Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Morðin á Sjöundá: Lögðu á ráðin um að drepa maka sína

Morðin á Sjöundá: Lögðu á ráðin um að drepa maka sína

Vorið 1802 hvarf maður frá bænum Sjöundá á Rauða­sandi. Hann hafði búið á hálfri jörð­inni ásamt konu sinni og börnum, en á hinum helm­ingi jarð­ar­innar bjuggu önnur hjón. Talið var að mað­ur­inn hefði lát­ist af slys­förum – senni­lega hefði hann hrapað fyrir björg. Þegar hús­freyjan á hinum helm­ingi jarð­ar­innar lést hins­vegar skyndi­lega um tveimur mán­uðum síðar, lædd­ist að mörgum sá grunur að dauðs­föllin hefði hugs­an­lega ekki borið að með eðli­legum hætti. Á þeim tíma­punkti var það nefni­lega á flestra vit­orði að ekkjan og ekk­ill­inn væru að draga sig saman – og hefðu raunar verið byrjuð á því fyrr um vet­ur­inn.

Jón hverfur

Hjónin Bjarni Bjarna­son og Guðrún Egils­dóttir bjuggu á bænum Sjöundá á Rauða­sandi, ásamt börnum sínum þremur. Bærinn var kenndur við ána Sjöundá, sem var nefnd svo vegna þess að hún var sjö­unda áin frá Bjarn­kötlu­dalsá.

Vorið 1801 flutt­ust þangað önnur hjón til þess að taka yfir helm­ing jarð­ar­innar á móti Bjarna og Guðrúnu; þau Jón Þor­gríms­son og Steinunn Sveins­dóttir. Jón og Steinunn áttu fimm börn. Sá orðrómur komst fljót­lega á kreik að þau Bjarni og Steinunn hefðu farið að draga sig saman fram­hjá mökum sínum, ekki svo löngu eftir að seinni hjónin fluttu á jörð­ina. Samkvæmt heim­ildum var sam­komu­lagið á Sjöundá ekki til fyr­ir­myndar vet­ur­inn á eftir.

Það var síðan í apríl árið 1802 að Jón hvarf spor­laust. Þegar ljóst varð að hann myndi ekki skila sér var talið senni­legt að hann hefði hrapað fyrir björg í Skor­ar­hlíðum, sem eru dálítið austan við Rauða­sand. Þá voru þau þrjú eftir full­orðin á bænum.

Skyndilegur dauði Guðrúnar

Það var ein­ungis um tveimur mán­uðum síðar að Guðrún Egils­dóttir lést svip­lega á heim­ili sínu. Þá fór sveit­unga þeirra Bjarna og Stein­unnar að gruna að ekki væri allt með felldu.

Þegar sá orðrómur að þau Bjarni og Steinunn hefðu ráðið mökum sínum bana var orð­inn ansi hávær, ákvað séra Jón Ormsson að láta hrepp­stjór­ana Sigmund Jónsson og Ólaf Sig­urðs­son opna kistu Guðrúnar, áður en hún var greftruð, og skoða líkið gaum­gæfi­lega. Fleiri voru á staðnum þegar kistan var opnuð, enda var það gert inni í kirkj­unni sjálfri. Ýmsir þeirra virð­ast sömu­leiðis hafa fengið að virða líkið fyrir sér og voru allir þessir menn að mestu sam­mála um það að enga áverka mátti sjá á lík­inu sem gátu bent til sak­næms athæfis. Séra Jón Ormsson skrif­aði sýslu­manni þessa álits­gerð sína og sagði sömu­leiðis að þrátt fyrir orðróm­inn í sveit­inni teldi hann sjálfur að Guðrún hefði lát­ist vegna „veik­leika“ sem hafði plagað hana reglu­lega síð­ustu árin. Það var því ljóst að Guðrún hafði ekki verið full­kom­lega heilsu­hraust.

Grunur styrkist

Þarna virt­ust þau Bjarni og Steinunn því vera laus allra mála. Sögu­sagn­irnar gerðu það þó að verkum að Stein­unni var gert að flytj­ast með börn sín, búslóð og fé frá Sjöundá. Hún var látin setj­ast að hjá bróður sínum að Grænhól á Barða­strönd.  Augljóst var að sam­bandi þeirra Stein­unnar og Bjarna var þó ekki lokið, því Bjarni ræddi það stuttu síðar við pró­fast að þau Steinunn vildu fá að eig­ast sem fyrst og hefja búskap saman, með blessun kirkj­unnar.

Sumarið leið, en ljóst var að ekki voru allir enn sann­færðir um sak­leysi pars­ins. Jón Pálsson, hrepp­stjóri í Keflavík, var einn þeirra sem var þess full­viss að dauða Guðrúnar hefði borið að með sak­næmum hætti, hvað svo sem lík­skoð­unin átti að hafa leitt í ljós. Hann var sagður hafa tekið Bjarna tali og sagt við hann að sá orðrómur væri á kreiki að Steinunn hefði drepið Guðrúnu með því að byrla henni eitur út í vatns­graut. Bjarna átti að hafa orðið brugðið við þessa ásökun. Samkvæmt Jóni Pálssyni svar­aði hann því til að hún hefði ekki dáið af því, heldur hefði henni batnað. Jón sagð­ist þá hafa þrýst meira á hann, en Bjarni hafi þá snúið við og þrætt ákaft fyrir að Guðrúnu hefði verið byrlað eitur. Hann þver­neit­aði því líka yfir höfuð að nokkur til­raun hefði verið gerð til þess að bana henni. Eftir þessi sam­skipti styrkt­ist Jón Pálsson hrepp­stjóri enn frekar í grun­semdum sínum.

Um haustið var form­lega óskað eftir því að dauði Guðrúnar og hvarf Jóns yrði rann­sakað og mál­sókn fyr­ir­skipuð á hendur Bjarna og Stein­unni, þar til þau yrðu annað hvort hreinsuð af sökum eða sak­felld. Sömu­leiðis átti að sækja séra Jón Ormsson og skoð­un­ar­menn hans til saka fyrir að hafa ekki kallað til lækni áður en Guðrún var jörðuð. Þar þóttu þeir hafa sýnt af sér víta­vert gáleysi.

Lík Jóns rekur á fjörur

Strax dag­inn eftir að óskað var eftir rann­sókn og máls­höfðun vegna dauða Guðrúnar, fannst loks lík Jóns rekið á fjörur í Bjarn­ar­nesi. Líkið var skoðað vand­lega og skýrsla gerð um ástand þess, sem var sann­ar­lega ekki gott, enda hafði það verið lengi í sjónum. Báðar hendur og tær höfðu dottið af, og holdið hafði losnað frá höfð­inu. Það sem vakti hins­vegar mesta athygli skoð­un­ar­mann­anna var að ekk­ert bein virt­ist brotið í lík­am­anum. Það þótti nán­ast ómögu­legt að ekk­ert bein hefði brotnað í lík­ama manns sem hrapað hefði fyrir björg. Á lík­inu fannst hins­vegar hola, neð­ar­lega á háls­inum, sem gekk djúpt inn og niður undir bringu. Það var talið lík­legt að holan væri af manna­völdum, senni­lega eftir hnífs­tungu. Menn­irnir voru ekki í nokkrum vafa um að líkið væri af Jóni Þor­gríms­syni frá Sjöundá, miðað við heild­ar­yf­ir­bragð og lima­lag, sem og fatnað. Hrepp­stjórn­arnir Sig­mundur Jónsson á Stökkum og Jón Pálsson í Keflavík voru einnig fengnir til að koma á stað­inn og skoða líkið. Þeirra úrskurður var sá sami og eftir það héldu þeir rak­leiðis á Sjöundá til að ræða við Bjarna. Honum var enn brugðið þegar erindið var borið upp við hann, en fór með mönn­unum af fúsum og frjálsum vilja. Þeir settu hann í gæslu en tókst ekki að fá játn­ingu upp úr honum.

Næstu vik­urnar var Bjarni í varð­haldi, en þrætti alltaf fyrir verkn­að­inn. Þann 7. nóv­em­ber var hann loks fluttur í Sauð­lauks­dal í strang­ari gæslu, þar sem sex menn vöktu yfir honum. Steinunn var þá sótt og komið með hana á sama stað, svo hægt væri að hefja rann­sókn og yfir­heyrslur yfir þeim báðum. Þeir sem sóttu Stein­unni sáu það strax að hún var ólétt.

Daginn eftir setti sýslu­maður þing og hóf rann­sókn á mál­inu. Bjarni og Steinunn voru bæði yfir­heyrð lengi en voru sam­kvæm sér í fram­burði. Bjarni sagð­ist hafa farið með Jóni að reka fé og að hann hefði síð­ast séð til hans á leið inn í Skor­ar­hlíð­ina. Hann sagði að þegar hann hafi farið að leita að Jóni seinna um dag­inn hefði hann séð skýr ummerki um að hann hefði hrapað.

Steinunn gefur sig

Þegar kom að yfir­heyrslum um dauða Guðrúnar bar Stein­unni og Bjarna saman fyrst um sinn. Þau sögðu að Guðrún hefði orðið veik og kastað upp eitt kvöldið, nokkru áður en hún dó. Henni hefði batnað fljót­lega og ekki mikið virst ama að þar til hún skyndi­lega lést. Þau voru ítrekað spurð um graut­inn sem hafði verið tal­inn skað­vald­ur­inn. Bjarni þótt­ist ekk­ert vita en Steinunn gaf sig eftir langar yfir­heyrslur. Hún sagði Bjarna einn dag­inn hafa komið inn í búr, þar sem Steinunn var, tekið upp bréf úr vasa sínum og sáð örlitlu dufti úr því út á graut í ausu. Steinunn sagð­ist hafa rétt Guðrúnu graut­araus­una og að Guðrún hafi borðað graut­inn. Um kvöldið hafi hún síðan fengið upp­köstin. Steinunn hélt því fram að hún vissi ekki hvers konar duft Bjarni hefði verið með í bréf­inu. Þegar þessi saga Stein­unnar var borin undir Bjarna vildi hann ekk­ert segja. Þá var tekið hlé á yfir­heyrsl­unum til morg­uns. Daginn eftir ját­uðu þau Bjarni og Steinunn bæði á sig sakir.

Bar fyrir sig sjálfsvörn

Bjarni sagð­ist hafa viljað ryðja Jóni úr vegi, en sagði það hafa verið vegna þess að hann taldi Jón hafa verið að brugga sér laun­ráð. Hann lýsti því að þennan dag sem þeir ráku féð saman hefði Jón gengið á eftir honum og þegar Bjarni hafi snúið sér við hafi Jón reitt staf sinn upp til höggs og sagt: „Já, nú skal fram, sem ætlað er“. Þá sagð­ist Bjarni hafa brugð­ist fljótt við og orðið fyrri til að slá til Jóns og rota hann. Bjarni sagð­ist hafa drepið Jón með þessu höggi, þrátt fyrir að hafa ekki ætlað sér það, í sjálfs­vörn. Jón hafi ekki verið sak­laus, þar sem hann hefði ætlað sér að ráð­ast á Bjarna.  Bjarni neit­aði því alltaf að hafa stungið Jón.

Vildi fría Steinunni frá reiði Jóns

Eftir að allar játn­ingar höfðu feng­ist upp úr par­inu var Bjarni spurður hvers vegna hann hefði myrt Jón. Bjarni sagð­ist þá hafa verið far­inn að hata hann, vegna fram­komu hans við Stein­unni. Hann sagði Jón oft hafa deilt við konu sína vegna hans. Hann sagð­ist hafa viljað fría Stein­unni frá reiði Jóns vegna til­finn­inga hennar í garð Bjarna. Hann hafi líka verið að koma í veg fyrir að Jón segði frá fram­hjá­hald­inu. Auk þessa hefði ofan­greindur ill­vilji Jóns í garð hans sjálfs líka spilað inn í.

Bjarni sagð­ist hafa myrt Guðrúnu, eig­in­konu sína, til þess að þau Steinunn gætu gift sig og hafið líf saman. Hann sagði Stein­unni hafa þrýst á sig að drepa Guðrúnu. Hann sagði líka að Guðrún hefði verið farin að bera út sögur um fram­hjá­hald þeirra Stein­unnar og Bjarna.

Sagðist hafa óttast ofbeldi frá Jóni

Um það hvers vegna hún hafi viljað eig­in­mann sinn feigan sagði Steinunn að hún hafi verið farin að bera kala til hans vegna fram­komu hans í hennar garð. Hún sagð­ist hafa verið hrædd um að hann færi að beita hana lík­am­legu ofbeldi, eins og hún sagði hann hafa hótað, ef hún kæmi nálægt Bjarna framar. Hún sagði að yfir­hylm­ing hennar á morð­inu staf­aði af ást hennar til Bjarna, „og af henni og Bjarna rís öll mín ólukka“.

Steinunn sagð­ist hafa viljað Guðrúnu feiga til þess að geta gifst Bjarna og svo að Guðrún hætti að bera út sögur um þau tvö.

Dómur kveðinn upp

Að lokum fór svo að Bjarni var dæmdur til dauða. Auk þess skyldi hann klip­inn þrisvar með gló­andi töngum á leið frá þeim stað þar sem afbrotin voru framin, til aftöku­stað­ar­ins. Þar skyldi höggvin af honum hægri höndin, því næst skyldi höf­uðið höggvið af og lík­ami hans loks stegldur. Steinunn skyldi háls­höggvin og höfuð hennar sett á stjaka. Málið fór síðan fyrir lands­yf­ir­rétt þar sem dæmt var í maí vorið eftir. Þar var dóm­ur­inn stað­festur í meg­in­at­riðum, en þó var dóm­ur­inn yfir Bjarna hertur. Í stað­inn fyrir að vera glip­inn þrisvar, skyldi hann klip­inn fimm sinnum með gló­andi töngum, fluttur til aftöku með bert höfuð, snöru um háls og sam­an­bundnar hendur.

Málið velkt­ist um í rétt­ar­kerf­inu eftir þetta og fór svo að danskir dóm­arar úr hæsta­rétti töldu það duga að Bjarni yrði klip­inn fjórum sinnum. Hönd hans og höfuð skyldi þó setja á stjaka. Nokkru síðar mild­aði kon­ungur dóm­inn og ákvað að Bjarni skyldi ekki pynt­aður.

Steinunn lést árið 1805, stuttu áður en til stóð að taka hana af lífi. Bjarni var líf­lát­inn í Krist­i­ans­sand í Noregi stuttu eftir það. Steinunn var dysjuð á Skóla­vörðu­holti, en árið 1915 voru bein hennar tekin upp og jarð­sett í Hóla­valla­kirkju­garði. Árið 2012 settu ætt­ingjar hennar leg­stein á gröf­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi