Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Sonurinn sagði að pabbi hans væri að berja mömmu og þau vildu að hann væri í fangelsi“

„Sonurinn sagði að pabbi hans væri að berja mömmu og þau vildu að hann væri í fangelsi“

Við yfir­heyrslu hjá lög­reglu er haft eftir honum að eig­in­kona hans hafi við­haft ljót orð um hann fyrr um dag­inn og því hafi hann gripið með annarri hend­inni um munn hennar og slegið hana á munn­inn með hinni hend­inni tvisvar til þrisvar sinnum. Hafi hann haldið fast um munn hennar og slegið „bara venju­lega […] ekki mjög fast en þetta er við­kvæmt svæði“.

Enn fremur veitt­ist hann að eig­in­konu sinni á heim­ili þeirra með þeim afleið­ingum að hún hlaut mar innan á neðri vör og vinstra megin á and­liti.

Barnið greip símann

Málið má rekja til sept­em­ber 2019 þegar lög­reglan fékk sím­tal um að karl­mað­ur­inn væri að lemja eig­in­konu sína. Þegar lög­reglan mætti á svæðið kom mað­ur­inn til dyra og kann­að­ist ekki við neitt og sagði að konan hans væri í vinn­unni og börnin í skól­anum. Þegar lög­reglan hringdi í síma til­kynn­anda svar­aði eig­in­konan og var hik­andi í svörum. Greip þá einn sona þeirra sím­tólið og sagði að pabbi hans væri að berja mömmu sína og þau vildu að hann væri í fang­elsi.

Konan var með áverka á and­lit­inu en hún og börnin voru sótt af lög­reglu og flutt á lög­reglu­stöð­ina eftir að sím­tal­inu lauk. Hún vildi lítið tjá sig um málið en elsti sonur hennar sagði pabba sinn ráð­ast reglu­lega á móður sína og tala illa um hana. Maðurinn var í kjöl­farið hand­tekin og færður í fanga­geymslu fyrir rann­sókn máls­ins.

Neitaði að kaupa mat og nauðsynjavörur

Börnin lýstu miklu harð­ræði á heim­il­inu í við­tali hjá Barna­húsi. Pabbi þeirra tal­aði oft illa um móður þeirra og beitti þau ofbeldi. For­eldr­arnir hefðu skilið að borði og sæng í mars 2020 og börnin flutt ásamt móður í annað hús­næði. Pabbi þeirra hefði samt mætt oft heim til þeirra og reynt að taka þau frá móð­ur­inni. Dóttir þeirra kvaðst fá matraðir um pabba sinn á nótt­unni og að hann væri vondur.

„Ákærði hafi þá sest klof­vega yfir hana þar sem hún hafi legið á bak­inu á sóf­anum og sett stóran kodda yfir and­lit hennar, þrýst honum fast niður með báðum höndum og reynt að kæfa hana. Henni hafi fund­ist að hún væri að deyja og ítrekað beðið ákærða að hætta.“

Eig­in­kona manns­ins lýstu því hvernig hann beitti hana lík­am­legu, and­legu og fjár­hags­legu ofbeldi, meðal ann­ars með því að neita að kaupa handa þeim mat eða nauð­synja­vörur en hann var með vinnu en ekki hún. Í skýrslu hjá lög­reglu lýsti konan hræði­legu atviki.

Dæmdur í átta mánaða fangelsi

Karl­maður hefur verið dæmdur í átta mán­aða fang­elsi, þar af fimm mán­uði skil­borðs­bundið, fyrir að beita börn sín og eig­in­konu ofbeldi í fjögur ár.

Lands­réttur stað­festi dóm hér­aðs­dóm en þyngdi refs­ing­una úr sex mán­uðum í átta. Málið fór fyrir Lands­rétt vegna ágrein­ings um heim­fæslu brot­anna gagn­vart eig­in­kon­unni til refsi­á­kvæða og ákvörðun refs­ingar en stað­fest var nið­ur­staða hér­aðs­dóms um sak­fell­ingu fyrir brotin gegn börn­unum og heim­færslu til refsi­á­kvæða.

Maðurinn var dæmdur til að greiða eig­in­konu sinni 400 þús­und krónur og fjórum börnum sínum hverju um sig miska­bætur að fjár­hæð 300 þús­und krónur.

Maðurinn sem um ræðir var sak­felldur í hér­aði fyrir að hafa á tíma­bil­inu jan­úar 2016 til mars 2020 ítrekað veist með ofbeldi að einum sona sinna og látið aðra syni sína halda honum á meðan hann sló hann með plast­slöngu og inni­skó undir ilj­arnar. Ung dóttir manns­ins varð vitni að ofbeld­inu. Eins var hann sak­felldur fyrir að hafa í eitt skipti slegið einn sona sinna í and­litið þannig að hann fékk blóð­nasir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi