Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ökumaður í Garðabæ ók á gangandi konu og flúði af vettvangi

Ökumaður í Garðabæ ók á gangandi konu og flúði af vettvangi
Lög­reglan

Upp úr klukkan hálf eitt í nótt var til­kynnt um lík­ams­árás í mið­borg Reykja­víkur. Var máls­at­vikum lýst þannig að maður hefði hrint stúlku þannig að hún hras­aði aftur fyrir sig og lenti á bak­inu. Einnig var til­kynnt um mann sem hafði verið kýldur í and­litið. Þegar lög­regla kom á vett­vang var árás­ar­að­il­inn á bak og burt. Skömmu síðar hafði lög­regla upp á mann­inum og var frá­sögn hans með öðru sniði. Hann var með áverka og sam­kvæmt lög­reglu hafði hann mögu­lega farið úr axl­ar­lið. Maðurinn var fluttur með sjúkra­bíl á slysa­deild Land­spít­ala til aðhlynn­ingar og er málið í rann­sókn.

Lögregla þurfti að hafa afskipti af fleira fólki í mið­bænum í nótt. Laust eftir mið­nætti voru tveir ölv­aðir menn hand­teknir fyrir brot á lög­reglu­sam­þykkt, en þeir höfðu verið að slást og veit­ast að veg­far­endum. Sökum ann­ar­legs ástands voru menn­irnir vistaðir í fanga­geymslum lög­reglu í nótt. Lögregla hafði síðan afskipti af manni sem grun­aður var um brot á lög­reglu­sam­þykkt Reykja­vík­ur­borgar; að kasta af sér vatni á Lækj­ar­torgi. Maðurinn ját­aði brotið.

Í gær varð umferð­ar­slys við versl­anir í Garðabæ. Þar hafði bif­reið verið ekið á gang­andi konu. Eftir slysið hafði öku­maður sagst ætla að setja bif­reið­ina í stæði og athuga með skemmdir en flúði þá af vett­vangi. Konan fann til eymsla í mjöðm og var því flutt með sjúkra­bíl til aðhlynn­ingar á bráða­deild. Lögregla hefur upp­lýs­ingar um bif­reið ger­and­ans og er málið í rann­sókn.

Bíll valt í Kór­a­hverfi í Kópavogi. Ökumaður hafði misst stjórn á bif­reið sinni í hálku með þeim afleið­ingum að hún valt á hlið­ina. Engin slys urðu á fólki og var bif­reiðin flutt af vett­vangi.

Tilkynnt var um annað umferð­ar­slys laust fyrir klukkan þrjú í nótt á mótum Sæbrautar og Kringlu­mýr­ar­brautar. Þar hafði bif­reið verið ekið á ljósa­staur. Ökumaður fann til eymsla í síðu og var því fluttur til aðhlynn­ingar á bráða­deild Land­spít­ala. Bif­reiðin var flutt af vett­vangi og Orku­veitu til­kynnt um ljósastaur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi