Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjaltalín – „Metnaðarfullur minnisvarði um samspil tónlistar og hönnunar til framtíðar“

Hjaltalín – „Metnaðarfullur minnisvarði um samspil tónlistar og hönnunar til framtíðar“

Hljóm­sveitin Hjalta­lín hefur gefið út fimm breið­skífur og var Platan Terminal valin popp­plata árs­ins 2009 á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum

Hjalta­lín var stofnuð í MH haustið 2004 í tengslum við laga­keppni MH, Óðrík algaula. Tveimur árum síðar kom hljóm­sveitin fram í Kast­ljósi sem rokk-kvar­tett með fjórum klass­ískum hljóð­færum. Næsti stóri við­burður Hjalta­lín var Iceland Airwaves 2006 og hafði þá Sigríður Thorlacius söng­kona gengið til liðs við sveit­ina.

Hljóm­sveitin hefur gefið út fimm breið­skífur, túrað hér inn­an­lands og erlendis. Platan Terminal var valin popp­plata árs­ins 2009 á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum.

Meðlimir sveit­ar­innar eru:

  1. Axel Har­alds­son trommu­leik­ari
  2. Guð­mundur Óskar Guð­munds­son bassa­leik­ari
  3. Hjörtur Ingvi Jóhanns­son hljóm­borðs­leik­ari
  4. Högni Egilsson söngv­ari og gít­ar­leik­ari
  5. Sigríður Thorlacius söng­kona
  6. Viktor Orri Árnasson fiðlu­leik­ari

Árið 2021 fengu svo hönn­uðir nýjust plötu hljóm­sveit­ar­innar Hönn­un­ar­verð­laun Íslands. Verð­launin voru afhent í átt­unda sinn 29. októ­ber síð­ast­lið­inn við hátíð­lega athöfn í Grósku. Á vef Hönn­un­ar­verð­laun­anna er útskýrt að sjónum sé beint að því besta sem gert er á sviði hönn­unar og arki­tekt­úrs á Íslandi.

Vægi hönnunar í samfélaginu alltaf að aukast

Hönn­un­ar­verð­laun Íslands varpa ljósi á mik­il­vægi og gæði íslenskrar hönn­unar og arki­tekt­úrs, enda er vægi hönn­unar í menn­ingu, sam­fé­lagi og við­skipta­lífi alltaf að aukast.

Verð­launin hafa tekið fram það besta sem gert er á sviði hönn­unar og arki­tekt­úrs á Íslandi um leið og ein­staka hönn­uðum eða hópum hönn­uða er veitt mik­il­væg við­ur­kenn­ing. Miðstöð hönn­unar og arki­tekt­úrs standa að verð­laun­unum, í sam­starfi við Hönn­un­ar­safn Íslands, Lista­há­skóla Íslands, Lands­virkjun, Íslands­stofu og Samtök iðn­að­ar­ins.

Verk­efnið Hjalta­lín – ∞ þótti skara fram úr og afhenti Þórdís Kolbrún R.  Gylfa­dóttir, fyrr­ver­andi ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra aðstand­endum þess, hönn­uð­inum Sigurði Oddsyni, mynd­höggv­ar­anum Matth­í­asi Rúnari Sig­urðs­syni og þrí­vídd­ar­hönn­uð­inum Gabríel Benedikt Bachmann Hönn­un­ar­verð­laun Íslands 2021.

Í umsögn dóm­nefndar kom fram að:

„Platan „∞“ væri tíma­laust tíma­móta­verk í mynd­rænni og þrí­víðri nálgun. Í hönnun fjórðu breið­skífu hljóm­sveit­ar­innar Hjalta­lín veltir Sigurður Oddsson, graf­ískur hönn­uður og list­rænn stjórn­andi verks­ins, upp hug­myndum um var­an­leika og hlut­gerv­ingu tón­listar í sam­tali og sam­vinnu við mynd­höggv­ar­ann Matthías Rúnar Sig­urðs­son og þrí­vídd­ar­hönn­uð­inn Gabríel Benedikt Bachmann.

Ferlið við tón­smíðar og plötu­út­gáfu er hug­ræn með­ganga, hug­ar­fóstur tón­list­ar­fólks sem í ferl­inu tekur á sig mynd, vex og dafnar. Útgáfa plöt­unnar er svo fæð­ingin, tíma­mót og afurðin end­an­leg. Óhagg­an­leg og eilíf, meit­luð í stein.

Í með­förum teym­is­ins er hljóð­heimur sköp­unar hlut­gerður sem úlfa­barn, högg­mynd úr basalti sem er jafn­framt teiknuð og vistuð í þrí­víðu staf­rænu formi til þess að hámarka end­ing­ar­tíma og auð­velda birt­ing­ar­mynd þess á ólíkum miðlum. Úlfa­barn­inu er ætl­aður end­an­legur hvílu­staður hjá Úlf­ars­felli, sem þrí­víður minn­is­varði um til­vist útgáf­unnar, sem nær langt umfram þá sem tíðkast hefur í plötu­út­gáfu til þessa.

Myndræn fram­setn­ing er óað­finn­an­leg. Samspil ljóss og skugga skapar ein­staka kyrrð og hlýju. Stund frosin í tíma. Leturval er vel við hæfi og tákn­róf plöt­unnar vísar smekk­lega í gyllta plötu Voyager geim­fars­ins sem er flösku­skeyti mann­kyns út fyrir okkar sól­kerfi.

Það er mat dóm­nefndar Hönn­un­ar­verð­launa Íslands árið 2021 að hönnun plötu­umslags og heild­ar­út­færsla „∞“ sé ein­stak­lega sterkt heild­rænt verk og metn­að­ar­fullur minn­is­varði um sam­spil tón­listar og hönn­unar til fram­tíðar.“

Um hönnuðina:

Sigurður Oddsson er graf­ískur hönn­uður sem eftir útskrift frá LHÍ 2008 hefur unnið náið með tón­list­ar­fólki við gerð plötu­umslaga og ásýnd þeirra. Samhliða því hefur hann unnið sem hönn­uður og hönn­un­ar­stjóri og sér­hæft sig í ímyndar- og ásýnd­ar­hönnun fyr­ir­tækja af öllum stærðum og gerðum. Í dag starfar hann bæði sjálf­stætt og sem yfir­hönn­uður á hönn­un­ar­stof­unni Hugo & Marie í New York.

Matthías Rúnar Sig­urðs­son er mynd­höggv­ari og gerir högg­myndir sínar úr stein. Hann hjó fyrst í stein árið 2009 og síðan þá hefur hann gert fjöl­margar högg­myndir og haldið sýn­ingar m.a. í Safna­safn­inu og í Ásmund­ar­safni. Síðan árið 2018 hefur Matthías unnið að högg­myndum í garð­inum fyrir utan Ásmund­ar­sal.

Gabríel Bachmann er hreyfi- og þrí­vídd­ar­hönn­uður sem hefur unnið mikið við gerð tón­list­ar­mynd­banda og hreyfi­hönnun fyrir tón­leika. Hann hefur mynd­gert tón­list fyrir marga af vin­sæl­ustu tón­list­ar­mönnum lands­ins. Hann stundar eins og er fram­halds­nám við Truemax skól­ann í Kaup­manna­höfn.

Í dóm­nefnd Hönn­un­ar­verð­laun­anna skip­uðu þau María Kristín Jóns­dóttir/Sigríður Sig­ur­jóns­dóttir, for­menn (Hönn­un­ar­safn Íslands), Hildigunnur Sverr­is­dóttir, arki­tekt (LHÍ), Þor­leifur Gíslason, graf­ískur hönn­uður (MH&A), Margrét Kristín Sig­urð­ar­dóttir (SI), Katarina Siltavu­ori, fram­kvæmda­stjóri Archinfo í Finn­landi (MH&A) og Ragna Fróða­dóttir, textíl- og fata­hönn­uður, og fram­kvæmda­stjóri Edelkoort Inc (MH&A).

Heim­ildir:

Hljóm­sveitin Hjalta­lín.

Slóð

Hönn­un­ar­verð­laun Íslands. 2021.

Slóð

.Sequences hátíðin.

Slóð

.Siggi Odds.

Slóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi