Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Magnús Ver vann á Goldfinger: „Auðvitað þurfti maður stundum að snúa upp á einhvern“

Magnús Ver vann á Goldfinger: „Auðvitað þurfti maður stundum að snúa upp á einhvern“

Magnús Ver Magn­ús­son, afl­rauna­maður og fyrrum sterkasti maður heims, seg­ist aldrei hafa snert stera, hann hafi ein­fald­lega æft þeim mun meira. Þá seg­ist hann hafa séð ýmis­legt og hitt ýmsa vafa­sama menn í tengslum við dyra­vörslu á Gold­finger.

Magnús Ver, einn sterkasti maður allra tíma, var nýverið í við­tali við Wiium bræður, þá Gunnar og Davíð, í hlað­varps­þætti þeirra, Þvotta­húsið. Í við­tal­inu ræða þeir um hitt og þetta af ferli Magnúsar, upp­vaxt­ar­árin á Seyð­is­firði, mein­tan glæpa­feril, mótin sem hann keppti á og keppi­naut­ana sem hann mætti og margt fleira.

Þegar talið berst að stera­neyslu er Magnús alveg harður á því að hafa aldrei notað slík efni.

„Af hverju er ekki bara hægt að tala bara opin­skátt um það sem allir vita?“ Spurði Gunnar og átti þá við um almenna stera­notkun.

Magnús svar­aði því til að hann hafi aldrei notað stera og seg­ist í raun for­dæma stera­notkun, ekk­ert raun­veru­legt „shortcut“ sé í boði í þessum efnum.

„Ef þú ferð þessa leið þá ertu í raun að brenna á lífskert­unum frekar hratt, það er mín skoðun á því,“ sagði Magnús.

Hann seg­ist heldur aldrei hafa verið í raun þungur miðað við keppi­nauta sína, hann hafi æft alltaf mjög stíft, fjóra til fimm tíma á dag, sex daga vik­unnar og sú vinna segir hann að hafi skilað þeim árangri sem hann náði í „strong­man“ ásamt til­tölu­lega lágri lík­ams­þyngd.

Með létt­leik­anum fékkst snerpan og það var þar sem hann vann á, það var styrkur hans.

Þar að auki segir hann að brennslan sem svona æfingum fylgdu hafi verið svo rosa­leg að hann hafi í raun aldrei verið neitt hrika­legur eins og svo margir keppi­nautar hans. Hann vill meina að hann hafi bara aldrei þurft stera þökk sé mik­illi æfingu og að í eðli sínu sé hann bara sterkur og að sá styrkur komi hrein­lega frá því að hafa alist upp í sveit og sinnt lík­am­legri vinnu frá barns­aldri.

Magnús segir að Strong­man sé blanda af kraft­lyft­ingum, ólympískum og frjálsum. Styrkur, snerpa og tækni spila þar inn sem óað­skilj­an­legir þættir sem svo mynda eina heild.

Í dag rekur Magnús Ver hálf­gerðan æfinga­klúbb, sem heitir Jakaból og er á Smiðju­veg­inum. Þar er með­limum ein­fald­lega gefin lyk­ill og geta þeir komið á hvaða tíma sem er. Engin fancy afgreiðsla og engir augnskannar, bara þung lóð og ein sturta sem Magnús segir reyndar lítið not­aða. Samhliða því að reka Jakaból ferð­ast Magnús tals­vert um heim­inn sem dóm­ari og móts­hald­ari. Hann er komin á stall í krafta­keppn­is­heim­inum sem hálf­gert goð­sögn enda einn af aðeins 22 sem hampað hafa titl­inum sterkasti maður heims og einn af tveim sem hafa unnið hann þrisvar í röð.

Magnús Ver Magn­ús­son

Magnúsi finnst hann vera komin á stað í líf­inu þar sem meiri ró hafi færst yfir hann. Í því sam­hengi spurði Gunnar hann út í ýmsar sögu­sagnir sem lýsa vafasömum lífstíl hans, lög­reglu­hler­anir og sam­neyti við Geira Gold­finger heit­inn en Magnús starf­aði fyrir hann í nokk­urt skeið sem rekstr­ar­stjóri og eins­konar höf­uð­dyra­vörður á stríp­i­stað Geira.

Magnús vildi nú ekki meina að hann hafi að baki for­tíð glæpa og dólgs­háttar en sagði nú samt að á þessum árum hafi hann séð ýmis­legt, hitt og kynnst ýmsu vafasömu fólki ásamt því að starfi sínu sam­kvæmt þurft hann stundum að taka all hressi­lega á fólki sem kannski lét illa af stjórn sökum drykkju og þess háttar.

„Auðvitað þurfti maður stundum að snúa upp á ein­hvern og það er aldrei gaman og það er oft erfitt að meiða ekki, ef þú ert að eiga við ein­hvern sem er kol­vit­laust þá þarft þú að taka fastar á honum,“ sagði Magnús í lýs­ingum sínum á dyra­vörsl­unni.

En hann ítrek­aði að þessir tímar væru að baki og í dag sé hann afar þakk­látur fyrir að geta starfað þrátt fyrir aldur í sport­inu sem hann elskar og hann sé með nóg járn í eld­inum og mikil upp­bygg­ing vera í vændum.

Gunnar bar fram spurn­ingu úr sal. Spurn­ingin kom frá diggum hlust­anda honum Ívari á gröf­unni og var svo hljóð­andi;

„Átt þú þér ein­hvern keppi­naut sem sport­inu þar sem sam­keppnin varð per­sónu­leg og kannski aðeins of per­sónu­leg, svo­kallað „badblood“ eins og sjá má á milli Hafþóri Júl­í­us­son og Eddy Hall?“

Magnús svar­aði því að afar stirt hafi verið á milli hans og Hjalta Úrsus. Hann vill meina að Hjalti hafi bara oft hagað sér eins og bjáni og gekk meira að segja svo langt að kalla hann  „wannabe.“ Hann hafi alltaf langað að vinna titl­ana sem Magnús og Jón Páll unnu.

„Það var nú reyndar Jamie Reeves sem sagði við mig að þú þarft enga óvini ef þú átt vin eins og Hjalta,“ bætti Magnús svo við.Magnús sagði þó að þeir myndu nú alveg heils­ast ef þeir myndum hitt­ast á förnum vegi en meira væri það ekki. „Þú getur alltaf sýnt kurt­eisi en þarft ekki að sýna virð­ingu,“ sagði Magnús og hló.Hér fyrir neðan má sjá þetta mjög svo áhuga­verða við­tal:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi