Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigga Dögg brotnaði saman eftir Kastljós: „Ég hef aldrei lent í því að það sé talað svona til mín“

Sigga Dögg brotnaði saman eftir Kastljós: „Ég hef aldrei lent í því að það sé talað svona til mín“
Sigga Dögg í Kast­ljósi á dög­unum. Mynd/skjá­skot RÚV

„Ég hef aldrei lent í því að það sé talað svona til mín og við mig,“ sagði kyn­fræð­ing­ur­inn Sigga Dögg í beinu streymi á Instagram-síðu sinni í gær­kvöldi eftir Kast­ljós­þátt kvölds­ins. Sigga Dögg var gestur þar ásamt Hönnu Björgu Vil­hjálms­dóttur, kynja­fræð­ingi.

Í þætt­inum tók­ust þær á um kyn­fræðslu Siggu Daggar fyrir ung­linga. Tilefnið var grein sem Hanna Björg skrif­aði ásamt Maríu Hjálmtýs­dóttur þar sem þær gagn­rýndu fræðslu Siggu Daggar harð­lega og sögðu hana normalísera ofbeld­is­hegðun með því að ræða við ung­linga um blæti í kyn­lífi á borð við kyrk­ing­ar­tök sem eðli­legan hlut.

Hanna Björg og Sigga Dögg í Kast­ljósi. Mynd/skjá­skot RÚV.

Fjallar um það sem unglingarnir biðja um

Í Kast­ljósi svar­aði Sigga Dögg gagn­rýni Hönnu Bjargar og sagð­ist ekki kenna kyrk­ingar í kyn­fræðslu.

„Þegar þetta kemur upp og við erum að tala um sam­þykki og hvernig á að tala um sam­þykki og hvernig á að tala um mörk, þá gef ég stundum nokkra val­kosti eða ég tek það sem þau biðja að fjallað sé um. Þannig að það er eng­inn að kenna kyrk­ingar. Þetta er umræða um þetta sam­þykki og mörk, hvernig við setjum það, hvernig við virðum það, hvernig erum við ólík í kyn­lífi og ég átta mig alveg á fjöl­breyti­leika hóps­ins – enda er ég búin að vinna við þetta í 12 ár um allt land,“ sagði Sigga Dögg.

Sigga Dögg útskýrði aðdrag­anda þess að hún hafi rætt mál eins og þessi við ung­linga í fræðslu sinni: „Þetta er eitt­hvað sem ég hef talað örsjaldan um í örfáum kennslu­stundum af því þetta var svo stórt í dæg­ur­málum á tíma­bili og þá fannst mér ég verða að stíga inn í þetta, af því það voru allir til dæmis að raula lag þar sem fjallað var um þetta. Og svo kemur TikTok og þar er alls konar umræða sem maður þarf að taka og grípa.“

Sagði Siggu Dögg á klámvæðingarlínunni

Hanna Björg lagði hart að Siggu Dögg: „Við vitum auð­vitað báðar hver hug­mynda­fræðin þín er. Þú ert ein­hvern veg­inn á klám­væð­ing­ar­lín­unni.“

„Vitum við það? Nei, þú veist það. Ekki ég. Ég er ekki á þeirri línu,“ svar­aði Sigga Dögg.

Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir. Mynd/skjá­skot RÚV.

Leið illa eftir þáttinn

Eftir Kast­ljós­þátt­inn sendi Sigga Dögg út beint streymi af Instagram-síðu sinni þar sem hún var klökk og að eigin sögn miður sín eftir þátt­inn og fram­komu Hönnu Bjargar. Hún þakk­aði fylgj­endum sínum fyrir fal­leg skila­boð.

„Ég set hund­rað pró­sent hjarta í allt sem ég geri og ég veit að þið vitið það. Þið eruð að skrifa svo ótrú­lega margt fal­legt. Ég fer ekki að gráta auð­veld­lega. Ég geri þetta ekki – ég fer ekki að gráta í kameru. En ég er bara búin að vera lesa yfir nokkur hund­ruð skila­boð og ég finn svo mikið hvað það er geð­veikt dýr­mætt að fá að vera með ykkur og fá að svara ykkur. Ég veit hvar pott­ur­inn er brot­inn og ég veit hvar er hægt að gera betur og ég verð að fá að vera hluti af því, því ég veit hvað þetta skiptir miklu máli og ég veit hvað það er vont að líða illa með hvernig kyn­vera maður er og skamm­ast sín.“

Sigga Dögg hélt áfram: „Ég get bara ekki farið út í dag­inn og vitað að ein­hver annar burð­ist með svo­leiðis. Það er bara ekki í boði. Það bara má ekki. Nú erum við bara komin á þann stað í sam­fé­lag­inu að við getum talað saman og við megum tala saman.

Erum við ekki öll að reyna að vinna að bættu og betra sam­fé­lagi? Erum við ekki öll að reyna að vinna að því að fræða og mæta öllum bara með kær­leika og þekk­ingu? Ég er þar og ég vil styðja við alla sem eru líka þar, því ég held að við séum öll í sama bátnum hérna; við erum öll bara mann­leg og erum öll bara að reyna að finna ást­ina. Til okkar sjálfra og mögu­lega til ann­arra.“

Sigga Dögg lýsti til­finn­ingum sínum eftir Kast­ljós­þátt­inn og felldi tár í streym­inu; aug­ljós­lega mikið niðri fyrir. „Mér leið ógeðs­lega illa eftir þetta Kast­ljós­við­tal. Mér fannst eins og það hefði bara verið komið illa fram við mig og talað illa við mig og til mín. Mér fannst það skrýtið, því ég reyni að gera þetta ekki við annað fólk.

Ég er ótrú­lega þakk­lát fyrir traustið sem þið sýnið mér og tæki­færið sem þið gefið mér. Ég veit að það er ekk­ert sjálf­sagt; ég veit að ég er á tímum þar sem skoð­anir eru mjög skiptar. Það er auð­velt að tjá sig og það er auð­velt að taka fólk bara niður og út og mis­skiln­ingur verður til. Hlutir eru teknir úr sam­hengi.“

Hún segir Ísland standa fram­ar­lega í þessum málum í sam­an­burði við aðrar þjóðir.

„Alltaf þegar ég er á ráð­stefnum úti um allan heim, þá er sama hvar ég tala, ég er alltaf: Nei þið skiljið ekki hvað við getum gert hérna á Íslandi og hvert sam­talið má fara og hvað við leyfum hérna.

Fólkið í heim­inum á bara ekki til orð um það hvað við getum gert hérna.

Ég er ekki að fara neitt. Ég er alltaf bara hér og þetta er mitt lífs­verk­efni; að þjóna. Að vinna við þetta og hjálpa til hérna og passa að fólk viti hver það er sem kyn­vera og líði vel með sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi