Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þóra Kristín býður sig fram til formanns SÁÁ til að „hrinda í framkvæmd tímabærum breytingum“

Þóra Kristín býður sig fram til formanns SÁÁ til að „hrinda í framkvæmd tímabærum breytingum“
Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir

„Eftir áskorun frá fjöl­mörgum innan sam­tak­anna hef ég ákveðið að bjóða mig fram til for­mennsku í SÁÁ. Það geri ég í trausti þess að ég fái stuðn­ing til að hrinda í fram­kvæmd tíma­bærum breyt­ingum á starf­sem­inni sem ekki er hægt að skor­ast undan lengur í ljósi síð­ustu atburða,“ segir Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskr­ar erfða­grein­ing­ar, og bætir við:

„Okkar sam­eig­in­legu hags­munir, bæði þeirra sem hafa glímt við fíkni­vanda og/eða eiga ást­vini í þeim sporum, og sam­fé­lags­ins alls, eru að við gerum allt sem við getum til að að styðja veika alkó­hólista til betra lífs, með með­ferð, end­ur­hæf­ingu, sál­rænum stuðn­ingi og eft­ir­fylgd.“

Hún segir einnig að „SÁÁ er sam­an­safn ólíkra ein­stak­linga með mjög fjöl­breyttan far­angur mann­legra breysk­leika. Samtökin vilja taka utan um alla, hjálpa öllum. Það má aldrei breyt­ast. Þegar það koma upp erfið mál innan sam­tak­anna eða á sjúkra­stofn­unum þeirra verðum við alltaf að taka stöðu með þolendum ofbeldis. Þetta getur verið flókið en það þýðir ekki að það megi gefa afslátt af öryggi fólks eða mann­legri reisn.“

Að mati Þóru Krist­ínar er „Þetta flókið við­fangs­efni vegna þess að við erum öll saman í þessu, karlar, konur og ung­menni, bæði ger­endur og þolendur ofbeld­is­brota. Eitruð karl­mennska og harka er fylgi­fiskur harðrar neyslu og þótt fólk komi úr alls­konar aðstæðum höfum við flest verið föst inni í víta­hring og útsett fyrir margs­konar ofbeldi og sár­indum.

Konur hafa oft veik­ari félags­lega stöðu og minni lík­ams­burði til að verja sig. En það er til mik­ils að vinna. Ofneysla áfengis, lyfja og ann­arra vímu­efna er algeng­asta dán­ar­or­sök ungs fólks í dag. Bakvið slys, afbrot, ofbeldi, ótíma­bæra örorku, geð­sjúk­dóma, og hræði­leg barna­vernd­ar­mál, felur þessi sjúk­dómur sig oft í bak­grunn­inum sem orsök eða með­virk­andi þáttur.“

Meðal mark­miða Þóru Krist­ínar er að setja saman sann­leiks­nefnd til að taka á ofbeldis- og áreitn­is­málum innan vébanda sam­tak­anna í for­tíð og fram­tíð:

„Nýkjörin stjórn þarf að setja sér siða­reglur til að tryggja að það hafi sjálf­krafa í för með sér brott­vísun úr öllum trún­að­ar­stöðum ef fólk innan sam­tak­anna verður upp­víst að því að brjóta á veiku fólki eða mis­nota aðstöðu sína.

SÁÁ eru gras­rót­ar­sam­tök ólíkra ein­stak­linga sem hafa borið uppi með­ferð alkó­hólista og vímu­efna­sjúk­linga ára­tugum saman. Karlar og konur, fólk úr öllum stéttum sam­fé­lags­ins, hafa tekið höndum saman í bar­átt­unni og sú sam­kennd ásamt vel­vild þjóð­ar­innar er dýr­mætasta eign sam­tak­anna. Samtökin hafa haft ótrú­legan með­byr í sam­fé­lag­inu vegna þess ótví­ræða árang­urs sem hefur náðst. Þar hafa margir ein­stak­lingar lyft grettistaki og ég ber ómælda virð­ingu fyrir þeim öllum. Ég bið um ykkar stuðn­ing til að leiða umbóta­starfið framundan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi