri dökk og með dökkt hár en það var engin stríðni eða neitt svo­leiðis,“ segir Maya.

Í leik­skól­anum fékk hún súr­mjólk í hyrnu og söng í ról­unum og fór í sund með dóttur nágranna­kon­unnar. Æskan var ljúf á Laug­ar­ás­veg­inum þar sem fjöl­skyldan bjó. Maya segir að það hafi alltaf verið líf í kringum sig og hún upp­lifði enga stríðni, bara for­vitni. Krakk­arnir fóru í Yfir, Brennó og Teygju­tvist og út að renna sér í brekk­unum. Svo var kallað á hana og dreng sem bjó á sömu hæð í átta hæða blokk­inni sem Maya bjó í: „Þórir og Maya, inn að borða!“

Hægt er að hlýða á báða þætt­ina hér í spil­ara RÚV.

Friðrik Agni og Maya Jill
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi