Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Már Gunnarsson syngur í Söngvakeppninni: „Viðlagið kom til mín í kafi“

Már Gunnarsson syngur í Söngvakeppninni: „Viðlagið kom til mín í kafi“
Már Gunn­ars­son

Systk­inin Már Gunn­ars­son og Ísold Wilberg koma fram sem Amarosis í und­ankeppni Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva á fyrra und­an­úr­slita­kvöd­inu, 16. febr­úar, og flytja þá lagið Don’t you know.

„Amaurosis er augn­sjúk­dóm­ur­inn minn,“ segir Már sem er blindur vegna augn­sjúkóms­ins Leber congenital amaurosis. „Við breyttum staf­setn­ing­unni aðeins. Amaurosis lítur ekki jafn­vel út og Amarosis þannig að við ákváðum að taka „u“ út.“ Og úr varð heitið Amarosis. Nafnið Amarosis er hug­mynd sem er búin að vera til í svo­lítið langan tíma; við Ísold höfum aldrei vitað almenni­lega hvað við ættum að gera við hana og okkur finnst núna vera tæki­færi.“

Og ég er ótrú­lega stoltur af því að við erum að gera þetta saman sem systk­ini í söngvakeppn­inni.

Systk­inin sömdu saman bæði lag og texta. „Fyrsta hug­myndin að lag­inu kom til mín þegar ég var í smá­deit­ing­ves­eni; það var smá­drama í gangi. Ég var að fara á sun­dæf­ingu og hopp­aði ofan í laug­ina og þegar ég var kom­inn í kaf þá kom við­lagið til mín og ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við þetta og heyrði í Ísold. Við gerðum síðan lagið að því sem það er í dag. Og ég er ótrú­lega stoltur af því að við erum að gera þetta saman sem systk­ini í söngvakeppn­inni.“

Systk­inin hafa áður unnið saman í tón­list­inni og segir Már að það sé æðis­legt að vinna með systur sinni. „Við erum systk­ini og það kemur alls konar upp; við erum rosa­lega góð saman. Ísold er æðis­leg og við jöfnum hvort annað ofboðs­lega vel út. Ég held að fólk taki alveg eftir því að við erum systk­ini; við högum okkur stundum í sam­ræmi við það en okkur þykir rosa­lega vænt um hvort annað. Styrk­leikar okkar vinna með hvor öðrum. Ísold er að mínu mati hin full­komna söng­kona. Hún getur sungið allt; allt frá rólegum lögum upp í þung­arokk. Hún lifir sig 100% inn í hverja ein­ustu setn­ingu. Hún er meiri söng­kona heldur en ég er söngv­ari.“

Hvernig myndi Már lýsa sér sem söngv­ara?

„Ég get ekki lýst því,“ segir hann og hlær. „Ég reyni bara eitt­hvað að opna munn­inni og syng eitt­hvað.“

Þetta er pínu popp­lag.

Már seg­ist ennþá vera tón­list­ar­maður í þórun og að hann von­ist til að verða það alla ævi. „Ég er að reyna að finna út hvar mínar áherslur liggja. Ég er að hluta til dálítið gam­al­dags. Ég er dálítið fyrir stórar og miklar lag­línur; ég er dálítið fyr­ir­ferð­ar­mik­ill karakter. Síðan þykir mér gaman að prófa nýja hluti og ég er aðeins að reyna að ein­beita mér að því eins og „Don’t you know“ er aðeins öðru­vísi lag en ég hef samið áður. Þetta er pínu popp­lag. Meira popp.“

Hvað með áherslur í texta lags­ins?

„Ég ætla ekki að segja að text­inn sé dramat­ískur en hann er aðeins alvar­legri en lag­línan gefur til kynna og okkur þykir það vera skemmti­legt tvist. En lagið er hresst; þetta er stuð­lag og við vonum að þetta sé eitt­hvað sem fólk gæti hugsað sér að dilla sér við eða hafa gaman af. Við höfum alla­vega gaman af þessu lagi og við komumst alltaf í gír þegar við hlustum á þetta eða syngjum þetta.“

Systk­inin Már Gunn­ars­son og Ísold Wilberg sem keppa í und­ankeppni Euri­vos­ion í ár sem Amarosis.

Nýlega birt­ist frétt um að upp­lýs­ingum um lög íslensku kepp­end­anna sem og um þá sjálfa  hefðu lekið á netið, nánar til­tekið á vef­inn Eurovision fun.

„Það er bara leið­in­legt. Þau hjá RÚV hafa lagt mikið á sig í kringum þetta og við að skipu­leggja þetta og þau eru búin að hugsa um þetta fram og til baka; það er leið­in­legt að ein­hver sé að eyði­leggja þetta. En ann­ars hefur þetta engin áhrif á mig í sjálfu sér þannig séð.“

Már segir að það myndi gera hell­ing fyrir sig og þau systk­inin ef lagið kæm­ist áfram og þau tækju þátt í keppn­inni úti. „Þetta er að sjálf­sögðu frá­bær aug­lýs­ing. Þetta er frá­bært tæki­færi upp á til að mynda tengsla­net og það yrði bara rosa­leg við­ur­kenn­ing ef þjóðin kysi okkur vegna þess að þetta er gríð­ar­lega ströng keppni.“

Við Ísold stefnum ótrauð áfram á að taka upp og gefa út músík.

Burtséð frá Eurovision; er plata fram undan? „Við Ísold stefnum ótrauð áfram á að taka upp og gefa út músík. Og við erum með fullt af hug­myndum sem okkur langar til að fram­kvæma. Síðan er ég líka að vinna með Ivu, vin­konu minni. Við erum líka að semja saman músík og erum að fara að gefa út efni. Þannnig að það er margt skemmti­legt að gera. Og svo er það ég sjálfur líka. Bara Már.“

Hver er draum­ur­inn varð­andi tón­list­ina?

„Það á bara eftir að koma í ljós en mig langar til að taka upp meira efni og núna nátt­úr­lega er draum­ur­inn að kom­ast í Eurovision.“

Már keppti í fyrra í sundi á Ólymp­íu­leikum fatl­aðra.

Uppbyggilegt og gefandi

Már er fyrir norðan. Hann er í fyr­ir­lestra­ferð en hann heldur reglu­lega fyr­ir­lestra og í þess­ari ferð heldur hann 11 fyr­ir­lestra á Norð­ur­landi.

„Efir Ólymp­íu­leik­ana fóru skólar að hafa sam­band við mig til að fá mig til að spjalla við nem­endur í bæði grunn- og fram­halds­skólum og meira að segja í háskólum. Það er orðið meira að gera í því og núna akkúrat er ég í svona ferð og hitti ég örugg­lega um 1000 krakka sam­tals í þess­ari törn. Svo verður von­andi skemmti­legt fram­hald á þessu síðar,“ segir Már sem keppni í fyrra í sundi á Ólymp­íu­leikum fatl­aðra í Tókýó.

„Ég segi á fyr­ir­lestr­unum frá minni sögu, hvernig er að alast upp með augn­sjúk­dóm og svo tala ég um tón­list­ina og afrek­s­í­þróttir og síðan sýni ég myndir frá Tókýó-ferða­lag­inu mínu. Þetta er ótrú­lega skemmti­legt.“

Ég væri til í að fara í alla skóla á land­inu; það væri algjör draumur.

Már segir að við­brögð nem­enda séu stór­kost­leg. „Krakkar hafa verið að senda mér prí­vat skila­boð eftir fyr­ir­lestrana varð­andi þá sem og krakkar sem hafa heyrt af fyr­ir­lestr­unum mínum og sem biðja mig um að koma í skól­ana til sín. Ég reyni að verða við óskum eins margra og hægt er. Ég væri til í að fara í alla skóla á land­inu; það væri algjör draumur. Ég held að krakkar tengi við þetta af því að ég er ungur. Og við­brögðin hafa verið frá­bær í þeim skólum sem ég hef farið í,“ segir Már sem hvetur áhuga­sama kenn­ara og for­eldra um að hafa sam­band við sig ef þeir hafa áhuga á að fá hann í heim­sókn.

Már seg­ist leggja áherslu á húmor á fyr­ir­lestr­unum. „Ég kem með fullt af efni sem ég reyni að setja saman á skemmti­legan hátt og ég vil að það sé hlegið og haft gaman á fyr­ir­lestr­unum mínum og síðan tek ég alltaf spjall með krökk­unum eftir á og það koma alls konar skemmti­legar pæl­ingar tengt því; eitt­hvað sem þeim dettur í hug.“

Hvert er mark­miðið með þessum fyr­ir­lestrum?

„Ég vil að hver og einn taki það úr fyr­ir­lestr­unum sem hver og einn tengir við; mark­miðið er auð­vitað að þetta á að vera upp­byggi­legt og von­andi gef­andi. Þetta er gef­andi fyrir mig og von­andi er þetta gef­andi fyrir þá sem mæta.“

Már er ungur og hæfi­leik­a­ríkur og á sér stóra drauma. Hann var spurður um draumana varð­andi tón­list­ina og er svo í lokin spurður um draum­inn sem hann dreymdi um nótt­ina.

„Ég er á þessu hót­eli fyrir norðan og mig dreymdi að þetta hótel væri bæði hótel og tón­list­ar­skóli og það voru krakkar farnir að æfa á blokk­flautur klukkan sex um morg­un­inn. Það var það sem mig dreymdi í nótt.“

Hvaða lag voru þeir að spila?

„Það var ein­hver hryll­ingur. Þetta var ekk­ert eyrna­konfekt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi