Mannlífi barst fregnir að því að 13. janúar síðastliðinn hafi staðfesting borist frá Náttúrufræðistofnun Íslands um að rauður hænsnamítill (Dermanysdus Gallinae) hefði fundist á landinu
Viðskiptavinur Fiskó sagði í samtali við Mannlíf að: „fugl hefði verið keyptur fyrir nokkrum mánuðum í dýrabúðinni Fiskó og að allt hefði farið að iða hjá fuglinum í búrinu, festingum á greinum o.fl. Meira að segja er þetta komið í sófann og plönturnar og fleira.“
Á vefsíðu Matvælastofnunar (MAST) segir að hlutverk og verkefni stofnunarinnar sé að: vernda heilsu manna, dýra og plantna og auka þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar.
Viðskiptavinur Fiskó segir að:
„MAST hafi verið sett í málið, en mér þykir mjög einkennilegt að þeir láta blöðin ekki vita af þessu þar sem þetta getur verið komið inn á nokkur hundruð heimili nú þegar. Ef það taka sig ekki allir til að hreinsa búr og fugla, já hamstrarnir í búðinni fengu þetta líka yfir sig… þá gæti þetta endað í hænsnabúum! Og við viljum alls ekki að hænur landsins fái þetta til sín. Þessi mítill getur lifað án fæðu í 9 mánuði svo það er afar mikilvægt að við bregðumst skjótt við.“































Athugasemdir