Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arna Ýr úr fegurðarsamkeppnum í fæðingar: „Þetta er eitthvað sem að konan á“

Arna Ýr úr fegurðarsamkeppnum í fæðingar: „Þetta er eitthvað sem að konan á“

Arna Ýr Jóns­dóttir – hana þekkja eflaust margir fyrir þátt­töku sína í feg­urð­ar­sam­keppnum en hún lagði  “kór­ón­una“ á hill­una fyrir nokkrum árum.

Arna er búsett í Kópavogi með unnusta sínum Vigni Bolla­syni og tveimur börnum, þeim Ástrós Mettu og Nóa Hilmari. Systk­inin deila sama afmæl­is­degi en Ástrós varð tveggja ára þann 21 júní síð­ast­lið­inn, sama dag og yngri bróð­ir­inn Nói kom í heim­inn.

Falleg fjöl­skylda – Arna og Vignir með Nóa litla og Ástrósu

„Það mun­aði einni mín­útu, hann er fæddur 23:59,“ sagði Arna sem horfði á klukk­una upp á vegg af og til meðan á fæð­ing­unni stóð en Nói kom í heim­inn í stof­unni heima.

Hún seg­ist alla tíð hafa haft áhuga á ljós­mæðra­fræði og kvikn­aði áhug­inn fljótt á fæð­ingum.

„Ég hef verið að horfa á fæð­ingar á youtube á net­inu bara frá því ég fékk aðgang að tölvu, það eru kannski fáir sem vita það“.

Hún seg­ist hafa tekið ákvörðun um að leyfa sjálfri sér að upp­lifa ævin­týri og taka þátt í feg­urð­ar­sam­keppn­unum áður en kæmi að því að setj­ast á skóla­bekk og stofna fjöl­skyldu. Stefnan hafi þó alltaf verið á ljós­mæðra­fræð­ina.

Fæðing Nóa heima í stofu

Sem ung­lingur upp­lifði Arna óör­yggi og óvissu þegar henni varð hugsað til náms­ins. Hún efað­ist um sjálfa sig eins og margir eiga til með að gera á þeim aldri en sann­aði það fyrir sjálfri sér og öðrum að hún gæti vel orðið ljós­móðir. Hún hefur nú lokið fyrsta ári í hjúkr­un­ar­fræði með tvö lítil kríli upp á arm­inn og gengur vel.

Eftir fæð­ingu Nóa birti Arna mynd­band af fæð­ing­unni á Instagram reikn­ingi sínum og vakti það tölu­verða athygli. Hún hafi fengið mjög góð og jákvæð við­brögð vegna þess og brennur hún fyrir því að konur geti frætt sig, og maka fyrir fæð­ingu.

Eitt dæmi hafi komið upp þar sem spurn­ingin var hver réttur barns­ins væri á birt­ingu mynd­bands­ins en segir hún fræðsl­una trompa allar slíkar vanga­veltur. Hún hafi þó ekk­ert slæmt um mann­eskj­una að segja þrátt fyrir athuga­semd­ina.

Arna og Nói hitt­ast í fyrsta sinn – dásam­legar myndir

„Fæðingin er eitt­hvað sem að konan á og þetta er alveg hennar finnst mér. Ég veit bara ekki hvar maður væri ef maður hefði ekki alla fræðsl­una.“

Þá leggur hún áherslu á að mynd­bönd og fræðsla hafi áhrif á allt ferlið þegar kemur að und­ir­bún­ingi fyrir fæð­ingu. Konan sé þá betur und­ir­búin og lík­legri til þess að geta brugð­ist sem best við öllum þeim upp­á­komum sem geta átt sér stað í fæð­ingu.

„Við værum að taka skref aftur á bak ef það má ekki sýna frá þessu“.

Arna algjör nagli í miðri fæð­ingu

Und­ir­bún­ing­ur­inn er einnig fyrir maka og börn en hún seg­ist þó halda að feð­urnir viti meira en við kon­urnar ef til vill gerum ráð fyrir, segir hún og hlær.

„Ef maður er und­ir­bú­inn þá er minna um fæð­inga­kvíða. Þá getur maður áttað sig betur á því hvert fæð­ingin getur farið, ef eitt­hvað kemur upp á og þá er maður betur í stakk búinn til þess að tækla það í móment­inu. Ef mamman kemur ágæt­lega út úr fæð­ing­ar­ferl­inu þá er minna um fæð­inga­þung­lyndi reikna ég með og betur í stakk búin til þess að sinna barn­inu. Þetta helst allt í hendur,“ segir Arna sem er ánægð með jákvæð við­brögð við mynd­band­inu.

„Fyrst að ég er komin inn í hjúkr­un­ar­fræð­ina þá veit ég að ég mun ekk­ert stoppa núna úr þessu, ég ætla mér að verða ljós­móðir.“

Arna undir lok með­göng­unnar

Þegar horft er til fram­tíðar á Arna sér marga drauma. Einn þeirra er að aðstoða fólk sem hefur ekki greiðan aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu. Þá hefði hún áhuga á sjálf­boða­liða­starfi í mæðra­vernd.

„Maðurinn minn er kírópraktor og hann hefur verið í sjálf­boða­ferðum erlendis að aðstoða fólk sem hefur ekki kost á þess­ari heil­brigð­is­þjón­ustu. Við höfum oft talað um það að það væri gaman að fara sem hjón í fram­tíð­inni og vinna með fólki úti“.

Arna Ýr er ekki bara feg­urð­ar­drottn­ing heldur fyr­ir­mynd fyrir ungar konur. Þá er aldrei að vita hvar maður sér Örnu næst, ef til vill á fæð­ing­ar­deild­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi