Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Edda Falak lýsti eftir fórnarlömbum þekkts manns – Arnþór úthrópaði Kára Stefánsson og Þóru ofbauð

Edda Falak lýsti eftir fórnarlömbum þekkts manns – Arnþór úthrópaði Kára Stefánsson og Þóru ofbauð

Miklar svipt­ingar hafa verið inn stjórnar sam­tak­anna SÁÁ eftir að Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, fram­bjóð­andi til for­manns­emb­ættis, dró fram­boð sitt til baka rétt rúmri klukku­stund fyrir stjórn­ar­fund þar sem aðal­málið á dag­skrá var að kjósa um hvort að hún yrði næsti for­maður. Þá sagði hún sig úr stjórn sam­tak­anna ásamt yfir­manni sínum hjá Íslenskri erfða­grein­ingu, Kára Stef­áns­syni, en Þóra Kristín starfar sem upp­lýs­inga­full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins.

Mannlíf fjall­aði um til­kynn­ingu sem Þóra lét falla á facebook síðu sinni í dag, þar sem hún dró fram­boð sitt til baka.

Ljóst er að Þóra Kristín gekk að emb­ætti for­manns SÁÁ vísu enda höfðu 40 af 48 stjórn­ar­mönnum skorað á hana að gefa kost á sér til starfs­ins og því aðeins forms­at­riði að klára kosn­ing­una.

Arnþór sendi fyr­ir­spurn á Þóru Kristínu sem hann sendi jafn­framt á alla stjórn­ar­með­limi SÁÁ 48 tals­ins. Mannlíf hefur þennan póst undir höndum en í honum segir:

„Sæl Þóra Kristín

Með­fylgj­andi er skjá­skot frá í gær 2. febr­úar. Konur sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmi­legrar fram­komu ein­hvers frægð­ar­mennis, munu lík­lega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upp­lýs­ing­arnar á mynd­inni gætu þolend­urnir verið skjól­stæð­ingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að ger­and­inn sé Kári Stef­áns­son. Getur þú stað­fest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?

AJ“

Rétt er að geta þess að mik­il­vægt er að skilja á milli dag­legrar starf­semi SÁÁ, sem gengur sinn vana­gang og átak­anna innan stjórn­ar­innar. Eins og stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­arnar við Þóru Kristínu bera með sér er stjórn SÁÁ heilt yfir afar sam­stíga en lítil and­spyrnu­hreyf­ing sem teng­ist Þórarni Tyrf­ings­syni, fyrr­ver­andi yfir­lækni og stjórn­anda SÁÁ, hefur valdið miklum usla. Höfuð þeirrar and­spyrnu­hreyf­ingar innan stjórn­ar­innar eru Arnþór Jónsson, fyrr­ver­andi for­maður SÁÁ, og Björn Logi, sér­fræði­læknir og sonur Þórarins.

Ástandið innan stjórn­ar­innar var þegar afar við­kvæmt útaf stríði SÁÁ við Sjúkra­trygg­ingar Íslands en stofn­unin hefur kært sam­tökin fyrir 175 milljón króna fjár­svik eins og frægt er. Sá sem er á bak við málið innan Sjúkra­trygg­inga er Ari Matth­í­as­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri SÁÁ, sem flestir stjórn­ar­menn telja að sé í áður­nefndri and­spyrnu­hreyf­ingu.

Starf þeirra gert tortryggilegt

Vís­bend­ingar um hvað hefur gengið á síð­ustu daga  á má lesa út úr færslu Þóru Krist­ínar á Facebook þar sem að hún dregur fram­boð sitt til­baka. Þar segir hún að hafa vitað að því fyr­ir­fram að hálf­gert stríðs­á­stand ríkti innan sam­tak­anna. Fljót­lega eftir fram­boð hennar, sem varð form­legt fyrir þremur dögum, hafi þó spjótin beinst að henni.

„Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einka­lífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfeng­is­með­ferð, lent á vegg í líf­inu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af. Það er sýnu alvar­legra að fyrr­ver­andi stjórn­endur SÁÁ eru líka að hlaða í bál­köst á sam­fé­lags­miðlum fyrir Kára Stef­áns­son yfir­mann minn og náinn vin sem hefur einnig gert margt í sinni for­tíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og situr líkt og ég í aðal­stjórn SÁÁ og er löngu hættur að drekka,“ skrif­aði Þóra Kristín í yfir­lýs­ingu sinni.

Sagði hún jafn­framt að atlög­urnar hafi ekki síst beinst gegn sam­starfi hennar og Kára.

„Þá hefur einnig verið reynt að gera það tor­tryggi­legt að ég sem starfs­maður Íslenskrar erfða­grein­ingar og Kári Stef­áns­son séum að láta til okkar taka í starfi SÁÁ vegna sam­starfs við sjúkra­hús sam­tak­anna um rann­sóknir,“ skrif­aði fram­bjóð­and­inn.

Kornið sem fyllti mælinn

Heim­ildir Mannlífs herma að rógs­her­ferð and­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar gegn Þóru Kristínu hafi haf­ist um leið og hún til­kynnti um fram­boð sitt. Kornið sem fyllti mæl­inn hafi þó verið tölvu­póstur rétt fyrir hádegi í dag þar sem Arnþór Jónsson áframsendi skjá­skot af aug­lýs­ingu Eddu Falak á sam­fé­lags­miðlum þar sem hún óskar eftir fórn­ar­lömbum þjóð­þekkts manns fyrir hönd konu sem orðið hafi fyrir vændi.

„Með­fylgj­andi er skjá­skot frá því í dag. Í færsl­unni segir frá konum sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmi­legrar fram­komu ein­hvers frægð­ar­mennis, munu lík­lega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upp­lýs­ing­arnar á mynd­inni gætu þolend­urnir verið skjól­stæð­ingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að ger­and­inn sé Kári Stef­áns­son. Getur þú stað­fest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?,“ skrif­aði Arnþór í tölvu­pósti sem Mannlíf hefur undir höndum.

Í kjöl­far þessa pósts hafi Þóra Kristín hugsað sinn gang og afréð að lokum, rétt fyrir fund­inn þar sem kjósa átti hana til for­manns, að draga fram­boð sitt til­baka.

Draga sig úr stjórn vegna ofbeldishegðunar

Heim­ildir Mannlífs herma að það ríki mikil reiði innan stjórnar SÁÁ með fram­göngu Arnþórs og and­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar. Einn af 48 stjórn­ar­mönnum SÁÁ er fjöl­miðla­mað­ur­inn Frosti Logason sem brást við tíð­ind­unum með því að senda póst, sem Mannlíf hefur undir höndum, á alla stjórn­ina þar sem hann hjólar í Arnþór.

„Þóra Kristín og Kári Stef­áns­son hafa ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn sam­tak­anna vegna þeirrar ofbeld­is­hegð­unar sem Arnþór Jónsson og félagar hafa verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum. Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur stað­fest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stef­áns­son að ræða í þessum orðrómi um vændis­kaup sem hún var að fiska eftir á sam­fé­lags­miðlum. Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyði­leggja fyrir okkar ágætu sam­tökum og það er miður,“ skrifar Frosti í póst­inum til stjórn­ar­með­lima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi