„Aldursfordómar skaða alla, unga sem aldna. Oft eru þeir svo útbreiddir og viðteknir í viðhorfum okkar og stefnumálum, lögum og stofnunum að við áttum okkur ekki einu sinni á hinum skaðlegu áhrifum þeirra á virðingu og réttindi fólks,“ sagði Michelle Bachelet, mannréttindafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna. „Við verðum að berjast markvisst gegn aldursfordómum, þar sem þeir eru djúpstæð brot á mannréttindum.“
Aldursfordóma er að finna út um allt samfélagið og stofnanir þess, þar með taldar heilbrigðisstofnanir, á vinnustöðum, í fjölmiðlum og réttarkerfinu. Skömmtun heilbrigðisþjónustu á grunni aldurs eingöngu er mjög útbreidd.
Bæði eldri og yngri hópar fullorðinna verða fyrir fordómum á vinnumarkaði og aðgengi að sérhæfðri starfsþjálfun og menntun minnkar tilfinnanlega með aldri. Aldursfordómar gegn yngra fólki birtast líka víða, s.s. á vinnumarkaði, í heilbrigðis- og húsnæðismálum og stjórnmálum þar sem raddir yngra fólks eru oft léttvægar fundnar eða komast ekki að, segir í niðurstöðum skýrslunnar.
Í skýrslunni segir að annar hver jarðarbúi sé haldinn aldursfordómum, með neikvæðum afleiðingum fyrir líkamlega og andlega heilsu eldra fólks og milljarðakostnaði fyrir samfélög ríkja heims. Skýrslan var birt var á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO og fleiri stofnana Sameinuðu þjóðanna fyrr á árinu.
Þjóðir heims og hagsmunaaðilar eru hvattir til að móta og beita stefnu í þessum málum. Líka til að vinna saman að því að mynda alþjóðlega hreyfingu til að breyta hugsun okkar, tilfinningum og hegðun gagnvart aldri og öldrun og vinna að framgangi Áratugar SÞ um farsæla öldrun.
Heimildir:
Auðunn Arnórsson. 2022, 4. janúar. Aldursfordómar mikið þjóðarmein. Lifðu Núna.































Athugasemdir