Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar allt lék á reiðiskjálfi innan RÚV: „Fréttamenn treysta sér ekki til að starfa með Auðuni“

Þegar allt lék á reiðiskjálfi innan RÚV: „Fréttamenn treysta sér ekki til að starfa með Auðuni“

Ráðning nýs frétta­stjóra á Rík­is­út­varpið skók stofn­un­ina og setti allt í bál og brand í mars árið 2005.

Auðun Georg Ólafsson, afleys­inga­maður á frétta­stofu Stöðvar 2 og fyrr­ver­andi starfs­maður Marels í Asíu, hreppti starfið.

Hann var af ein­hverjum tal­inn vera hallur undir Fram­sókn­ar­flokk­inn og til­efni ráðn­ing­ar­innar var sagt vera að koma ákveðnu jafn­vægi á frétta­flutn­ing.

Auðun var tek­inn fram fyrir reynslu­mikla frétta­menn af Rík­is­út­varp­inu. Deil­urnar urðu stöðugt magn­að­ari og urðu til þess að frétta­menn stofn­un­ar­innar lýstu van­trausti á Markús Örn Ant­ons­son útvarps­stjóra.

Það gerð­ist eftir að útvarps­stjóri mætti í við­tal í Kast­ljósi þar sem hann var feng­inn til þess að svara fyrir málið.

„Fram­ganga Markúsar í Kast­ljósi Sjón­varps­ins gekk gjör­sam­lega fram af félags­mönnum í Félagi frétta­manna og mér per­sónu­lega þar sem hann gerði lítið úr starfs­mönnum sínum og þeirra fag­lega starfi und­an­farin ár. Frétta­menn munu ekki sitja undir þessu og treysta sér ekki til þess að starfa með Auðuni Georg Ólafs­syni komi hann til starfa á frétta­stof­una,“ sagði Jón Gunnar Grjet­ars­son, for­maður Félags frétta­manna, við Frétta­blaðið af þessu til­efni.

Í áður­nefndu við­tali varði Markús þá ákvörðun sína að ráða Auðun í starfið. Þá þótti frétta­mönnum Útvarps­ins sem hann veitt­ist að heiðri þeirra. Í við­tal­inu færði Markús Örn rök fyrir því hvers vegna hann ákvað að ráða Auðun Georg.

Markús Örn sagði að Rík­is­út­varpið næði illa til ungs fólks og meðal ann­ars þess vegna væri gott að fá Auðun Georg, ungan og ferskan mann, til starfa. Aðspurður hvort hann gerði ekki lítið úr reynslu þeirra umsækj­enda sem hefðu unnið lengi á frétta­stof­unni og meðal ann­ars stýrt frétta­vöktum svar­aði Markús Örn:

„Stýra vöktum. Hvað er það mikið atriði fyrir nýjan mann og hvað tekur það langan tíma að læra að stilla upp vöktum.“

Auðun Georg virt­ist ætla að halda því til streitu að þiggja starfið. Þann 31. mars mætti hann á frétta­stofu Útvarps til að heilsa upp á vænt­an­lega und­ir­menn sína. Frétta­blaðið birti af þessu til­efni mynd af honum að heilsa Brodda Brodda­syni frétta­manni. Heim­sóknin breytti þó í engu afstöðu frétta­mann­anna sem árétt­uðu að þeir myndu ekki lúta boðum nýs frétta­stjóra. 200 starfs­menn Rík­is­út­varps­ins sam­þykktu van­traust á Markús.

Útvarps­stjór­inn stóð afskap­lega tæpt þótt hann nyti stuðn­ings Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur mennta­mála­ráð­herra sem lét í ljósi efa­semdir um fram­göngu frétta­manna RÚV.

Þann 1. apríl dró svo til tíð­inda þegar Auðun mætti til vinnu. Í til­efni af nýja starf­inu veitti hann Ingimari Karli Helga­syni, frétta­manni Sjón­varps­ins, við­tal. Í við­tal­inu varð hann tví­saga. Ingimar Karl hafði kom­ist á snoðir um leyni­fund nýja frétta­stjór­ans með Gunn­laugi Sævari Gunn­laugs­syni, for­manni útvarps­ráðs, dag­inn áður. Hann spurði Auðun hvort hann hefði fundað með for­mann­inum nýlega. Hinn neit­aði því. Þegar spurn­ingin var ítrekuð með vit­neskj­unni um fund­ar­dag­inn sagði Auðun að efni fund­ar­ins væri trún­að­ar­mál.

Þar með lauk ferli hans sem frétta­stjóra á einum degi. Hann sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði að vegna aðstæðna á frétta­stofu Útvarps sæi hann sér ekki fært að skrifa undir ráðn­ing­ar­samn­ing. Hann þvertók fyrir að hafa sótt um á vegum stjórn­mála­afla eða ann­arra.

„Þrátt fyrir að vegið hafi verið að per­sónu minni með afar ósann­gjörnum hætti, mann­orð mitt svert með röngum ásök­unum, hreinum lygum haldið á lofti og mér allt að því hótað, ákvað ég engu að síður að mæta til starfa með opnum huga og gefa frétta­mönnum á frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins tæki­færi til að sýna að sann­girni, hlut­leysi, rétt­læti og fag­leg vinnu­brögð væru höfð að leið­ar­ljósi.

Í við­tali sem ég veitti frétta­manni Rík­is­út­varps­ins í dag í til­efni af því að ég hæfi störf var með lævís­legum hætti reynt að koma mér í vand­ræði. Það tókst, þar sem ég vildi ekki rjúfa trúnað. En frétta­mað­ur­inn var ekki hlut­laus, hann var máls­að­ili, og honum tókst ekki að gera grein­ar­mun þar á …“.

Þar með lauk ferli hans á Rík­is­út­varp­inu og hann hvarf jafn­skjótt og hann birt­ist. Fátt sagði af Auðuni næstu árin. Árið 2013 stofn­aði hann Kópa­vogs­blaðið sem hann hefur síðan haldið úti með ágætum árangri.

Markús og félagar brugð­ust skjótt við eftir brott­hvarf Auðuns og réðu þann þaul­reynda frétta­mann, Óðinn Jónsson, sem frétta­stjóra. Hann tók við starf­inu í byrjun apríl. Þar með færð­ist að nýju ró yfir stofn­un­ina; í bili. Óðinn Jónsson sat í sjóð­heitum stól frétta­stjór­ans þar til árið 2014 þegar hann hætti í fram­haldi þess að Páll Magn­ús­son útvarps­stjóri lét af störfum í fússi þegar enn einn nið­ur­skurð­ur­inn blasti við stofn­un­inni eftir langvar­andi halla­rekstur. Þá fóru menn var­lega í ráðn­ingu og Rakel Þor­bergs­dóttir, óum­deildur frétta­maður, var ráðin í starfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi