Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vigdís kjörin forseti fyrst kvenna í heiminum: „Nú erum við ævivinir“

Vigdís kjörin forseti fyrst kvenna í heiminum: „Nú erum við ævivinir“
Frú Vigdís fagnar sigri Mynd: Dagblaðið – skjáskot

Árið 1980 gerð­ist sá merki heims­við­burður að kona var kosin for­seti í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum. Var það frú Vigdís Finn­boga­dóttir sem kosin var fyrst kvenna í þetta hlut­verk en litlu mun­aði að hún tap­aði bar­átt­unni fyrir Guðlaugi Þor­valds­syni en aðeins mun­aði 200 atkvæðum.

Dag­blaðið Dag­blaðið, fjall­aði um sig­ur­inn á eft­ir­far­andi máta, morg­un­inn eftir kosn­ingar:

Vigdís Finn­boga­dóttir varð sig­ur­veg­ari for­seta­kosn­ing­anna og tekur við emb­ætti sem 4. for­seti íslenzka lýð­veld­is­ins hinn 1. ágúst nk. Eftir æsispenn­andi taln­inga­nótt varð það
Ijóst um dag­mál, að Vigdís yrði sig­ur­veg­ar­inn. Mjög mjótt var á munum með Vigdísi og Guðlaugi Þor­valds­syni lengst af og var mun­ur­inn minnstur 94 atkvæði yfir landið allt um fjög­ur­leytið í nótt. En síðan tók Vigdís að síga fram úr og er fyrstu tölur úr Austur-
lands­kjör­dæmi birt­ust voru úrslitin ráðin. Vigdis hlaut flest atkvæði í sex kjör­dæmum af átta. Hún sigr­aði í Reykja­vik, með 1,3% umfram Guðlaug, í Norð­ur­landi vestra með 1%
umfram Guðlaug, á Vest­fjörðum með 3,6% umfram Guðlaug, á Vest­ur­landi með hálfu pró­senti umfram Guðlaug en mestur varð sigur Vigdisar á Aust­fjörðum þar sem hún
hlaut 45,5% atkvæða og rúm 12% umfram Guðlaug. Þar inn­sigl­uð­ust úrslitin. Loks sigr­aði Vigdís á Suð­ur­landi, þar sem hún hlaut 2,1% umfram Guðlaug. Guð­laugur Þor­valds­son_ bar sigur úr býtum i tveimur kjör­dæmum; í Reykja­nes­kjör­dæmi með 0,1% umfram Vigdísi og á Norð­ur­landi eystra með 0,9% umfram Vigdísi. Fyrstu tölur í Reykja­vík og Reykja­nesi bentu til óvænts styrk­leika Alberts Guð­munds­sonar. En er á leið dróst hann aftur úr og bar­áttan stóð í öllum kjör­dæmum fyrst og fremst á milli Vigdísar og Guðlaugs.

Heild­ar­úr­slitin á land­inu öllu urðu þessi:

Vigdis Finn­boga­dóttir 43.530 33,6%
Guðl. Þor­valds­son 41.624 32,2%
Albert Guð­munds­son 25.567 19,8%
Pétur J. Thor­steins­son 18.124 14,0%
Það skildu þvi 1906 atkvæði þau
Vigdísi og Guðlaug. Auðir seðlar og
ógildir á öllu land­inu voru 540 eða
0,4%. Kosn­inga­þátt­taka var rétt lið­lega 90%.

Guð­laugur Þor­valds­son brást við úrslit­unum af sannri prúð­mennsku og hvatti þjóð­ina til að sam­ein­ast um Vigdísi.

„Þetta fór einsog ég bjóst við. Það varð mjótt á mun­unum. Ég óska Vigdísi Finn­boga­dóttur til ham­ingju og vona að þjóðin sam­ein­ist nú að baki henni þegar ótvir­ætt er orðið að hún hefur náð kjöri,” sagði Guð­laugur Þor­valds­son i sam­tali við DB um sex­leytið i morgun þegar ljóst var orðið hver úrslit kosn­ing­anna yrðu. „Á þess­ari stund er mér efst í huga þakk­læti til stuðn­ings­manna minna um land allt, sem lagt hafa á sig mikið starf, og til mót­fram­bjóð­end­anna fyrir þeirra hlut,“ sagði Guð­laugur Þor­valds­son í sam­tali við Dag­blaðið.

Umfjöllun Dag­blaðs­ins hélt áfram.

„Þetta á að vera ham­ingja okkar allra, nú er sum­arið byrjað,” sagði Vigdís Finn­boga­dóttir,
nýkjör­inn for­seti Íslands, snemma í morgun. Hinn nýi for­seti var þá að koma út i und­ur­fal­legan sum­ar­morg­un­inn eftir sjón­varps­við­tal. Nokkur ung­menni fögn­uðu Vigdisi og
færðu henni blóm. „Nú fer ég til hennar mömmu minnar og segi við hana: Góðan dag­inn, mamma mín, nú er ég orðin for­seti.” Vigdís heim­sótti síðan móður sína, en hélt síðan heim á Aragötu. Þegar þangað kom beið hennar fjöldi fólks og fagn­aði nýjum þjóð­höfð­ingja íslend­inga ákaf­lega. Gleðin var fölskva­laus og lófatakið stóð mín­útum saman. Vigdís var umföðmuð og kysst og grétu menn á götu úti og var þar eng­inn grein­ar­munur á körlum og konum. Vigdís Finn­boga­dóttir kom síðan út á svalir húss síns og ávarp­aði fagn­andi stuðn­ings­menn sína: „Við eigum ekk­ert að vopni nema orðið, en við getum mikið sagt með orðum.” „Við elskum þig öll,” hróp­aði fólkið. „Og ég elska ykkur öll,” svar­aði Vigdís. „Húrra
fyrir Íslandi og ykkur öllum.”

Marga gesti bar að garði og mátti m.a. sjá tvo ráð­herra, þá Svavar Gestsson og Hjörleif
Gutt­orms­son. Einnig voru margir vina Vigdísar úr leik­hús­inu, auk fjölda ann­arra. Þegar um hægð­ist náði blaða­maður DB tali af hinum nýja for­seta. Vigdís var klædd ákaf­lega fal­legri ull­ar­dragt úr íslenzkri ull. „Þetta er áheita­klæðn­aður, sem kona fyrir norðan sendi mér. Ég ætl­aði ekki að skarta þessu fyrr en ljóst væri að svona færi,” sagði Vigdis. „Ég vona að hún hafi séð mig í sjón­varp­inu.” Á borði Vigdísar lá kort til hennar frá Ástríði dóttur hennar. Það var hátíð­legt, svo sem hæfði til­efn­inu. Ástríður titl­aði móður sína sem vera bar: Til frú Vigdísar. Síðan sagði: „Jeg sagna þin mamma. Jeg fekk nít úr. Þín Ástriður. Hamingju með for­setan.” Og hvernig líður nýjum for­seta íslands? „Ég er hreykin. Mér finnst þetta vera ein­stök fram­sýni hjá íslend­ingum að kjósa sér konu til for­seta. Ég hef und­an­farna viku haft
þá bjarg­föstu trú, að þetta kjör gæti gert íslandi mikið gagn. Þetta vekur svo mikla athygli á land­inu. Aðrar þjóðir fara að átta sig á því, að hér býr þjóð sem hefur svo mikið vinnu­þol og svo mikla verk­menn­ingu. Ég lít á þetta sem minn sigur og jafn­rétt­is­bar­átt­unnar. Ég gaf mína per­sónu heilli þjóð til að vega og meta og það er mikil lífs­reynsla. Ég hafði ráð á þvi. Ég dró engan til ábyrgðar nema sjálfa mig. Ég er þannig sett einmitt vegna þess að ég er ógift. Kosn­inga­bar­áttan var öðru visi en ég bjóst við i upp­hafi. En ég hefði ekki viljað missa af þess­ari reynslu fyrir nokkra muni. Ég mun aldrei líta lifið sömu augum og fyrr. Ég átti ekki von á að vinna, en ég vissi að ég yrði ofar­lega, að ég myndi ekki bíða afhroð. Mér datt aldrei í hug að ég yrði fyrir níð­höggum. En það sýnir að jafn­rétt­is­bar­áttan hefur í raun löngu unnizt, en þess sig­urs hefur ekki verið neytt. Það hefði aldrei verið vegið svona að mér ef ég hefði ekki verið jafn­víg. Ég fer fljót­lega að hitta það fólk sem hefur kosið mig. Ég hef skilið við hund­ruð manna að und­an­förnu með þessum orðum: Nú erum við
ævi­vinir.”

Frú Vigdís var þjóð­höfð­ingi Íslend­inga allt til árs­ins 1996 og þótti hún kom­ast afar vel frá verki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi