Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðgerðin til bjargar Guðmundi Felix: 50 læknar voru 15 klukkustundir að tengja hendurnar

Aðgerðin til bjargar Guðmundi Felix: 50 læknar voru 15 klukkustundir að tengja hendurnar

„Við gátum ekki hald­ist í hendur eins og núna, og þetta er indælt. Þetta er gjöf, umfram vænt­ingar okkar,“ segir Sylvia við franska sjón­varpið.Franska rík­is­sjón­varpið hitti Guðmund Felix og Sylwiu Grét­ars­son eig­in­konu hans í Lyon fyrir jól á síð­asta ári og tjáði Guð­mundur að end­ur­hæf­ingin gengi hraðar en hann þorði að vona og hann stefndi á að geta borðað súpu um jólin.

Guð­mundur Felix Grét­ars­son, raf­einda­virki slas­að­ist alvar­lega við störf sín árið 1998 og missti m.a. báða hand­leggi. Hann vakti mikla athygli í kjöl­far slyss­ins og setti meðal ann­ars stefn­una á að fá grædda á sig nýja hand­leggi. Í jan­úar árið 2021 fór aðgerðin fram í Lyon í Frakk­landi og þykir hún marka tíma­mót í lækna­vís­indum.

Guð­mundur Felix fædd­ist 1972 í Reykja­vík.  Hann lauk námi í raf­einda­virkjun árið 1997 og hóf í kjöl­farið störf hjá Rafveitu Reykja­víkur. Kona Guð­mundar Felix heitir Sylwia Gret­ars­son, en þau kynnt­ust í Lyon og eiga tvær dætur úr fyrra sam­bandi.

Nýjar hendur – innan seilingar

Guð­mundur Felix starf­aði sem raf­einda­virki hjá Rafveitu Reykja­víkur og vann að við­gerð á háspennu­línu við Hafra­vatn í jan­úar árið 1998. Hann virð­ist hafa farið upp í rangan staur og snert línu sem straumur hafði ekki verið tek­inn af. Í kjöl­farið fellur hann átta metra niður úr staurnum. Við slysið hrygg­brotn­aði Guð­mundur Felix á þremur stöðum, brákast í háls­liðum, rif­bein losn­uðu frá hryggjar­súl­unni og það kvikn­aði í hand­leggjum hans.

Guð­mundur Felix komst til með­vit­undar tæpum þremur mán­uðum síðar, en hann lá á sjúkra­húsi í 7-8 mán­uði eftir slysið og fór þaðan í 14 mán­aða end­ur­hæf­ingu á Reykja­lund. Við tóku erfið ár hjá Guðmundi og m.a. þurfti hann tvisvar sinnum að fara í lifrar­ígræðslu árið 2002.

Árið 2018 kom út heim­ild­ar­myndin Nýjar hendur – innan seil­ingar um sögu Guð­mundar Felix.

50 læknar og 15 klukkustundir

Guð­mundur Felix flutt­ist til Lyon í Frakk­landi sum­arið 2013 og stóðu vonir til þess að þar yrði skömmu síðar gerð á honum hand­leggja­á­græðsla. Ferlið var hins vegar langt og strangt og mun lengra en búist hafði verið við í upp­hafi.

Sjö og hálfu ári eftir flutn­ing til Frakk­lands og tutt­ugu og tveimur árum eftir slysið, gekkst Guð­mundur Felix undir aðgerð­ina í Lyon í Frakk­landi á þessum degi, þann 13. jan­úar árið 2021 þar sem fram­kvæmd var flókin hand­leggja- og axlará­græðsla.

Um 50 læknar frá fjórum sjúkra­húsum tóku þátt í aðgerð­inni en hún tók um 15 klukku­stundir. Aðgerðin þótti takast vel og nokkrum dögum síðar sagð­ist Guð­mundur ekki lengur vera hand­lang­ari nú væri hann orð­inn hand­hafi. Við tekur þó langt bata­ferli og end­ur­hæf­ing en ekki er hægt að meta árangur aðgerð­ar­innar að fullu fyrr en að þremur árum liðnum.

Guð­mundur var val­inn maður árs­ins 2021 og heldur áfram á sínu stór­merki­lega ferða­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi