Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sóley og Lenya ósammála: „Vilja frelsi til að selja kynlíf á meðan önnur upplifa sig beitt ofbeldi“

Sóley og Lenya ósammála: „Vilja frelsi til að selja kynlíf á meðan önnur upplifa sig beitt ofbeldi“

„Hvernig væri að hlusta á fólk sem er sjálft í kyn­lífs­vinnu áður en við förum að móta ein­hverja stefnu fyrir þau?“ spyr Lenya Rún Taha Karim, þing­maður Pírata, í færslu sem hún birti á Twitter-síðu sinni í dag.

Mikil umræða hefur mynd­ast um vændi í kjöl­far frétta­flutn­ings um vændis­kaup Einars Hermans­sonar, frá­far­andi for­manns SÁÁ.

Færsla Lenyu vakti athygli Sóleyjar Tóm­as­dóttur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Vinstri grænna.

Sóley skrifar athuga­semd við færsl­una og gagn­rýnir Lenyu fyrir hennar nálgun á mál­efnið.

„Öll stefnu­mótun hvað þessi mál varðar er byggð á reynslu og þörfum fólks­ins sjálfs. Með því að úthrópa stuðn­ings­fólk núver­andi laga ertu að úthrópa ansi stóran hóp fólks­ins sem þú vilt að hlustað sé á. Þetta er ekki upp­byggi­leg nálgun,“ segir Sóley.

Lenya segir að málið snú­ist um þarfir fólks í kyn­lífs­vinnu og jað­ar­setn­ingu þeirra.

„Swerfismi er ekki að fara að leysa neitt,“ segir hún svo en orðið swerf­ism er ensk skil­grein­ing yfir femínista sem láta mál fólks í kyn­lífs­vinnu sig ekki varða.

Sóley spyr þá Lenyy hver þessi um hvaða hóp hún sé að ræða þegar hún segir „okkur“. „Um hver og án hvers? Það er klofn­ingur innan hóps­ins þar sem sum vilja frelsi til að selja kyn­líf á meðan önnur upp­lifa sig beitt ofbeldi,“ segir hún.

Lenya svar­aði þá fyrir sig og sagð­ist ekki hafa ætlað sér að skjóta á neinn.

„Ég held að það hljómi eins og ég sé að skjóta á ein­hvern útaf því ég sagði „móta stefnu“ en það er ekki mein­ingin,“ segir hún. „Tístið hefur ekk­ert með lög að gera heldur umræð­una á sam­fé­lags­miðlum hvað þetta varðar. Ég held að „ekk­ert um okkur án okkar“ sé fín nálgun og hefur alltaf verið.“

„Ég hef til­hneig­ingu til að hlusta á og taka mið af þörfum og vilja jað­ar­settasta fólks­ins sem er síð­ar­nefndi hóp­ur­inn í þessu til­viki,“ segir Sóley.

Lenya seg­ist þá vera að tala um að það þurfi að hlusta á þolendur vændis og einnig kyn­lífs­verka­fólk. Hún segir umræð­una verið við­kvæma og að aðkoma beggja hópa fólks í kyn­lífs­vinnu sé nauð­syn­leg til þess að hægt sé að gera umhverfið þolenda­vænna.

„Einn hóp­ur­inn er kannski jað­ar­sett­ari en hinn en báðir hópar vilja eflaust láta heyra í sér og eiga rödd innan sam­fé­lags­ins. Ég vil hlusta og læra,“ segir Lenya svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi