Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Íslensku olíufyrirtækin flytja inn lífeldsneyti í stað þess að nota íslenskt rafeldsneyti“

„Íslensku olíufyrirtækin flytja inn lífeldsneyti í stað þess að nota íslenskt rafeldsneyti“

„Við fram­leiðum raf­elds­neyti, það er að segja met­anól, sem fram­leitt er með því að raf­greina vatn og síðan að blanda vetni sem úr því kemur saman við koltví­sýr­ing sem við föngum úr afgas­inu úr virkjun HS orku hér í Svarts­engi,“ segir Benedikt Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Carbon Recycling International í sam­tali við frétta­stofu

RÚV.

Gæti framleitt eldsneyti fyrir allan fiskiskipaflotann

Verk­smiðja í Svarts­engi gæti fram­leitt umhverf­is­vænt elds­neyti fyrir allan fiski­skipa­flot­ann segir tals­maður Carbon Recycling International. Áhugann vantar hins vegar í hópi kaup­enda. Þess vegna liggur öll fram­leiðsla niðri. Engu að síður skil­aði fyr­ir­tækið hagn­aði í fyrra og er það vegna áhuga í Kína og Noregi á tækni­þekk­ing­unni hér á landi.

Carbon Recycling International var sett á lagg­irnar fyrir sextán árum og verk­smiðjan í Svarts­engi á Reykja­nesskaga hóf starf­semi fyrir tólf árum.

„Með því að búa til þetta raf­elds­neyti getum við hætt að nota olíu og brenna henni hvort sem það er í bílum, flug­vélum eða skipum. Síðan er líka ákveð­inn þáttur í þessu að minnka los­un­ina á þessum gösum hér í Svarts­engi,“ segir Benedikt.

Getur fyr­ir­tækið fram­leitt nægt raf­elds­neyti fyrir fiski­skipa­flot­ann og inn­an­lands­flugið?

„Fyrir fiski­skipa­flot­ann er þetta ger­legt. Við myndum þá þurfa að nýta allan þann koltví­sýr­ing sem kemur frá öllum jarð­varma­virkjum á Íslandi og kís­il­málm­verk­smiðj­unum,“ segir Benedikt.

Hins vegar vantar raf­ork­una til fram­leiðsl­unnar og horfir Benedikt þá helst við vind­orku.

Ekki raunhæft að notkun jarðefnaeldsneytis verði hætt fyrir 2040

Rík­is­stjórnin stefnir að því að allri notkun jarð­efna­elds­neytis verði hætt fyrir 2040.

„Ja, eins og staðan er í dag er það kannski ekki raun­hæft því það er svo lítið búið að ger­ast. Okkar fyr­ir­tæki er þegar búið að vera í 16 ár að störfum. Við erum frum­kvöðlar á þessu sviði, fram­leiðslu raf­elds­neytis, í heim­inum. Í Evrópu vorum við með stærstu raf­greina og stærstu föngun á koltví­sýr­ingi þegar þessi verk­smiðja fór í gang 2012. Nú er hrað­inn erlendis orð­inn miklu meiri og við erum í ákveðnu kapp­hlaupi við að halda þessu for­skoti sem tækni­út­flytj­andi. Við sjáum líka hér inn­an­lands að það er ákveð­inn hæga­gangur í því að virkja raf­orku og koma í gang þessum orku­skiptum sem nauð­syn­leg eru til þess að ná þessum mark­miðum,“ segir Benedikt.

Framleiðslan liggur niðri vegna skorts á kaupendum

Í Svarts­engi er allt sem þarf til þess að fram­leiða raf­elds­neyti sem er umhverf­is­vænt elds­neyti. En fram­leiðslan liggur niðri og ástæðan er sú að það er ekki áhugi á afurð­inni hér inn­an­lands.

Engu að síður var hagn­aður af rekstri fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra en það er vegna þess að fyr­ir­tækið hefur komið að upp­setn­ingu raf­elds­neyt­is­verk­smiðja í Kína og Noregi.

„Íslensku olíu­fyr­ir­tækin kusu frekar að flytja inn líf­elds­neyti heldur en að kaupa íslensk raf­elds­neyti. Ég held reyndar að við­horfið sé að breyt­ast,“ segir Benedikt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi