Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar Jón Páll varð sterkastur í fyrsta sinn: „Ég er orðinn þreyttur á því að vera í öðru sæti“

Þegar Jón Páll varð sterkastur í fyrsta sinn: „Ég er orðinn þreyttur á því að vera í öðru sæti“

„Varla lýgur útvarpið,“ sagði Jón Páll þegar fjöl­miðlar höfðu sam­band við hann og spurðu hvort hann hefði verið krýndur sterkasti maður heims dag­inn áður. Það ríkti leynd yfir úrslit­unum og kepp­endur höfðu skrifað undir þagn­ar­samn­ing. Það var vegna þess að T.W.I sjón­varps­steypan átti sjón­varps­rétt­inn á keppn­inni og ætl­aði sér að selja hann án þess að úrslit væru kunn.

Jón Páll Sig­mars­son, fer­faldur heims­meist­ari í kaft­lyft­ingum, varð sterkasti maður heims í fyrsta sinn í byrjun árs­ins 1985, þegar hann lyfti sam­an­lagt 525,7 kílóum. Í þau skipti sem hann sigr­aði ekki keppn­ina lenti hann aldrei neðar en í þriðja sæti.

„Íslenska útvarpið náði upplýsingum í gær frá keppn­inni eftir krókaleiðum að því er það sagði og líklegt verður að telja að þær upplýsingar séu réttar. Samkvæmt því sigr­aði Jón Páll, og fékk tit­il­inn „sterkasti maður heims,“ fékk 57 stig. Hol­lend­ing­ur­inn Waulters varð annar með 51,5 stig og Bretinn Geoff Capes þriðji með 49 stig,“ sagði í frétt NT um málið. Keppnin var haldin í Mora í Svíþjóð.

Þagnareiður og Dala-hestur

Meira úr grein NT:

„Jón Páll sagði í sam­tali við NT í gær að hann væri búinn að skrifa undir „þagn­ar­samn­ing“. Hann sagði að keppnin hefði gengið mjög nærri sér, hefði tekið tíma frá morgni til kvölds og hefði verið mjög erfið. Fyrri dag­inn var keppt í því að draga vöruflutn­ingabíl, kasta trjábol, halda á „dala- hesti“ útréttum örmum í sem lengstan tíma og að lyfta stórum grjóthnull­ungum. Eftir fyrri dag­inn hafði Jón Páll for­ystu í keppn­inni, en Bretinn Capes var annar.

Í gær var svo keppt í því að hlaupa 80 metra með sleða hlað­inn 400 kg hlassi eftir ís, hlaða vörubíl með átta 80 kg ísklumpum, lyfta trjábolum og var sá þyngsti 240 kg, og síðast var farið í sjómann. „Ég má ekk­ert segja hvernig þetta gekk,“ sagði Jón Páll.
En líkur benda allar til að Jón Páll Sig­mars­son beri tit­il­inn „sterkasti maður heims“.“

Jón Páll með Dala-hest­inn. Mynd/skjá­skot NT.

Ætlaði að snúa sér að vaxtarrækt

Tæpu ári fyrr, þann 8. mars árið 1984, hafði birst frétt í DV þar sem rætt var við Jón Pál í heilsu­rækt­inni Orkulind. Þá vildi hann meina að hann ætl­aði sér að hætta í kraft­lyft­ingum og snúa sér alfarið að vaxt­ar­rækt. Sú átti þó ekki eftir að verða raunin.

„Það muna eflaust margir eftir orða­til­tæki, sem gekk hér fyrir nokkrum árum, sem hljóðaði þannig: „Ekkert mál fyrir Jón Pál”… Þessi setn­ing varð fleyg eftir að kraftajötun­inn Jón Páll Sig­mars­son sagði þetta í íþrótta­þætti í sjónvarp­inu. Þá stóð hann þar með mörg hund­ruð kíló á lóðunum í kraft- lyft­ingamóti og brosti framan í áhorf­endur sem göptu af undrun.

Lítið hefur heyrst af Jóni Páli að und­an­förnu, en við rák­umst þó á hann á dögunum í heilsu­rækt­inni Orkulind í Braut­ar­holti. Þar þandi hann vöðvana í allar átti á milli þess sem hann handlék lóðin með mörgum kílóum á eins og ekk­ert væri.

Jón Páll sagði okkur að hann væri að mestu hættur að æfa og keppa í kraft­lyft­ingum. Nú væri það vaxt­ar­ræktin sem hann legði alla áherslu á.

Hann hefði alltaf haft áhuga á henni sem íþrótt og hann hefði tekið ákvörðun fyrir nokkru að keppa á Íslandsmótinu í vaxt­ar­rækt sem verður 25. mars nk.

Hann sagð­ist nú æfa a.m.k. þrjá tíma á dag og það sjö sinnum í viku. Nú væri hann að brenna af sér fit­una – borð­aði bara fisk og prótínríka fæðu. Núna væri hann um 110 kg að þyngd en hefði mest verið 130 kg.

Jón Páll sagð­ist vera að spila upp á það að taka þátt í vaxt­ar­rækt­armótum erlendis í framtíðinni svo og afl­raunamótum víða um heim. Hann tók þátt í einu slíku móti á Nýja Sjálandi í vetur og varð þar í öðru sæti. Hann hefur nú fengið boð um að taka þátt í hálanda­leik­unum í Skotlandi í júní í sumar og einnig í keppni um tit­il­inn „sterkasti maður Norð­ur­land­anna” sem verður í sumar.

En nú eru það sem sé vöðvarnir og utanáliggj­andi æðar sem allt snýst um hjá þessum krafta­karli okkar, og af vöðvunum hefur hann þegar nóg eins og sjá má…“

Þetta var áður en Jón Páll varð heims­meist­ari í kraft­lyft­ingum í Mora í Svíþjóð og eins og þjóð veit hætti hann sann­ar­lega ekki í kraft­lyft­ingum á þessum tíma­punkti á ferli sínum.

Mynd/skjá­skot DV.

Tognaði í fyrstu keppnisgrein dagsins

„Ég vil ekk­ert láta hafa eftir mér varð­andi keppn­ina annað en það að ég er feg­inn að þessu er lokið, og að ég er orð­inn örþreyttur. Ég tók á öllu sem ég átti til,“ sagði Jón Páll í sam­tali við Morg­un­blaðið þann 25. jan­úar árið 1985, dag­inn eftir að hann vann tit­il­inn.

„Þannig er mál með vexti að ég er bund­inn þagn­areið varð­andi síð­ari dag keppn­innar. Við þurfum að und­ir­rita samn­ing við þær fjórar sjón­varps­stöðvar sem tóku keppn­ina upp og hétum því að segja ekk­ert frá úrslitum. Keppnin verður sýnd í sjónvarpi erlendis og þar munu úrslitin koma í ljós,“ sagði Jón Páll í við­tal­inu.

Enn­fremur sagði í Morg­un­blað­inu:

„Það var því úr vöndu að ráða, en eftir krókaleiðum tókst Morg­un­blað­inu að fá mjög áreið­an­legar heim­ildir varð­andi keppn­ina. Það fékkst stað­fest að Jón Páll hefði sigrað eftir harða keppni við Hol­lend­ing­inn Voldes og Bretann Capes. Jón Páll fékk 57 stig af 60 mögulegum í keppn­inni. Voldes varð annar og Capes þriðji. Allir eru þessir menn þekktir að því að vera helj­ar­menni að burðum.

Fyrsta keppn­is­greinin í gær var sleðadráttur. Kepp­endur máttu ýta eða draga 400 kg sleða, og áttu þeir að fara með hann 80 metra vega­lengd. Jón fór vel af stað með sleð­ann en varð fyrir því óhappi að togna í baki og það háði honum. Næst var keppt í bekk­pressu. Kepp­endur lyftu stórum trjástofnum og þurftu um leið að gæta þess að halda fullu jafn­vægi með tréð. Þetta reynd­ist þeim mjög erfitt. Jón hafn­aði í þriðja sæti og nú fann hann fyrir verkjum í brjóstvöðvum.

Þá var komið að þvi að hlaða 80 kg þungum ísmolum á vörubíl. Þar tókst Jóni all­vel upp þrátt fyrir meiðsl sín og náði öðru sæti, en keppnin í þess­ari grein var gífur­lega hröð og spenn­andi. Nú voru þeir Valdes og Capes farnir að draga á Jón og ekki mun­aði miklu á stigum.“

Mynd/skjá­skot Morg­un­blaðið.

Sagðist slakur í sjómanni

„Síðast var keppt í sjómanni. Jón Páll hafði lýst því yfir hér heima áður en hann fór út að hann væri slakur í sjómanni, hefði ein­hvern veg­inn ekki lag á að beita höndunum rétt. En engu að síður var það Jón Páll sem kom, sá og sigr­aði í síðustu keppn­inni. Fyrsti mótherji hans var Banda­ríkja­maður, orð­lagður kappi í sjó­manni. Eftir snarpa en harða viður­eign lagði Jón hann. Þá mætti Jón Capes frá Bret­landi, lengi vel mátti ekki á milli sjá hvor myndi hafa það, en Jón reynd­ist harð­ari og sigr­aði eftir mikil átök. Þar með hafði Jón tryggt sér heims­meist­ara­tit­il­inn og þar sem hann var meiddur og fyrsta sætið og heims­meist­ara­tit­ill í höfn hætti Jón keppni.“

Jón hafði sagt í spjalli Morg­un­blaðið þegar mótið var nýhafið: „Ég ætla að taka þessa karla, ég er orð­inn þreyttur á því að vera í öðru sæti.“

„Hann hefur svo sann­ar­lega staðið við þessi orð sín. Þá vildi Jón koma á fram­færi þakk­læti til allra þeirra fjölmörgu sem studdu hann til far­ar­innar,“ sagði í grein Morg­un­blaðs­ins.

Mynd/skjá­skot DV.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi