Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sorgleg viðbrögð eftir Danaleik: „Maður á ekki skilið að deyja fyrir að tap­a hand­bolta­leik“

Sorgleg viðbrögð eftir Danaleik: „Maður á ekki skilið að deyja fyrir að tap­a hand­bolta­leik“

Leikur Frakk­lands og Dan­merkur verður lengi í minnum hafður. Fyrir leik­inn var ljóst að Ísland kæm­ist í und­an­úr­slit ef Danir sigr­uðu Frakka.

Svo fór ekki. Danir voru yfir lengstum, en gamla seiglan í Frökkum kom þeim inn í leik­inn í blá­lokin og svo fór að þeir hirtu eins marks sigur og bæði Danir og Frakkar í und­an­úr­slit­unum, en við sátum eftir.

En við­brögð margra Íslend­inga eftir tap Dana fóru algjör­lega yfir strikið.

Hagkaup frestaði Dönskum dögum. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, útbjó til­lögu til þings­á­lykt­unar þess efnis að danska kór­ónan yrði fjar­lægð af Alþing­is­hús­inu við Aust­ur­völl. Og ýmis­legt fleira. Ljóst var að tap Dana fór veru­lega fyrir brjóstið á mörgum Íslend­ingnum.

Það sem þó er sýnu verst er, að leik­mönnum og þjálf­urum danska hand­boltalands­liðs­ins bár­ust mörg ljót skila­boð frá Íslend­ingum eftir umræddan leik Dan­merkur og Frakk­lands; voru margir hverjir Íslend­ingar afar ósáttir eftir leik­inn, fóru mik­inn og létu gamm­inn geisa á sam­fé­lags­miðlum.

Og því miður gengu ein­hverjir enn lengra og sendu leik­mönnum og þjálf­urum danska liðs­ins hót­anir.

Fjöl­miðla­full­trúi danska hand­knatt­leiks­sam­bands­ins, Frederik Schmidt, lét hafa eftir sér að ekk­ert væri til í því að danska liðið hefði tapað leiknum vilj­andi.

„Ég er ekki hrif­inn af sum­um skila­boðum sem leik­mönn­um og þjálf­arat­eym­inu hafa borist eft­ir leik­inn gegn Frakk­landi í gær­kvöldi. Þeir töp­uðu ekki vilj­andi. Og nei, maður á ekki skilið að deyja bara vegna þess að maður tap­ar hand­bolta­leik.“

En, já, Frakk­land vann, Danmörk tap­aði og Ísland log­aði.Til dæmis á Twitter þar sem fólk hraun­aði yfir, eins og sagt er, danska liðið og dönsku þjóð­ina, vegna úrslita leiks­ins.

Grjót­haltu­KjaftiOg­Farðu­HeimÍ­Þitt­Fla­ta­LandOg­Vertu­ÞarMeð­ÞittSmør­rebr­ødOg­Hugs­aðu­Þinn­Gang — Krilla

Margt fleira ljótt er að finna um Dani á sam­fé­lags­miðlum, en einnig má lesa þar smá glens og grín, eins og þetta hjá Unu Stef:

„Ég hata Dani svo mikið akkúrat núna að mér finnst Mads Mikk­el­sen næstum því ljótur.“

Ljóst er að hand­knatt­leikslið Íslands kemst ekki í und­an­úr­slit og tím­inn mun leiða í ljós hvort tap Dana verður þeim lán í óláni eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi