Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bannárin á Íslandi stóðu yfir í 20 ár: „Þjóðin þoldi ekki þetta aðhald“

Bannárin á Íslandi stóðu yfir í 20 ár: „Þjóðin þoldi ekki þetta aðhald“

Bannárin á Íslandi stóðu yfir í 20 ár (eða 7 ár eftir því hvernig á málið er litið).

Algjört áfeng­is­bann gekk í gildi árið 1915. Bannið tók til þess að fram­leiða og selja áfenga drykki. Sala léttra vína var þó leyfð aftur árið 1922 (Spán­ar­vín), en áfeng­is­bannið var síðan afnumið alveg 1. febr­úar árið 1935. Bjór sem hafði verið leyfður fyrir 1915 var þó ekki leyfður aftur á Íslandi fyrr en 1. mars 1989. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur voru haldnar um áfeng­is­bann 1908 og 1933.

Áfeng­is­aug­lýs­ingar voru bann­aðar á Íslandi með lögum frá árinu 1928 meðan áfeng­is­bannið var enn í gildi. Áfeng­is­bann­inu var svo aflétt 7 árum seinna, en aug­lýs­inga­bannið hefur hald­ist síðan.

Með opnun Íslands gagn­vart umheim­inum hefur íslenskt sam­fé­lag tekið gagn­gerum breyt­ingum á síð­ustu ára­tugum. Lög­gjöfin og fram­kvæmd hennar í áfeng­is­málum hefur færst til frjáls­ræð­isáttar og við­horf lands­manna til áfengis færst nær því sem ger­ist ann­ars staðar í V-Evrópu. Á sama tíma hefur neysla áfengis auk­ist hér á landi ef rann­sóknir eru skoð­aðar og hægt er að rýna í text­anum hér að neðan. Lær­dóm­ur­inn sýnir svo­kall­aða íslenska bjór­mál­inu: Afar lík­legt er að upp­taka mark­aðslög­mála og rýmkun reglna um notkun vímu­efna, hvort heldur er áfengis eða ann­arra fíkni­efna, hafi leytt til auk­innar neyslu í sam­fé­lag­inu, en það er erfitt að segja.

Framleiðsla, sala og neysla bjórs var bönnuð á Íslandi

En af hverju var bjór bann­aður á sínum tíma en annað áfengi leyft?

Áfeng­is­neysla á Vest­ur­löndum á sér langa sögu. Ekki er lengur deilt um laga­lega stöðu áfengis þótt áfeng­is­vand­inn sé löngu þekktur og vel kort­lagður. Meðferð og neysla áfengis hefur ekki alltaf verið heim­iluð og áfengi ekki alltaf verið sam­fé­lags­lega við­ur­kenndur vímu­gjafi. Snemma á tutt­ug­ustu öld­inni var áfeng­is­neysla víða bönnuð, meðal ann­ars á Íslandi.

Fram­leiðsla, sala og neysla bjórs var fyrst bönnuð á Íslandi þegar áfeng­is­bannið tók gildi árið 1915. Alþingi ákvað árið 1922 að veita und­an­þágu frá algeru áfeng­is­banni og leyfði sölu spænskra vína, einkum vegna hættu á að tapa fisk­út­flutn­ingi til Spánar. Sjón­ar­mið heil­brigðis og almennrar lýð­heilsu sem voru grund­völlur banns­ins í upp­hafi urðu því að víkja fyrir við­skipta­hags­munum þjóð­ar­innar.

Í kjöl­far þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfeng­is­bannið árið 1933, þar sem naumur meiri­hluti reynd­ist fyrir því að aflétta bann­inu, ákvað Alþingi að leyfa inn­flutn­ing og sölu á öllu áfengi nema bjór frá og með 1. mars 1935. Að und­an­skilja bjór­inn frá afnámi áfeng­is­banns­ins vekur óneit­an­lega athygli. Ýmislegt bendir til að bannið á bjór hafi greitt fyrir sam­þykki frum­varps­ins að öðru leyti á Alþingi. And­stæð­ingar afnáms áfeng­is­banns voru ekki aðeins fjöl­margir meðal þjóð­ar­innar eins og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan hafði leitt í ljós skömmu áður heldur ekki síður á Alþingi þar sem þeir voru jafn­framt valda­miklir. Auk þess var því haldið fram á Alþingi að bjór­inn hefði ákveðna sér­stöðu meðal áfengra drykkja og gæti auð­veld­lega kveikt löngun í áfengi meðal við­kvæmra þjóð­fé­lags­hópa.

Bjórinn gæti betrumbætt drykkjusiði landsmanna

  1. mars 1935 mátti selja allt áfengi á Íslandi, annað en bjór.

Jónas Jónsson frá Hriflu og Tryggvi Þór­halls­son kusu gegn aflétt­ingu banns­ins árið 1922. Jónas sagði í grein í Tímanum 1939:

„Þegar Spán­ar­vínin voru leyfð, var ég annar af þeim tveim þing­mönnum, sem greiddi atkvæði gegn und­an­hald­inu við Spán­verja. Og árið 1928 und­ir­bjó ég hina síð­ustu sókn, sem Alþingi gerði í lög­gjöf um áfeng­is­málin. Með til­styrk þeirrar lög­gjafar var lækna­brenni­vínið og skipa­brenni­vínið upp­rætt. En þjóðin þoldi ekki þetta aðhald. Jafnvel ung­menna­fé­lögin höfðu afnumið bind­ind­is­heitið, og tvær stærstu hátíðir félag­anna voru orðnar landsk­unnar fyrir opin­bera stór­drykkju.“

Talsmenn bjór­banns­ins héldu því löngum fram á Alþingi að bjór­inn myndi auka áfeng­is­neyslu lands­manna, einkum ung­menna og verka­fólks. Aftur á móti töldu and­stæð­ingar bann á bjór skjóta skökku við þegar sterkt áfengi væri leyft og að einmitt bjór­inn frekar en sterkt áfengi gæti betrumbætt drykkjusiði lands­manna.

Bjór­bannið stóð til árs­ins 1989 þegar fram­leiðsla, inn­flutn­ingur og sala á bjór var loks leyfð eftir að lagðar höfðu verið fram tugir til­lagna á Alþingi um lög­leið­ingu á neyslu bjórs.

Hvers vegna lauk bjór­bann­inu árið 1989 en hvorki fyrr eða síðar? Bæði ytri og innri skil­yrði réðu miklu um þessa tíma­setn­ingu. Stuðn­ingur almenn­ings við afnám bjór­banns­ins óx allan níunda ára­tug­inn, bæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í öðrum lands­hlutum. Krafan um að Alþingi afnæmi bjór­bannið varð æ sterk­ari þegar á leið. Auknar utan­ferðir Íslend­inga og vax­andi straumur ferða­manna til Íslands hafði dregið úr ein­angrun lands­ins og stór hluti þjóð­ar­innar hafði kynnst menn­ingu ann­arra vest­rænna þjóða, meðal ann­ars bjór­siðum þeirra . Þessi opnun, bæði inn og út á við, gróf smám saman undan sam­fé­lags­legum for­sendum bjór­banns­ins. And­staðan við bjór­inn var mest meðal þing­manna úr dreif­býli og meðal flokka sem kenndu sig við alþýð­una, en með auknum stuðn­ingi við bjór­sölu og hraðri þétt­býl­is­myndun fjar­aði undan and­stöð­unni og greini­legri flokka­skipt­ingu milli stríð­andi fylk­inga.

Áfengissala jókst og drógst saman á víxl

Áhrif lög­leið­ingar bjórs á heild­ar­sölu áfengis og neyslu­mynstur

Áhrif lög­leið­ingar bjórs árið 1989 voru ekki að öllu leyti í sam­ræmi við vænt­ingar. Málsvarar bjór­banns­ins spáðu umtals­verðri aukn­ingu á áfeng­is­neyslu lands­manna í kjöl­far lög­leið­ingar. Fyrsta árið jókst neyslan veru­lega en hún gekk þó fljótt til baka. Árið 1988, þegar bjór­bannið var afnumið á Alþingi, nam árleg neysla af hreinum vín­anda 3,39 lítrum á mann, en árið 1995 var hún aðeins örlítið meiri eða 3,6 lítrar . Árið 2007 höfðu töl­urnar aftur á móti hækkað umtals­vert eða í alls sex lítra á mann. Athygl­is­vert er að sala á áfengi byrj­aði að vaxa áður en bjór­bann­inu var aflétt. Árið 1966, svo dæmi sé tekið, nam árleg neysla af hreinum vín­anda 2,33 lítrum á mann, en árið 1978 hafði hún auk­ist í 2,88 lítra.

Fleiri þættir en bann eða lög­leið­ing á bjór virð­ast því hafa áhrif á sölu áfengis. Sam­dráttur í hag­kerf­inu snemma á tíunda ára­tugnum dró úr kaup­mætti Íslend­inga sem að lík­indum hélt aftur af bjór- og áfeng­is­sölu á þeim tíma. Seint á tíunda ára­tugnum og í byrjun 21. ald­ar­innar náði hag­kerfið sér á strik á ný með meiri kaup­mætti almenn­ings og auk­inni áfeng­is­sölu. Minnk­andi áfeng­is­sölu varð sömu­leiðis vart í kjöl­far hruns­ins árið 2008  en salan jókst á ný með batn­andi efna­hag almenn­ings.

Bjórbanninu aflétt

Árið 1989 máttu Íslend­ingar loks kaupa bjór.

Aðrar breyt­ingar í átt að frjáls­lynd­ari áfeng­is­stefnu hafa einnig orðið á Íslandi á síð­ustu árum. Stefna stjórn­valda í áfeng­is­málum hefur á síð­ari árum mót­ast æ meir af mark­aðs­sjón­ar­miðum. Árið 1954 hafði aðeins eitt veit­inga­hús leyfi til að selja áfengi. Þau voru orðin 37 árið 1980, 148 árið 1988 og 322 árið 1994. Árið 2001 voru vín­veit­inga­leyfin orðin 512 en fjölgun þeirra þá var einkum á lands­byggð­inni. Árið 2017 eru leyfin aftur á móti komin vel yfir eitt þús­und.

Sömu þróun má sjá í fjölgun útsölu­staða ÁTVR. Stað­irnir voru aðeins sjö árið 1962, 24 árið 1994 en voru komnir yfir fimm­tíu árið 2017. Frjáls­lynd­ari áfeng­is­stefna sem birt­ist í fleiri sölu­stöðum, rýmri opn­un­ar­tíma, og almennt meira aðgengi að áfengi, hefur því án vafa átt þátt í að auka áfeng­is­neyslu í land­inu og afnám bjór­banns­ins aðeins einn liður í þeirri aukn­ingu.

Mikilvæg breyt­ing hefur orðið á neyslu sterkra drykkja á síð­ustu ára­tugum. Um leið og bjór­inn kom til sög­unnar árið 1989 byrj­aði að draga úr neyslu á sterku áfengi. Neysla létt­vína nán­ast tvö­fald­að­ist og bjór­salan jókst enn meira á næstu árum. Á sama tíma dró úr neyslu á sterku áfengi og varð aðeins um helm­ingur þess sem hún var síðla á níunda ára­tug síð­ustu aldar . Bjórinn bætt­ist því ekki ein­fald­lega strax við sterkvíns­drykkj­una sem margir bjór­and­stæð­ingar töldu lík­legt að myndi ger­ast við afnám banns­ins. Neyslan færð­ist frá sterk­ari drykkjum í átt­ina að veik­ari áfeng­is­teg­undum.

Breytt viðhorf til áfengisneyslu

Nýir drykkjusiðir hafa látið á sér kræla á síð­ustu árum. Dregið hefur úr áber­andi ölv­unar­á­standi á almanna­færi. Breytt við­horf til áfeng­is­neyslu hafa leitt til þess að fólk drekkur minna hverju sinni, en ef til vill við fleiri tæki­færi en áður .

Bjórinn hefur ekki orðið til að auka drykkju ung­menna því mæl­ingar ESPAD sýna að áfeng­is­neysla grunn­skóla­nem­enda hefur minnka og er nú með því minnsta sem ger­ist í V-Evrópu.

Alþjóð­leg lang­tíma­rann­sókn (ESPAD) á áfeng­is­neyslu skóla­nema á aldr­inum 15 til 16 ára sýnir að gagn­stætt því sem and­stæð­ingar bjórs­ins ótt­uð­ust fækk­aði nem­endum sem drukku mikið áfengi á árunum 1995 til 2007 . Nýrri ESPAD-mæl­ingar sýna að áfeng­is­neysla grunn­skóla­nem­enda hefur haldið áfram að minnka og er nú með því minnsta sem ger­ist í V-Evrópu. Tilkoma bjórs­ins virð­ist ekki hafa leitt til meiri áfeng­is­neyslu á vinnu­stöðum eða leitt til auk­innar neyslu meðal verka­fólks á vinnu­stöðum eins og stuðn­ings­menn bjór­banns­ins spáðu.

Afnám bjór­banns­ins er að sam­an­lögðu aðeins ein af mörgum ástæðum vax­andi áfeng­is­neyslu á Íslandi á síð­ari árum. Íslend­ingar neyta þó enn minna áfengis en flestar aðrar vest­rænar þjóðir, en bilið milli okkar og ann­arra hefur samt minnkað. Hugs­an­lega má halda því fram að drykkju­hegðun hafi almennt batnað á Íslandi, þótt ekki hafi dregið úr vanda­málum tengdum áfeng­is­sýki. Um tvö þús­und manns hafa árlega komið til með­ferðar hjá SÁÁ á und­an­förnum árum, þar af um þriðj­ungur í fyrsta sinn .

Heim­ildir:

Alþingi, (2017). Svar þáver­andi ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Nicole Leigh Mosty um fjölda vín­veit­inga­leyfa.  http://www.althingi.is/altext/146/s/0363.html.

Ásgeir Guð­munds­son, (1975). Saga áfeng­is­banns­ins á Íslandi. Reykja­vík: Háskóli Íslands.

ÁTVR. Saga ÁTVR. Sótt af heima­síðu ÁTVR. https://www.vinbudin.is/heim/um_atvr/fyrirtaekid/tabid-2368/saga-%C3%A1tvr

ESPAD (2020). The ESPAD Report 2020: Results from the European School Survey Project on Alcohol and other Drugs.

Ferða­mála­stofa, (2022). Fjöldi ferða­manna. https://www.ferdamalastofa.is/is/tolur-og-utgafur/fjoldi-ferdamanna.

Hagstofa Íslands, (2022). Umfang áfeng­is­neyslu á Íslandi. http://www.heilsuhegdun.is/afengi/annad/tolulegar-upplysingar/umfang-afengisneyslu-a-%C3%ADslandi/.

Hagstofa Íslands, (2017). Áfeng­is­neysla á Íslandi. Sótt 26. maí 2017 af: https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/heilbrigdismal/afengisneysla-a-islandi/.

Helgi Gunn­laugs­son, (2009). Lög­leið­ing bjórs á Íslandi: Félags­leg átaka­mynstur og afnám banns­ins. Í Rann­sóknir í félags­vís­indum X Félags- og mann­vís­inda­deild, bls. 61-72. Rit­stjórar Gunnar Þór Jóhann­es­son og Helga Björns­dóttir. Reykja­vík: Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands.

Morg­un­blaðið, (2009, 1. mars). Teygaður í tutt­ugu ár, bls. 8.

OECD Health Statistics. 2020.

Visir.is, (2009, 16. júlí). Sala á hús­gögnum hrynur.  http://www.visir.is/g/2009143713237/sala-a-husgognum-hrynur.

Þóroddur Bjarna­son, (2009). Vímu­efna­neysla íslenskra ung­linga í alþjóð­legum sam­an­burði. Akureyri: Rann­sókna­setur for­varna við Háskól­ann á Akureyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi