Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elmu var kennt um sjálfsvíg kærasta síns: „Mér var sagt að ég ætti að fara í fang­elsi“

Elmu var kennt um sjálfsvíg kærasta síns: „Mér var sagt að ég ætti að fara í fang­elsi“
Elma Stefanía Ágústs­dóttir Mynd: IMDB.com

Elma Stef­an­ía Ágústs­dótt­ir leik­kona var í vönd­uðu við­tali á Morg­un­blað­inu um helg­ina. Þar talar hún um þá ákvörðun hennar og eig­in­manns hennar, Mikael Torf­as­son, að flytja til Berlínar þar sem þau vinna við leik­hús og kvik­mynda­gerð.

Þar segir hún einnig frá afar erf­iðum tíma í lífi hennar er þáver­andi kær­asti hennar framdi sjálfs­morð eftir rifr­ildi við hana.

„Ég hef aldrei sagt nein­um þetta; ég er ekki mann­eskja sem ber til­finn­ing­ar sín­ar á torg,“ seg­ir Elma og heldur áfram, eftir að hafa dregið djúpt inn and­ann.

„Þegar ég var tví­tug átti ég kær­asta og hinn 19. ág­úst árið 2006 frem­ur hann sjálfs­víg eft­ir rifr­ildi við mig. Öll fjöl­skyld­an hans og vin­ir kenndu mér um og ég mátti ekki mæta í jarð­ar­för­ina. Mér var sagt að ég ætti að fara í fang­elsi fyr­ir mann­dráp af gá­leysi. Ef ég hitti ein­hvern tengd­an hon­um niðri í bæ var mér hótað; mér var gerð grein fyr­ir því að ég ætti ekki að láta sjá mig. Það væri hættu­legt,“ seg­ir Elma og tár­in spretta fram, enda sárt að rifja upp verstu minn­ing­ar lífs­ins, líkt og segir í við­tal­inu í Morg­un­blað­inu.

Elma segir svo að nú sé kom­inn tími til að opna á þetta mál.

„Ég fór að hugsa um alla þá sem sitja eft­ir; um þá sem kennt er um svona,“ seg­ir Elma og seg­ist hafa ótt­ast hefnd frá hans nán­ustu lengi á eft­ir.

Segir í við­tal­inu að þessi hugsun hafi jafn­vel leitað á huga Elmu mörgum árum eftir atvikið.

„Stund­um áður en ég fór á svið í Þjóðleik­hús­inu hugs­aði ég: „Ætli ein­hver þeirra sé hérna, ætli ein­hver sé með byssu?“ En ótt­inn hvarf alltaf eins og dögg fyr­ir sólu þegar ég steig á svið,“ seg­ir hún og seg­ist líka hafa misst flesta vini sína á þess­um tíma.
„Mér fannst að ég ætti að bera þenn­an kross, þó að ég kenndi mér ekki beint um. Ég var bara tví­tug og þurfti að lifa með þessu.“

Aðspurð hvort fólk hafi að lokum séð að sér, segir Elma aðeins eina mann­eskju hafa haft sam­band við hana.

„Besti vin­ur hans tók líf sitt nokkr­um árum síðar. Þá kom ein fyrr­ver­andi vin­kona mín til mín og baðst af­sök­un­ar og sagð­ist nú sjá að sjálfs­morðið hefði ekki haft neitt með mig að gera. En nei, fólk sá það ekki,“ seg­ir Elma og bætti við að eng­inn hafi haft sam­band við sig enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi