Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

V-dagurinn 20 ára: „Ofbeldi gegn konum er órjúfanlega tengt drottnunargirni manna“

V-dagurinn 20 ára: „Ofbeldi gegn konum er órjúfanlega tengt drottnunargirni manna“

„Hvorki stjórn­laus kyn­hvöt, sjúk­legir eig­in­leikar né utan­að­kom­andi aðstæður fá karla til að nauðga. Nauðgun er ofbeldi sem miðar að því að lít­il­lækka, nið­ur­lægja og kúga þann sem er nauðgað. Nauðgun und­ir­okar konur á hrotta­fullan hátt og vit­undin um hætt­una á nauðgun er ógn sem tak­markar og heftir frelsi allra kvenna.“

Þessi orð eru með þeim fyrstu sem blasa við í grein í Mannlífi frá febr­ú­ar­mán­uði árs­ins 2002. Greinin var skrifuð í til­efni V-dags­ins, sem var hald­inn í fyrsta sinn á Val­ent­ínus­ar­dag­inn, þann 14. febr­úar árið 2002, fyrir tutt­ugu árum síðan. Gerður Kristný skrif­aði grein­ina.

Vegna sam­fé­lags­um­ræð­unnar und­an­farin miss­eri í tengslum við kyn­bundið ofbeldi er áhuga­vert að spegla umræð­una um mála­flokk­inn fyrir tutt­ugu árum síðan, við það hvar við stöndum nú.

Skjáskot úr grein Mannlífs eftir Gerði Kristnýju.

Ekki meira ofbeldi

„Á Val­ent­ínus­ar­dag­inn 14. febr­úar nk. verður í fyrsta skipti efnt til svo­kall­aðs V-dags hér á landi en hann hefur verið hald­inn víða um heim und­an­farin fjögur ár í þeim til­gangi að vekja fólk til umhugs­unar um kyn­ferð­is­of­beldi gegn konum.“

Það var upp­runa­lega hópur banda­rískra kvenna sem kom V-deg­inum á fót í tengslum við leik­ritið „Vagina Monologues“ eða Píku­sögur, eftir Eve Ensler. Leik­ritið var sýnt hér á landi í Borg­ar­leik­hús­inu á sínum tíma og naut mik­illa vin­sælda. Fyrir tutt­ugu árum tók hópur fólks sig svo saman hér á landi og komu V-deg­inum á dag­skrá. Þetta voru þau Þórey Vil­hjálms­dóttir, Ingi­björg Stef­áns­dóttir, Björn Ingi Hilm­ars­son, Birta Ósk Gunn­ars­dóttir, Logi Unnarson Jónsson og Edda Jóns­dóttir.

„Ekki er aðeins um að ræða einn dag því 14. febr­úar verður stofn­dagur sam­taka kenndum við V-dag­inn sem, líkt og banda­ríski for­ver­inn, hyggj­ast vinna gegn ofbeldi á konum. Er sam­tök­unum ætlað að starfa sem eins­konar þrýsti­hópur. Eitt mark­mið er tekið fyrir í einu og í ár urðu nauðg­anir fyrir val­inu. Líkt og þorra þjóð­ar­innar finnst sex­menn­ing­unum brýnt að með­ferð mála verði mann­eskju­legri svo ekki hvar­fli annað að fórn­ar­lömbum nauð­gana en að kæra verkn­að­inn. Engin fylgni er á milli fjölda kæra ann­ars vegar og hins vegar þeirra sem leita aðstoðar Stíga­móta eða Neyð­ar­mót­töku á Land­spít­al­anum í Fossvogi vegna nauðg­unar. Auk þess krefj­ast stofn­endur V-dags sam­tak­anna þyngri dóma yfir ger­endum en þeir hafa þótt of vægir t.d. miðað við dómana sem fíkni­efna­smygl­arar hafa fengið und­an­farin miss­eri. Allir þeir sem koma að skipu­lagn­ingu V-dags­ins gefa vinnu sína og verður fjár­magn fengið frá fyr­ir­tækjum, opin­berum aðilum og einka­að­ilum.“

Aftast f.v: Eva María Jóns­dóttir, Össur Skarp­héð­ins­son og dóttir hans Ing­veldur, sr. Anna Sigríður Páls­dóttir, Andri Snær Magnason, Örn Arnarson, Elva Dögg Melsteð, Nína Björk Gunn­ars­dóttir, Hall­grímur Helgason. Miðröð: Sóley Elí­as­dóttir, Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir. Fremst f.v: Erpur Eyvind­ar­son, Guðjón Már Guð­jóns­son, Ragnar Kjart­ans­son.

Enn í sömu umræðu

Það er athygl­is­vert að skoða ummæli stofn­end­anna um að með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála þyrfti að verða mann­eskju­legri, „svo ekki hvar­fli annað að fórn­ar­lömbum nauð­gana en að kæra verkn­að­inn.“ Nú, tutt­ugu árum síðar, er enn verið að ræða sömu hluti. Í síð­ustu viku fjall­aði frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur einmitt um þau mál. Þar var talað um alltof langan máls­með­ferð­ar­tíma, sem og ómann­eskju­legt ferli mála gagn­vart brota­þolum, þar sem brota­þolar eru ekki aðilar að eigin málum, heldur vitni, og fá þannig ekki aðgengi að rétt­ar­höld­unum né öllum máls­gögnum.

Sömu­leiðis hefur lengi vel verið, og er enn, gagn­rýnt hve hátt hlut­fall kæra eru felldar niður að rann­sókn lok­inni og kom­ast því aldrei alla leið fyrir dóm­stóla.

„V-dag­ur­inn verður hald­inn þar til ekki verður lengur til kyn­ferð­is­of­beldi gegn konum. Við sjáum fyrir okkur sam­fé­lag þar sem konur lifa frjálsar og öruggar,“ sögðu stofn­endur sam­tak­anna.

Aftast f.v: Guðjón Pedersen, Björn Ingi Hilm­ars­son, sr. Pétur Matth­í­as­son, Halldóra Geir­harðs­dóttir, Didda, Einar Ágúst. Miðröð f.v: Gísli Marteinn Bald­urs­son, Þórunn Lár­us­dóttir, Andrea Róberts­dóttir, Logi Bergmann Eiðsson, Margrét Rós Gunn­ars­dóttir, Elísabet Dav­íðs­dóttir, Eva Bergþóra Guð­bergs­dóttir, Hrafn Didduson. Fremst f.v: Edda Pét­urs­dóttir, Védís Hervör Árna­dóttir.

Samantekt árið 2002

Í sam­an­tekt Eddu Jóns­dóttur, eins stofn­með­lima V-dags­ins, segir eft­ir­far­andi, ásamt því sem stendur efst í grein­inni:

„Árið 2000 leit­uðu 74 konur sér hjálpar hjá Stíga­mótum vegna 84 nauð­gana. Af þeim hafði 60,7% verið nauðgað af ein­hverjum sem þær þekktu (vini/kunn­ingja), 11,9% hafði verið nauðgað af maka sínum og 20,2% af ókunn­ugum.

Á árunum 1997-2000 var til­kynnt um nauðgun til lög­reglu alls 173 sinnum. Þar af voru aðeins 67 mál send til rík­is­sak­sókn­ara og 18 kærur gefnar út en ein þeirra var aft­ur­kölluð. Ellefu nauð­garar voru sak­felldir, sex sýkn­aðir og sex málum var svo áfrýjað. Í Hæsta­rétti var einn nauð­gari sýkn­aður á tíma­bil­inu og þrír sak­felldir.

Nýlega var bætt inn í almenn hegn­ing­ar­lög ákvæði með það að mark­miði að veita vitnum í saka­málum sér­staka refsi­vernd gegn hót­unum og þving­unum. Þar að auki voru sett lög um nálg­un­ar­bann í nóv­em­ber 2000.

Samkvæmt bráða­birgða­tölum, fengnum úr rann­sókn á ákvörðun refs­ingar við afbrotum, komu alls 57 ákæru­mál vegna nauðg­unar til Hæsta­réttar á tíma­bil­inu 1950-1998. Af þessum 57 ákærðu voru 49 sak­felldir (86%) og 8 sýkn­aðir (14%).“

Aftast f.v: Guðrún Eva Mínervu­dóttir, Óskar Jónsson, Þor­finnur Ómarsson. Miðröð f.v: Jakob Frímann Magn­ús­son, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, Sólveig Pét­urs­dóttir. Fremst f.v: Margrét Örn­ólfs­dóttir, Dýrleif Ýr Örlygs­dóttir, Kormákur Geir­harðs­son.

Gísli Marteinn: „Mér finnst allt ofbeldi viðbjóðslegt“

Nokkrir þekktir ein­stak­lingar sátu fyrir svörum í Mannlífi til stuðn­ings V-deg­inum, þau Elva Dögg Melsteð, sem þá var titluð sem háskóla­nemi, Gísli Marteinn Bald­urs­son sjón­varps­maður, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir þáver­andi borg­ar­stjóri og Guðjón Pedersen þáver­andi Borg­ar­leik­hús­stjóri.

Þau fengu öll hinar ýmsu spurn­ingar, en sú spurn­ing sem tengd­ist við­fangs­efn­inu mest var:

„Hvernig held­urðu að heim­ur­inn myndi breyt­ast ef ofbeldi á konum fyr­ir­fynd­ist ekki?“

Elva Dögg Melsteð:

„Til batn­aðar. Allt ofbeldi er slæmt og því er það alltaf til batn­aðar fyrir heim­inn ef því linnir. Þess væri ósk­andi að virð­ing fyrir náung­anum væri meiri þannig að fólk hætti að níð­ast hvert á öðru, bæði and­lega og lík­am­lega.“

Elva Dögg Melsteð

Gísli Marteinn Bald­urs­son:

„Mér finnst allt ofbeldi við­bjóðs­legt og ég held að sjaldn­ast sé gert of mikið úr áhrif­unum sem það hefur á þann sem fyrir verður. Hvort sem um er að ræða konur eða karla þá held ég að sá sem beittur er ofbeldi lengi og reglu­lega missi sjálfs­traustið og sjálfs­virð­ing­una. Og þetta væri betri heimur ef fleiri væru með þessa þætti í lagi.“

Gísli Marteinn Bald­urs­son

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir:

„Það yrði para­dís á jörðu! Ofbeldi gegn konum er órjúf­an­lega tengt drottn­un­ar­girni manna sem getur eftir atvikum beinst gegn nátt­úr­unni, sam­fé­lag­inu eða sam­ferða­fólki. Í sinni gróf­ustu mynd birt­ist hún sem kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn konum og börnum. Ef ofbeldi gegn konum fyr­ir­fynd­ist ekki væri ofbeldi í hvaða mynd sem er á hröðu und­an­haldi.“

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir

Guðjón Pedersen:

„Hann myndi breyt­ast til hins betra.“

Guðjón Pedersen
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi