Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna neitar því að vera alltaf á „háa C-inu“: Segir umræddan árásarham hafa nýst Ólöfu vel

Sólveig Anna neitar því að vera alltaf á „háa C-inu“: Segir umræddan árásarham hafa nýst Ólöfu vel
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Ólöf Helga Adolfs­dóttir

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrrum for­maður Eflingar og núver­andi for­manns­efni Bar­áttu­list­ans í kosn­ingum til stjórnar stétt­ar­fé­lags­ins, hafnar því alfarið að hún sé alltaf á „háa C-inu“, eins og Ólöf Helga Adolfs­dóttir mót­fram­bjóð­andi hennar vildi vera láta í við­tali við Morg­un­blaðið í gær.

„For­manns­efni A-lista í kosn­ing­unum um stjórn Eflingar segir í við­tali að ég sé alltaf á „háa C-inu“ og „alltaf í árás­ar­ham“. Eins og hún hlýtur reyndar sjálf að vita er þetta ósönn full­yrð­ing. Ég hef aldrei átt annað en góð og vin­gjarn­leg sam­skipti við Ólöfu og ég held að hún hafi aldrei séð mig á „háa C-inu“,“ segir Sólveig Anna í pistli sem hún skrifar á Facebook-síðu sína.

Ólöf segist sár fyrir hönd starfsfólks á skrifstofunni

Ólöf Helga sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær að kosn­inga­bar­áttan hafi orðið per­sónu­legri en hún hefði átt von á þegar Sólveig Anna sagði í við­tali við Stundina í síð­ustu viku að hún hefði aldrei heyrt Ólöfu orða stefnu sína í verka­lýðs­bar­áttu. Ólöf Helga vísar þess­ari full­yrð­ingu Sól­veigar Önnu til föð­ur­hús­anna. Hún seg­ist deila sýn for­manns­ins fyrr­ver­andi á bar­átt­una og bar­áttu­málin.

„Það hef­ur að sjálf­sögðu kannski ekki komið jafn mikið frá mín­um lista á sama tíma og frá henni, enda hef ég bara verið að kynn­ast fólk­inu á mín­um lista. En hún hef­ur al­veg heyrt mig berj­ast, enda stóð ég ein í bar­áttu við Icelanda­ir sem trún­að­ar­maður. Þannig að ég þekki al­veg bar­átt­una,“ sagði Ólöf Helga í við­tal­inu við Morg­un­blaðið. Hún sagði að sér hugn­að­ist ekki að stökkva af stað í stríðsöskur áður en nokkur væri búinn að segja nei við kröfum.

„Ég er ekk­ert sér­stak­lega hrif­in af því að æsa mig fyrr en það er ástæða til þess. Mér finnst erfitt að taka mark á fólki þegar það enda­laust uppi á háa C-inu. Þá veit maður ekki hvenær áhersl­an er og hvenær ekki,“ sagði Ólöf Helga í við­tal­inu. Aðspurð sagð­ist hún ekki vera per­sónu­lega sár út í Sólveigu Önnu en að hún væri hins­vegar „ótrú­lega sár fyrir hönd starfs­fólks­ins á skrif­stof­unni sem hefur síð­ustu ár unnið því­líka vinnu bæði fyrir hana og með henni.“

Sólveig Anna sagði í við­tal­inu við Stundina að mann­eskjan sem fengi umboð frá félags­mönnum Eflingar til að gegna for­mennsku félags­ins ætti virð­ingu skilið. Hún sagð­ist sjálf ætla að njóta þeirrar virð­ingar. Ólöf Helga var með aðra nálgun á málið í grein sem hún skrif­aði á Vísi. Þar sagð­ist hún ekki ætla sér að heimta virð­ingu, heldur vinna sér hana inn með bar­áttu sinni.

Segir umræddan árásarham hafa nýst Ólöfu vel

Sólveig Anna er ekki sátt við ummæli Ólafar Helgu ef marka má pistil hennar. Hún segir umræddan árás­ar­ham sinn hafa nýst Ólöfu Helgu ágæt­lega þegar Sólveig nýtti krafta Eflingar til þess að aðstoða hana í bar­áttu hennar fyrir rétt­indum þegar hún starf­aði hjá Icelandair. Þar hafi Sólveig Anna skipu­lagt aðgerðir og mætt til þess að tala máli Ólafar Helgu á stuðn­ings­fundum.

„Eftir að ég hafði sagt af mér for­mennsku ákvað Ólöf að hafa við mig engin sam­skipti, og hún og for­maður huns­uðu m.a. frá mér tölvu­pósta þar sem ég óskaði eftir því að fá að koma á fund trún­að­ar­ráðs félags­ins til að segja mína hlið. Hvers­vegna þær tóku þessa ákvörðun veit ég ekki. Þær hljóta að hafa sínar ástæður.“

Ólöf Helga starf­aði áður sem hlaðmaður hjá Icelandair og gegndi stöðu trún­að­ar­manns hjá fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2018. Henni var sagt upp í ágúst síð­ast­liðnum þegar hún stóð í við­ræðum við fyr­ir­tækið um rétt­inda­mál starfs­manna þess.

Kannast ekki við klofning frá ASÍ

Í pistli sínum talar Sólveig Anna einnig um þau ummæli Ólafar Helgu í við­tal­inu í Morg­un­blað­inu að Sólveig Anna hafi talað fyrir því að kljúfa Eflingu frá ASÍ. Þetta segir Sólveig Anna að sé ósatt.

„Ég hef hvergi sagt að Efling eigi að kljúfa sig frá ASÍ og það kemur ekki fram í stefnu Bar­áttu­list­ans.“

Hún útlistar því næst lið úr stefnu Bar­áttu­list­ans þar sem segir meðal ann­ars að félagar innan Eflingar séu yfir 40 pró­sent af félags­fólki í Starfs­greina­sam­bandi Íslands og yfir 20 pró­sent af félags­fólki í Alþýðu­sam­bandi Íslands. Þar segir einnig að Bar­áttu­list­inn vilji að lagt verði mat á ávinn­ing Efl­ing­ar­fé­laga af þátt­töku í lands­sam­tökum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Þar verði horft til áhrifa Efl­ing­ar­fé­laga í hlut­falli við fjölda þeirra og þær háu greiðslur sem þeir greiða til sam­band­anna.

„Mín afstaða er sú að það sé ekki aðeins réttur, heldur skylda þeirra sem fara með völdin í Eflingu, langstærsta félagi verka og lág­launa­fólks að grand­skoða hvað við erum að greiða fyrir. Það er ein­fald­lega óábyrgt að gera það ekki. Það er ekki sæm­andi að ganga með bundið fyrir augun inn í sam­komu­lag sem að við höfum ekki samið, og sem að við eigum ekki endi­lega auð­velt með að sjá hvernig gagn­ast okkur,“ segir Sólveig Anna.

Var ósátt við áform ASÍ um skattalækkanir hálaunafólks

Sólveig segir að eftir að hafa dvalið í nokkur ár innan hreyf­ingar vinn­andi fólks hafi hún lært mikið um það hvernig kaupin ger­ist í eyr­inni. Hún tekur dæmi um reynslu sína af ASÍ en seg­ist eiga mörg slík í við­bót.

„Ég stóð í miklu stappi fyrsta vet­ur­inn minn í starfi, inn í efna­hags og skatta­nefnd ASÍ. Þar vildi ég að stefna sam­bands­ins í skatta­málum end­ur­spegl­uðu raun­veru­legar þarfir fólks í þeim efna­hags­lega raun­veru­leika sem við búum í, og að við færum sam­einuð fram með kröfur um að allur kraftur yrði settur í að færa lág­launa­fólki skatta­lækk­anir. En ekki að við færum fram með kröfu um að öll þau með laun frá 300.000 upp í 1.300.000 krónur fengju sömu skatta­lækk­un­ina. Það kom mér veru­lega á óvart hversu ein­beittir menn voru í að fá það sam­þykkt að hálauna­menn ættu jafn mikið skilið að fá skatta­lækkun og fátæk­asta fólkið á vinnu­mark­aði.

Ég stóð í miklu stappi við að fá ASÍ til að falla frá hug­mynd um að sett væri í loftið sam­eig­in­leg vef­síða ASÍ og Samtaka atvinnu­lífs­ins þar sem að starfs­manna­leigur fengju „vottun“ um að þær væru vönduð fyr­ir­tæki sem allt í lagi væri að eiga við­skipti við. Ég sagð­ist aldrei geta sam­þykkt þetta og að ég myndi beita mér opin­ber­lega ef af þessu yrði. Sem betur fer skil­aði “háa C-ið” mitt árangri og fallið var frá hinni hörmu­legu hug­mynd.“

Pistill Sól­veigar Önnu í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi